Bankablaðið - 01.12.1986, Síða 13
13
6) Meðferð vandamála sem upp kunna
að koma á vinnustað. Þátttakendur
vinna þar að auki í hópvinnu að sam-
eiginlegum verkefnum og skila
niðurstöðum.
Leiðbeinendur á námskeiðinu voru:
Guðrún Ástdís Ólafsdóttir, fræðslu-
fulltrúi SÍB, Helgi Hólm, fram-
kvæmdastjóri SÍB, Diðrik Haraldsson,
Ungmennafélagi íslands, Inga
Kjartansdóttir, Landsbanka íslands,
Hinrik Greipsson, formaður SÍB og
stjórnarmenn sambandsins.
Trúnaðarmannanámskeið II.
Námskeiðið var haldið í húsakynnum
SÍB að Tjarnargötu 14. Námskeið þetta
er beint framhald af trúnaðarmanna-
námskeiði I. Og voru því allir þeir, er
höfðu lokið þeim áfanga boðaðir á það.
Námsefnið á þessu námskeiði, sem er
beint framhald af trúnaðarmannanám-
skeiði I, er viðameira en á fyrra nám-
skeiði. Farið var í alla þá þætti sem þar
voru teknir fyrir. Þar að auki var fyrir-
lestur um „HVAÐ ER VÍSITALA" sem
Björn Arnþórsson kom mjög vel til
skila. Rætt var um STARFSEMI SÍB,
hvað væri að gerast, og hvað væri á
stefnuskrá. Fyrir svörum sátu Hinrik
Greipsson, formaður SÍB, Sólveig Guð-
mundsdóttir, stjórnarmaður SÍB,
ásamt starfsmönnum SÍB. Starfsemi
NBU var kynnt og lögð sérstök áhersla
á TRÚNAÐARMANNANÁMSKEIÐ
Arne Hamre formaður samtaka banka-
manna i Bergen flytur mál sitt.
NBU sem haldið er árlega. Guðrún
Ástdís fræðslufulltrúi SÍB skýrði frá
hvernig staðið væri að þessum nám-
skeiðum, og þeir þátttakendur sem
valdir voru til fararinnar á síðasta
námskeið skýrðu frá reynslu sinni. Það
voru þau Eva Örnólfsdóttir, Sam-
vinnubanka, Soffía Axelsdóttir, Spari-
sjóði Reykjavíkur og nágrennis og
Gunnar Atlason, Búnaðarbanka. Sér-
stök áhersla var lögð á eftirfarandi
efnisliði á námskeiðinu:
Kjarasamningar SÍB og
bankamanna.
Farið var all ítarlega í allar greinar
kjarasamningsins. Þátttakendur
skiptu sér í hópa og fóru rækilega í
gegnum hverja grein samningsins með
það í huga að gera tillögur til samn-
inganefndar SÍB um úrbætur í kom-
andi kjaraviðræðum. Er þegar búið að
senda viðkomandi aðilum þessar til-
lögur. Er mjög ánægjulegt og nauðsyn-
legt að félagsmenn taki virkan þátt í
kjarabaráttu okkar, með því að koma á
framfæri við rétta aðila því sem þeir
vilja láta leggja áherslu á í samninga-
viðræðum. Leiðbeinendur voru Hinrik
Greipsson og Helgi Hólm.
Störf trúnaðarmannsins
á vinnustað.
Á þeim lið dagskrár er var réttindi
og skyldur trúnaðarmanna var sérstök
áhersla lögð á hverjar skyldur trúnað-
armanna eru gagnvart samstarfs-
mönnum og yfirmönnum annarsvegar
og starfsmannafélaginu og SÍB hins-
vegar. Settu þátttakendur svið ýmis
vandamál sem upp hafa komið á vinnu-
stöðum og fundu lausn á þeim. Mikil
umræða varð um nauðsyn þess að yfir-
menn gerðu sér ljóst í hverju starf
trúnaðarmannsins væri í raun fólgið.
Og eru þeir hér með hvattir til að kynna
sér það hið fyrsta. Benda má á að samn-
ingurinn um trúnaðarmenn er á bls. 38
og 39 í kjarasamningi SÍB og
bankanna. Á skrifstofu sambandsins
er einnig hægt að fá allar upplýsingar
um skyldur trúnaðarmanna. Leiðbein-
andi var Guðrún Ástdís Ólafsdóttir.
Starf smannaf undir.
Það er ljóst að ógjörningur er fyrir
stjórn og starfsmenn SÍB að vera í
beinu sambandi við alla félagsmenn.
Og þar kemur trúnaðarmaðurinn til
skjalanna. Hann er okkar tengiliður er
við treystum á, að komi því til skila til
sinna samstarfsmanna sem við biðjum
hann um. En hvernig er best að standa
að því? Jú, með því að halda reglulega
fundi á vinnustað. Bæði með sam-
starfsmönnum og yfirmönnum. Þannig
ætti að myndast gott og traust sam-
starf sem er nauðsynlegt fyrir trúnað-
armanninn. Að öðrum kosti á hann
erfitt með að starfa sem skyldi og
koma því til skila sem með þarf. Á
námskeiðinu er því sérstök kennsla í
Hópverkefni skilað og metið. Guðrún Ástdís fer yfir niðurstöður hópsins. Við borðið sitja
talið frá vinstri: Vilborg Kristjánsdóttir, Guðný Gunnarsdóttir, Gunnhildur Kristjánsdóttir
og Sigrún Guðnadóttir.