Bankablaðið - 01.12.1986, Qupperneq 5

Bankablaðið - 01.12.1986, Qupperneq 5
Frá skrifstofunni 5 Fimmtugsafmæli Pauli Salmio, formaður finnska bankamannasambandsins, fyllti fimmta tuginn þann 20. nóv. sl. Pauli, sem er góðkunningi margra íslenskra bankamanna, hefur starfað um langan tíma í samtökum bankamanna, hann hóf fyrst störf í sparisjóði verkamanna um 1960 og hefur starfað þar æ síðan. Hann hefur verið formaður í Ptl síðan 1978. Einnig á Pauli sæti í stjórn NBU. SBÍ sendir Pauli bestu hamingju- óskir á þessum tímamótum. Helgi Hólm, Guðrún Ástdís Ólafsdóttir og Hinrik Greipsson. Myndin er tekin á Trún- aðarmannanámskeiði í Munaðarnesi. Helgi Hólm og Guðrún Ástdís kveðja SÍB Oft er skammt stórra högga á milli segir máltækið. Það hittist svo ein- kennilega á, að tveir af þremur starfs- mönnum SÍB hafa nú sagt upp störfum í sama mánuðinum. Guðrún Ástdís Ólafsdóttir, fræðslu- fulltrúi, mun láta af störfum í lok janúar. Hefur hún i huga að afla sér frekari menntunar í náinni framtíð. Guðrún á að baki fimm ára farsælt starf hjá SÍB og hefur sérstaklega trúnaðarmannafræðslan aukist og batnað undir hennar stjórn. Undirritaður, ritstjóri þessa blaðs og framkvæmdastjóri SÍB, hefur einnig sagt starfi sínu lausu. Ég hefi ákveðið að hverfa til nýrra starfa í heimabæ mínum, Keflavík. Ritstörfin verða svo sem ekki langt undan, því ég mun m.a. ritstýra tímaritinu FAXI, en það blað hefur verið gefið út í Keflavík í 46 ár. Hér með er komið á framfæri kveðjum frá ofannefndum starfs- mönnum SÍB til hinna fjölmörgu fé- laga í SÍB sem við höfum starfað með á undanförnum árum. Sérstakar þakkir eru sendar til hinna fjölmörgu trúnað- armanna SÍB víðs vegar af landinu, sem verið hafa hjá okkur á námskeið- um og fundum. Það hefur verið sér- staklega gaman að starfa með ykkur. Helgi Hólm. Nýtt félag í SÍB Viðtalstímar formanns Við það að tekin var í notkun hluti af fyrstu hæðinni að Tjarnargötu 14 skapaðist góð aðstaða fyrir stjórn og aðra þá fjölmörgu sem taka þátt í starfinu innan SÍB. Nú hefur Hinrik Greipsson, formaður SÍB, ákveðið að hafa sérstaka viðtalstíma þar sem m.a. fulltrúar starfsmannafélaganna og einstakir félagar geta spjallað við hann um hin ýmsu mál sem upp koma. Viðtalstímarnir verða á þriðju- dögum sem hér segir: 1. og 3. hvern þriðjudag kl. 10-12. 2. og 4. hvern þriðjudag kl. 17-19. Geta menn hvort sem er komið staðinn eða þá hringt í síma 91-26944. Starfsmannafélag Lánasjóðs íslenskra námsmanna var á fundi stjórnar SÍB þann 22. október sl. tekið í raðir þeirra félaga sem eiga aðild að sambandinu. Þar með eru félögin orðin 18 að tölu. Inngangan var samþykkt með fyrir- vara, þar sem þing SÍB verður að stað- festa hana. í félaginu eru nú 23 starfs- menn og eru þeir taldir félagar frá og með 1. nóvember 1986. Fyrsti for- maður félagsins er Magnús Guð- mundsson. Félagið mun senda áheyrnarfulltrúa á 35. þing SÍB sem haldið verður dagana 10.-11. apríl á næsta ári. Hinrik formaður á „beinni línu.”

x

Bankablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bankablaðið
https://timarit.is/publication/720

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.