Bankablaðið - 01.12.1986, Síða 35

Bankablaðið - 01.12.1986, Síða 35
35 Strikið við Gammel Torv. Berlitz-skólinn í baksýn. Tryggvi Eiríksson: Námsferð á vegum SÍB í sumar sem leið átti ég þess kost að fara til Danmerkur sem styrkþegi Sambands íslenskra bankamanna. Út- hlutaði SÍB mér öðrum af tveimur styrkjum sem veittir voru í tilefni 50 ára afmæli sambandsins. Var styrk- urinn gjöf frá Norræna bankamanna- sambandinu sem varið skyldi til efl- ingar starfi SÍB. Þessi ferð átti eftir að verða heil- mikið ævintýri fyrir mig og fjölskyld- una enda vorum við sex vikur í ferð- inni. Lagt var upp með Norrænu frá Seyð- isfirði 14. júlí og var bíllinn tekinn með. Allur aðbúnaður í Norrænu er mjög góður og um borð er m.a. spila- salur, fríhöfn og 2 veitingasalir, að ógleymdum næturklúbbnum sem opinn er fram á nótt. Ferðin til Danmerkur gekk vel enda var veður gott og enginn þjáðist af sjóveiki. Norræna er reyndar búin sér- stökum veltibúnaði sem gerir hana stöðuga á sjó. Eftir tveggja daga siglingu komum við til Hansholm á Norður-Jótlandi. Hansholm er fjöl- farin ferjuhöfn en þangað koma m.a. ferjur frá Noregi, Englandi og Fær- eyjum auk ferja frá meginlandi Evr- ópu. Eru reyndar uppi hugmyndir um að stækka þessa höfn enn frekar og auka þjónustu við ferðamenn með byggingu þjónustu- og verslunarmið- stöðva. Frá Hansholm er um 8 klst. akstur til Kaupmannahafnar, þangað sem ferð- inni var heitið. Þar sem Norræna kemur að landi um kl. 4 síðdegis er raunar upplagt að gista a.m.k. eina nótt á leiðinni og við fundum vinalega sveitakrá á miðri leið. Það er ekki vandi að finna gistingu á Jótlandi, því krár og lítil gistiheimili eru fjölmörg. í Kaupmannahöfn gistum við í íbúð á Amager sem við vorum svo heppin að fá leigða af íslenskum námsmönnum, sem voru heima í sumarfríi. Amager liggur miðsvæðis og vel við samgönguleiðum og það er ein af ástæðunum fyrir hversu vinsælar þessar íbúðir eru hjá íslenskum námsmönnum. Skólinn sem ég var skráður í heitir Berlitz og er skammt frá Ráðhústorg- inu á miðju „Strikinu”. Það er ekki hægt að segja annað en umhverfið og næsta nágrenni sé líflegt. Strikið troð- fullt af fólki á ferð og flugi og kaffi- húsin og útibarirnir þéttsetnir bakatil við Frúarkirkjuna. í Berlitz skólanum eru aðallega kennd tungumál og starfar hann í mörgum löndum, en í Danmörku er hann í Kaupmannahöfn og Álaborg. Stofnunin er einnig þekkt fyrir útgáfu- starfsemi ýmiskonar, svo sem útgáfu orðasafna, landkynningarbóka o.fl. Skólinn státar af 100 ára starfs-

x

Bankablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bankablaðið
https://timarit.is/publication/720

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.