Sindri - 01.10.1920, Síða 32

Sindri - 01.10.1920, Síða 32
26 VERNDARBR]EF OQ EINKALEYFI SINDRI skriflega lýsingu uppfundningarinnar fylgja hverri einkaleyfis- umsókn. 1 Bandaríkjunum var þetta enn fullkomnara; þar var fyrirskipað að hafa í lok lýsingarinnar grein sem skýrði í stuttu máli frá því, hvað var talin uppfundning og krafist verndar á sem slíkri. Þennan lið, sem nú nefnist »einkaleyfis- krafa«, var umsækjanda fyrst lagt í sjálfsvald að útfylla, en árið 1828 skipaði einkaleyfisskrifstofan svo fyrir, að reglu þessari skyldi fylgja framvegis. Flest allar þjóðir, sem hafa einkaleyfislög, hafa nú samskonar ákvæði í þeim. En einkaleyfisveitingar án sjerfræðilegrar prófunar nægðu . ekki; kærur komu yfir veitingum verðlausra einkaleyfa, ‘og hinum mörgu einkaleyfis málaferlum. Svo voru sett ný lög í júlí 1836, og eru þau talin grundvöllur hinna núgildandi einkaleyfislaga Bandaríkjanna. Aðalatriði laganna voru þessi: — Sjerhver sá, er telur sig hafa fundið eitthvað upp, getur sótt um einkaleyfi til forstöðumanns einkaleyfisskrifstofunnar, sem getur veitt leyfið gegn fullnægingu ákveðinna lagaákvæða. Umsækjandi verður að láta fylgja umsókninni lýsingu af upp- fundningunni og skýra nákvæmlega frá, hvað hann telji sína uppfundningu. Ennfremur verður hann að lýsa því, undir eiðs- tilboði, að hann áliti sig hinn eina og rjetta uppfundninga- mann þess, er hann sækir um einkaleyfi á. Prófun skrifstof- unnar var í því fólgin, að athuga hvort uppfundningin væri ný og hvort umsækjandi væri hinn rjetti uppfundningamaður. Lög þessi veittu útlendingum rjett til þess að sækja um einkaleyfi í Bandaríkjunum, en þeir urðu að gjalda meira fyrir leyfið. Einkaleyfi kostuðu útlendinga 300 dollara, Englendinga 500 dollara, en Bandaríkjaþegna 30 dollara. Onnur ríki fóru nú einnig að setja lög og reglur um vernd- un uppfundninga, Austurríki árið 1810; Rússland árið 1812 og Prússland árið 1815. I Prússlandi voru kröfur einkaleyfis- skrifstofunnar svo harðar, að einkaleyfisveitingar voru mjög sjaldgæfar. Svo sem fyr var getið, giltu einkaleyfislögin frá 1624 yfir tvær aldir í Englandi. Á því tímabili urðu miklar framfarir í iðnaði, en lögin voru hin sömu, enda fór svo, að lög þessi, sem í upphafi voru mjög þörf, urðu til þess að draga úr

x

Sindri

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sindri
https://timarit.is/publication/729

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.