Bankablaðið - 01.12.1986, Síða 30

Bankablaðið - 01.12.1986, Síða 30
30 Formenn SÍB ásamt Joan Peter Vest, formanni félags bankafólks í Færeyjum. möguleika til að sameina störf og fjölskyldulíf, ásamt þátttöku í öðrum þáttum þjóðlífsins. Miklu skiptir á hvaða tímum dagsins vinna manna fellur. Það er ekki hægt að samþykkja, að vaktavinna eigi sér stað utan tölvudeilda og vinna utan eðlilegs dagvinnutíma ætti ætíð að vera í algjöru lágmarki. Hlutfallið milli opnunartíma og vinnutíma skuli ætíð vera slíkt, að nægur tími vinnist til að ljúka dag- legum störfum án mikils álags á starfsfólkið. NBU-samböndin þurfa þá ætíð að hafa áhrif á mál eins og opnun- artíma, stefnu í starfsmannamálum og skipulag vinnunnar. Vinnuvernd: Unnið skal að því að draga sem mest úr öllum skaðlegum áhrifum í vinnuumhverfinu, hvort sem þau eru líkamleg eða sálræn. ÁRSÞING NBU í KÖGE Dagana 9.-12. sept var haldið í Köge í Danmörku ársþing NBU — norræna bankamannasambandsins. Þing þessi eru haldin á þriggja ára fresti og eru setin af fulltrúum allra sambandanna. Að þessi sinni sat þingið áheyrnarfull- trúi Starvsfólkafélag Sparikassann í Færeyjum, Jóan Petur Vest, en þar hefur nú starfað félag í nokkra mánuði. Hefur færeyska félagið náin samskipti við danska sparisjóðasambandið — DSFL. Fulltrúar á þessu þingi NBU voru þau Hinrik Greipsson, Hrafnhildur B. Sigurðardóttir og Helgi Hólm. Einnig var Friðbert Traustason áheyrnarfull- trúi. Á þinginu var f jallað um mjög mörg mál, en sérstaka athygli vakti umræða um efni er nefndist „Verkefni fjár- magnsmarkaðarins í dag og í fram- tíðinni.” Viðskiptalífið er háð stöðug- um breytingum og við verðum að fylgjast með. Umræður urðu líflegar og heitar. Þingið samþykkti stefnumörkun fyrir næstu þrjú ár. Skal nú í stuttu máli farið yfir nokkra helstu liðina. Meðákvörðunarréttur: Lögð var áhersla á rétt starfsmanna til að eiga þátt í þeim ákvörðunum sem teknar eru á hverjum tíma í bönkunum. Segja má að þetta sé grundvallaratriði, því alloft eru teknar ákvarðanir sem hafa mikil áhrif, án þess að fulltrúar starfs- manna séu hafðir með í ráðum. Vinnuöruggi: Starfsmenn verði í hvívetna varðir gegn óæskilegum áhrifum, s.s. vegna skipulagsbreyt- inga, eða breytinga á starfsmanna- stefnu bankanna. Eftirlaunaréttindi: Þrátt fyrir að eftirlaunaréttindi bankafólks um öll Norðurlöndin séu í nokkuð góðu lagi, þá skal unnið að því, að gera þau þannig úr garði, að þau verði sveigjanlegri. Þessi réttindi þurfa að geta fallið betur að réttindum hvers einstaklings. Launamál: Hin almenna regla skal vera sú að allt bankafólk eigi rétt til sambærilegra launa. Með þetta í huga vill NBU vinna að því að koma á launa- kerfi sem leggur fyrst og fremst áherslu á góða menntun og starfskunn- áttu. Með því væri tryggð góð endur- nýjun innan stéttarinnar og að starfs- menn hefðu stöðugt hvatningu til að takast á við ný verkefni. Vinnu- og opnunartími: NBU vill stefna að styttingu vinnitímans, m.a. til að skapa fleiri atvinnutækifæri. Jafn- framt gefur styttri vinnutími meiri Tækniþróun: Tækniþróunin er ekki aðeins spurning um nýja þætti, heldur hefur hún áhrif á þætti eins og vinnu- öryggi, vinnuumhverfi og almennt á öll kjör starfsmanna. Af þessum sökum verður að tryggja rétt starfsmanna til að fylgjast með og hafa áhrif á þá þróun sem fram fer á hverjum tíma. í þessu skyni verður að gefa fulltrúum starfsmanna kost á þeirri menntun og þjálfun sem nauðsynleg er til að þeir geti sett sig nægilega inn í þá hluti sem eru að gerast. Starfsmenntun: Allir starfsmenn banka skulu eiga rétt á nauðsynlegri grunnmenntun. Menntun þessi skal vera þannig úr garði gerð, að hún tryggi góða þekkingu á eðli starfa og þjónustu í bönkunum. Með því móti er tryggt, að í bönkunum sé á hverjum tíma hæft starfsfólk. Jafnframt er lögð á það áhersla að hinar hröðu og stöðugu breytingar sem eiga sér stað í banka- viðskiptum leggi þá skyldu á herðar bankanna, að þjálfun og endurmennt- un tarfsfólksins verður ávallt að vera forgangsverkefni. Jafnrétti: Jafn rétti í bönkunum skal miða að því, að gefa bæði konum og körlum jafna möguleika til að þróa og nýta sína hæfileika. Vinnumarkaður-

x

Bankablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bankablaðið
https://timarit.is/publication/720

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.