Sindri - 01.10.1920, Page 43
SINDRI
Vjer þykjumst vita, að menn vilji fá skýringu á nafni rits-
ins og titilblaði, og er þar skemst frá að segja, að Sindri hjet
dvergur einn í fornöld, er var mesti hagleiks og kunnáttu-
maður. Smíðaði hann gölt einn mikinn með gullburstum, er
var gefinn Frey; hringinn Draupni, er Oðinn hlaut og hamar
Þórs. Voru gripir þessir allir svo mikilsverðir, að telja má
Sindra fornaldar-iðnfræðing. A titilblaði ritsins sjást neðst
bræðurnir Sindri og Brokkur við gerð þessara gripa. Vel var
nú blásið í aflinn og nema eldglæringarnar hátt við himinn.
Fyrir ofan aflinn sjest merki fjelagsins (þríhyrningurinn) og
þar upp af nafn tímaritsins. Þá er mynd af H. C. Orsted,
vísindamanninum danska, er fyrir einni öld fann rafsegul-
magnið og lagði þar með grundvöllinn undir alla raftækni
nútímans. Fer SlNDRI á stað með því að minnast þessa
merkilega viðburðar, eins og menn hafa þegar sjeð hjer að
framan.
Annars ætlar ritið að hirða sem minst um liðna tímann,
en gefa sig sem mest að nútíð og ókomna tímanum. Vjer
höfum lofað lesendum vorum að fræða þá um iðnfræði og
iðnað; hvaða iðnaður sje rekinn hjer í landinu og hvaða iðn-
að megi haganlega reka hjer. Þeir sem lesa greinar þeirra
Gísla Guðmundssonar og Helga H. Eiríkssonar hljóta að
finna, að vjer höfum þegar efnt mikið af því sem lofað var.
Vonumst vjer til að geta flutt margt fleira nýtilegt frá penna
þessara færu manna. — Annars höfðum vjer góðar nýjungar að
færa lesendum vorum. Það eru þær er felast í grein Björns
Kristjánssonar alþingismanns, um málma er hann hefir orðið