Sindri - 01.10.1920, Qupperneq 65
SINDRI
AUGLÝSINGAR
XI
Áreiðanlega besti MÓTOR í smábáta er »CAILLE«.
Besta sönnun þess er hin mikla sala (selt til Islands
meir en 60 stykki) og neðanskráð meðmæli, sem tekin
eru meðal fjölda annara:
Arið 1915 keypti jeg undirritaður 2 stk. 4 hk. Caille
Perfection mófor með rafkveikju, útbúinn fyrir stein-
olíu, hjá umboðsmanni vjelanna, hr. O. Ellingsen,
Reykjavík. Vjelar þessar hefi jeg notað mikið og hafa
þær reynst í alla staði vel, bæði í góðu og vondu
veðri í sjóróðra út til hafs. Til þessa tíma hefir ekk-
ert bilað í vjelunum og eru þær að öllu leyti eins og
þegar jeg keypti þær. Vjelarnar eru svo ljettar að þær
þyngja bátana ekkerf að mun, og hefi jeg þess vegna
getað sett bátana upp á hverju kveldi, eftir sem áður.
Mótorinn gengur fult eins vel fyrir steinolíu sem ben-
síni. Eftir þessari reynslu gef jeg Caille Perfection
mín allra bestu meðmæli. — p. t. Rvík, 10. apríl 1920.
]ÓN GUÐjJÓNSSON, frá Breiðuvík.
Undirritaður keypti árið 1917 „Caille" mótor, 8 hesta,
af hr. Ellingsen í Reykjavík. — Síðastliðið ár (1918)
notaði jeg mótor þenna að heita mátti daglega og er
hann bæði sterkur og að öllu leyti ábyggilegur. Gef
jeg mín bestu meðmæli með vjel þessari, sem óefað
: : er af allra hentugustu vjelum fyrir smábáta. : :
p. t. Reykjavík, 27. mars 1919.
Ó. )ÓHANNESSON, frá Vatneyri.
Aðalumboðsm. ._ _ i ?vtc CTvT Símnefni:
fyrir ísland U. LLLI INUOClN ELLINGSEN.
Gjöriö svo vel aö geta SINDRA viö auglýsendur.