Bankablaðið - 01.12.1986, Side 36
36
reynslu á sínu sviði og hefur útskrifað
10 milljón nemendur. Má segja, að
nemendafjöldinn segi nokkuð til um
gæði skólans og vinsældir. Skólinn er
að sama skapi nokkuð dýr og 2-3 vikna
námskeið kostar um 10-20 þús. ís-
lenskar krónur eftir tímafjölda.
Kennslan byggist mest á töluðu máli,
samtalsæfingum og þjálfun í að hlusta
á mælt mál. Nemandinn nær frá upp-
hafi tökum á því að tjá sig og hugsa á
nýja málinu. Árangur kemur í Ijós
miklu fyrr en ef beitt er hinum hefð-
bundnu aðferðum með málfræði-
kennslu og þýðingum.
Öll kennsla er skipulögð eftir getu og
óskum hvers nemanda og fer annað
hvort fram í einkatímum eða minni
hópum. Hægt er að velja eins marga
tíma og hver óskar en að jafnaði er
lágmarkslengd námskeiða 10-15 tímar.
Námskeið það sem ég sótti var í
dönsku og samfélagsfræði. Sérstök
áhersla var lögð á dönsk efnahagsmál
og viðskiptalíf. Var námskeiðið mjög
gagnlegt og upplýsandi og framfarir
skjótar enda var um einkakennslu að
ræða. Þóttist ég þó kunna ýmislegt
fyrir en alltaf er samt hægt að bæta við
kunnáttuna.
Tel ég mig heppinn að fá slíkt
tækifæri til að rif ja upp dönskukunn-
áttuna og kynnast Dönum og lífshátt-
um þeirra af eigin raun.
Þar sem námskeiðið stóð einungis
hálfan daginn gafst ennfremur tæki-
færi á að skoða sig um í borginni.
Kaupmannahöfn hefur upp á margt
að bjóða fyrir ferðamenn, söfn, gamlar
byggingar og f jölbrey tta veitingastaði.
Það er skemmtileg upplifun að ganga
um Strikið og umhverfi Ráðhústorgs-
ins, skoða Nyhavn og fylgjast með
vaktaskiptum hjá lífvörðum drottn-
ingar við Amalienborg. Sömuleiðis má
enginn missa af því að skoða Haf-
meyjuna við Löngulínu.
Tívolí skemmtigarðurinn frægi er í
miðborg Kaupmannahafnar og það eru
víst fáar höfuðborgir i heiminum sem
geta státað sig af slíkum skemmtigarði
í hjarta borgarinnar.
Segja má að Kaupmannahöfn og
Norður-Sjáland myndi eitt samfellt
svæði fyrir ferðamanninn. Margir fall-
egustu og frægustu staðir Danmerkur
eru innan seilingar frá borginni. Dags-
ferðir út á land eru því mjög vel til
fallnar.
Hróarskelda er ein af elstu borgum
Danmerkur en þó eru þar ekki margar
gamlar byggingar, þar sem eldsvoðar
hafa tekið sinn toll. í dag er bærinn
nútímalegur og þjónar sem verslunar-
staður stóru væði. Markaður er
haldinn tvisvar í viku árið um kring þar
sem hægt er að kaupa nýjan fisk,
ávexti, blóm og grænmeti svo ekki sé
minnst á sölu á notuðum munum og
skrauti, sem svo mjög setur svip sinn á
staðinn.
Dómkirkjan í Hróarskeldu á enga sína
líka í Danmörku. Bygging hennar hófst
um 1170 og var ekki lokið fyrr en í
upphafi 15. aldar. Dómkirkjan er
sömuleiðis grafhýsi fyrir konungsfjöl-
skylduna og skiptist í margar kapellur
þar sem kóngar og drottningar hvíla.
Stórt safn víkingaskipa sem grafið var
upp í firðinum er njög forvitnilegt.
Skammt frá Hróarskeldu er Lejre,
I
000%
■ ■■
I
c
B
1
|
OT