Bankablaðið - 01.12.1986, Side 16
16
Trúnaðarmannafrœðsla
hafði gott lag á að fá okkur til að finnast
við vera gífurlega efnileg.
Guðrún Ástdís fræddi okkur um rétt-
indi en þó aðallega skyldur trúnaðar-
manna. Eftir námskeiðið verður það
okkar fyrsta verk að halda fundi með
samstarfsmönnum okkar og yfirmönn-
um og síðan reglulega hér eftir. Einnig
munum við efla samstarf við starfs-
mannafélag okkar og senda SÍB línu
öðru hverju um störf okkar. Síðan var
farið í hópvinnu þar sem leyst og leikin
voru verkefni um trúnaðarmenn.
Meðan helmingur þátttakenda var í
meðferð hjá Helga Baldurssyni fékk
hinn hlutinn fyrirlestur um trúnaðar-
mannanámskeið sem haldin eru árlega
á vegum NBU. Seinast sóttu þau
Gunnar Atlason, Eva Örnólfsdóttir og
Soffía Axelsdóttir þetta námskeið. Þau
mættu öll hjá okkur og ásamt Guðrúnu
Ástdísi, sem var leiðbeinandi þar,
miðluðu af reynslu sinni og hvöttu
okkur til að ganga í fótspor sín.
Eftir hádegi á fimmtudag sátu þau
Hinrik Greipsson, Sólveig Guðmunds-
dóttir, Helgi Hólm, Guðrún Ástdís og
Kristín Guðbjörnsdóttir fyrir svörum
um störf SÍB. Var margt rætt og
vægast sagt fjörugar umræður.
Útibússtjóri Iðnaðarbankans á Selfossi,
Stefán Garðarsson.
í framhaldi af umræðu um kjara-
samninga var hópnum skipt í fjóra
minni hópa og fengið það verkefni að
leggja fram hugmyndir um kröfugerð í
næstu kjarasamningum. Eftir hádegi á
föstudag fluttu hóparnir síðan tillögur
sínar og kom mjög margt athyglisvert
fram. En nú var fólk farið að ókyrrast
því framundan var Selfossferð og því
dreif formaður SÍB, Hinrik Greipsson,
í að slíta námskeiðinu.
Á Selfossi fórum við fyrst í ágæta
heimsókn í Iðnaðarbankann. Þáðum
þar veitingar og röbbuðum við starfs-
fólk. Fórum fróðari og léttari af þeim
stað og héldum til kvöldverðar á Hótel
Selfoss. Af skiljanlegri ástæðu var
stansað þar eins stutt og hægt var. Og
nú var stefnan tekin á Landsbankann á
Selfossi. Þar voru flutt skemmtiatriði,
bæði af skemmtinefnd úr okkar hópi
og af heimamönnum. Loks var dansað,
drukkið og duflað fram eftir nóttu.
Heim komumst við á þriðja tímanum
um nóttina eftir velheppnað námskeið.
Á stjórn og skrifstofa SÍB heiður skilið
fyrir góða skipulagningu og fjölbreytt
efnisval. Við viljum líka þakka
Guðnýju fyrir þá framtakssemi og
þann kjark að standa fyrir boðinu á
Selfoss með ágætum stuðningi annarra
heimamanna.
(Pistill þessi er saminn af ritnefnd
trúnaðarmannanámskeiðs II).
Rit Seðlabankans um efnahagsmál:
Seðlabanki íslands
I ritum Seðlabankansfærð
þú upplýsingar og
greinagerðir um
efnahagsmál.
I Hagtölum mánaðarins
birtast tölfræðilegar
upplýsingar og greinar.
Economic Statistics
er ensk ársfjórðungsleg
útgáfa með svipuðu efni
og Hagtölur.
/ Fjármálatíðindum
birtast greinar um
hagfræði og efnahagsmál.
Hagfræðideild . P.O. Box 160, 121 ReyKjavík, s:20500.