Sindri - 01.10.1920, Side 45
SINDRI
Munktells-mótorar.
I ágúsmánuði kom hingað sýningarskipið »Munktells V.«.
Er það fimta skipið sem sent hefir verið út til sýninga frá
Munktells Mek. Verkstads Aktiebolag í Eskilstuna í Svíþjóð.
Mótorinn var 48 hestafla, tvígengismótor, með einum cyl.,
hreyfanlegum skrúfublöðum og að öllu leyti útbúinn sem mó-
tor í fiskibáta.
Ferð þessi var farin í þeim tilgangi að gefa mönnum kost
á að kynnast þessari mótortegund, sem áður var lítt kunn
hjer á landi. Var skipið, er það kom hingað, búið að vera
víða í Noregi, kom svo hingað til landsins og sýndi vjelina á
Norður- og Vesturlandi.
Enda þótt slík auglýsingaraðferð sje nýstárleg hjer, er það
samt eigi hún sem gefur tilefni til greinar þessarar, nje vakti
eftirtekt vora sjerstaklega, heldur er það mótorinn sjálfur, því
svo virtist hann bera af þeim tegundum, er áður hafa þekst
hjer. Það sem fyrst vakti athygli þeirra er komu og litu á
mótorinn var það, hversu rólega hann gekk, eins þó að skrúf-
an, í fullum gangi, væri tekin úr sambandi við mótorinn. Mis-
munur á gangi mótorsins var ekki finnanlegur, og stafar það
af hinum óvenju góða gangráð sem þesssi vjel hefir, og er
það afarmikill kostur á öllum vjelum, en þó sjerstaklega þeim,
sem notaðar eru í fiskibáta, þar sem gangur vjelarinnar er
síbreytilegur meðan verið er að veiðum. 011 leg mótorsins
eru S.K.F. kúluleg, að undanskildum sveifarás og bulluáslegi.
Verður því núningsfyrirstaðan mjög lítil í vjelinni, og kemur
afl mótorsins því framdráttaraflinu að meira gagni, auk þess