Sindri - 01.10.1920, Side 42

Sindri - 01.10.1920, Side 42
36 GUÐMUNDUR WAAGE SINDRI virtust yfirleitt vera. Af skýrslu þessari mátti sjá, að ljóskast keranna var alloft öðruvísi en vera ber, en af því getur skip- unum stafað mjög mikil hætta. Guðmundur taldi ástand þetta svo athugavert, að hann sendi útdrátt úr skýrslu sinni til Matthíasar Olafssonar alþingismanns, í því trausti að hann hreyfði málinu á alþingi, eða gengist fyrir því, að hjer kæmist á eftirlit og löggilding ljóskera. Lítið hefir orðið um fram- kvæmdir í málinu, en það mun nú vera í undirbúningi og verður vonandi bráðlega ráðið til lykta. Svo mikinn áhuga hafði Guðmundur heitinn fyrir ljóskeramálinu, að eftir að hann veiktist boðaði hann til sín Þorstein Sveinsson, sem lengi Oar hafnsögumaður á »Fálkanum« og skýrði málið nánar fyrir honum. Þorsteinn heit. taldi athuganir Guðmundar svo ná- kvæmar og mikilsverðar, að sjálfsagt væri að leggja þær ti! grundvallar við athugun málsins. Guðmundur sál. hafði framúrskarandi námsgáfur og var hugvitsmaður að upplagi; hann var vel að sjer í eðlisfræði og ólífrænni efnafræði og auk þess ágætur í stærðfræði. Nokkru áður en Guðmundur lagðist banaleguna var hann með athuganir viðvíkjandi ljósmælingum; þessar athuganir sendi hann kennara sínum í Þýskalandi, er hann hafði nuniið hjá eðlisfræði og stærðfræði, og fjekk það svar frá honum, að hann skyldi koma utan til frekari athugana á inálinu og rjeði honum fastlega til þess að snúa sjer að verkfræðinámi. Guðmundur heitinn var ágætur smiður, enda er hann af ætt Skallagríms Kvöldúlfssonar. Einn smíðisgrip lætur hann eftir sig, er hann ljet á Iðnsýninguna; það er fuglabúr, sem gjört er af mikilli snild og úr ýmsum málmum, en þeim er þannig fyrir kornið, að þenslan verði sem jöfnust og engin skekkja á smíðinni geti komið' til greina við áhrif hita og kulda. Guðmundur sál. og Dr. Páll E. Olason voru sammæðra. Hann bjó með móður sinni til dauðadags og fórst vel við hana. Iðnfræðafjelaginu er mikil eftirsjá að Guðmundi, því auk hæfi- leika sinna var hann fjelagslyndur og drengur góður. GÍSLI GUÐMUNDSSON.

x

Sindri

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sindri
https://timarit.is/publication/729

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.