Sindri - 01.10.1920, Page 25

Sindri - 01.10.1920, Page 25
SINDRI NAMUIÐNAÐUR 19 þessa þrjá undanfarna liði heyra sprengiefnin, tegundir þeirra, tilbúningur og notkun. d. Loftrásin (Ventilation) og námulofttegundir (Mine gases). Um þörfina og möguleikana til að knýja stöðugt nægilegar birgðir af hreinu andrúmslofti niður í og út um námuna, bæði til að minka hitann og reka í burtu hinar banvænu lofttegundir er ávalt myndast í námum. e. Flutning (Transport), bæði neðan jarðar, upp úr námunni og ofan jarðar. f. Boranir. Þær eru gerðar bæði ofan jarðar og neðan, til rannsóknar á svæðum þeim og jarðlögum, sem ráðgert er að grafa í og nema. Samtímis því, að byrjað er á námu eða pitt-greftrinum, verður að hugsa fyrir vjelum og vjelafli til að vinna með. Ofan jarðar eru venjulega notaðar bæði gufu og rafvjelar, en eingöngu hinar síðarnefndu neðanjarðar. Þeir sem eiga að sjá um námuna og stjórna rekstri hennar, verða því að hafa allgóða þekkingu á bæði GUFUVJELUM OG RAFFRÆÐI. Ef slys ber að höndum, eða eitthvað fer úr Iagi, þá er það verkfræðingurinn sem ber ábyrgðina, stjórnar björgun og kemur lagi á. LANDMÆLINGAR bæði ofan jarðar og neðan, og svo samtenging ofan og neðan-jarðar mælinganna, er óhjákvæmileg fræðigrein fyrir sjerhvern verkfræðing, sem nokkuð þarf að skifta sjer af námurekstri. Ofan-jarðar mælingarnar eru eitt af aðalatriðun- um, sem áætlanir og útreikningar byggjast á, og þegar farið er að reka námuna, þá er það lífsskilyrði að vita um hvern einasta blett neðanjarðar, hver sje hinn tilsvarandi staður á yfirborði jarðarinnar. Annars er ekki hægt að vita hvenær komið er að hættulegum stöðum eða landamærum hverrar námueignar.

x

Sindri

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sindri
https://timarit.is/publication/729

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.