Bankablaðið - 01.12.1986, Qupperneq 31

Bankablaðið - 01.12.1986, Qupperneq 31
31 inn þarf að þróast þannig, að konur og karlar fái jafna möguleika til að bera ábyrgð á heimili og börnum. Reynsla karla og kvenna getur bæði verið lík og ólík. Til að reynsla beggja fái notið sín, þá ber að sjá til þess, að bæði kynin séu að finna í öllum störfum og á öllum sviðum innan bankanna. Sama gildir um störf innan stéttarfélaganna. Lagabreyting. Á þinginu var samþykkt breyting á lögum NBU hvað varðar fjölda þing- fulltrúa. Hér eftir verða þingfulltrúar 60 alls og þingforseti að auki. Minnsta aðildarsambandið fær 4 fulltrúa, en síðan skiptast hinir fulltrúarnir í sam- ræmi við fjölda félaga. Einnig voru samþykktar eftirfar- andi reglur um fjölda stjórnarmanna, en þar tilnefna samböndin sína full- trúa: 1 í stjórn ef félagar eru undir 3000. 2 í stjórn ef félagae eru 3000-10000. 3 í stjórn ef félagar eru 10000-40000. 4 í stjórn ef félagar eru yfir 40000. Nýr forseti NBU. Á þinginu lét Kaj Öhman af embætti sem forseti NBU og í stað hans var kjörinn Fritz P. Johansen. Fritz hefur starfað lengi að málefnum banka- manna og er hann núverandi formaður norska bankamannasambandsins — NBF. Næsta þing verður haldið í Noregi árið 1989. Austurstræti 12 Simar 91 -27077 & 91 -28899 Hótel Sogu við Hagatorg 91-622277 Akureyn Skipagotu 14 96-21400 <j NBU- meistarar í fótbolta Það hefur verið fastur liður á þingum NBU að fram fari keppni í fótbolta á milli þjóð- anna. Þar sem fulltrúar SÍB nægðu ekki í sérstakt lið, þá var gengið til liðs við annað danska liðið — DSFL. Er skemmst frá því að segja, að hið sameinaða lið sigraði í keppn- inni og lagði alla andstæðingana að velli. Á myndinni sést hið harðskeytta lið sem var skipað leikmönnum af báðum kynjum — að sjálfsögðu.

x

Bankablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bankablaðið
https://timarit.is/publication/720

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.