Bankablaðið - 01.12.1986, Síða 39

Bankablaðið - 01.12.1986, Síða 39
39 Skrifað undir kaupsanning. Frá vinstri eru Sigurður Guðmundsson, fulltrúi seljenda, Sigurður Geirsson, gjaldkeri SÍB, Hinrik Greipsson, formaður SÍB, Helgi Hólm, fram- kvæmdastjóri SÍB og Gunnar Rósinkranz hinn fulltrúi seljenda. Húsnæði Bankamanna- skólans stækkar mikinn þátt í félagsmálum banka- manna, hrókur fagnaðar á gleðistund- um og hugkvæmur skipuleggjari árs- hátíða og afmælisfagnaða á vegum Starfsmannafélags Útvegsbankans og heildarsamtaka bankamanna. Sigurður var á 40 ára afmæli Starfs- mannafélags Útvegsbankans sæmdur gullmerki félagsins fyrir margháttuð störf og vakandi áhuga á málefnum þess. Sigurður átti sæti í stjórn Sam- bands íslenskra bankamanna í tvö ár og vann þar ágæt störf, var m.a. full- trúi stéttarinnar á erlendum vettvangi og hafði nokkur kynni af norrænum bankamönnum. Sigurður var góður liðsmaður margra gagnmerkra félagssamtaka og m.a. í forystusveit og stjórn Þjóðrækn- isfélags íslands og karlakórs Reykja- víkur. Eigi skal hér gleymt að geta hinna margþættu starfa og þjónustu Sig- urðar í þágu Langholtskirkju og hina stórkostlegu byggingasögu safnaðar- ins. Var hann mikill og vakinn stuðn- ingsmaður kirkjubyggingarinnar. Hann hefir einnig aðstoðað við messugerðir og oft annast barnaguðs- þjónustur. Sigurður kvæntist eftirlifandi eigin- konu sinni, Pálínu Guðmundsdóttur, mætri konu og mikilhæfri, ættaðri úr Reykjavík, þann 5. nóvember 1949. Þau hafa lengst af í 37 ára búskapar- tíð sinni átt heimili að Skeiðarvogi 111 hér í borg. Þar hafa þau átt fagurt og aðlaðandi heimili og óteljandi unaðs- stundir með börnum sínum sex, sem öll hafa fetað í fótspor foreldra sinna, á sviði dugnaðar og trúmennsku. Þau eru, Sigurgeir flugstjóri hjá Flugleiðum, Sigrún, gift Halldóri Gunnarssyni, Anna Svanhvít, meina- tæknir, Guðrún Rósa, læknir, stundar nú framhaldsnám í geðlækningum í Svíþjóð, Kjartan, verslunarmaður hjá fyrirtækinu IKEA og Haraldur, náms- maður, er lauk stúdentsprófi sl. vor. Mikil sorg hvílir yfir ranni f jölskyld- unnar að Skeiðarvogi 111. Ástkær heimilisfaðir er horfinn yfir móðuna miklu. Ég votta fjölskyldu, öllum ættingj- um og vinum Sigurðar Sigurgeirssonar innilega hluttekningu og samúð. Minningin þerrar sorgartárin. Adolf Bjömsson. í haust kom að því, sem verið hefur á döfinni í allmörg ár, að húsnæði það sem Bankamannaskólinn hefur verið í að Laugavegi 103 var selt og annað stærra keypt í staðinn. Það vita kannski ekki allir, að það er SÍB sem leigir Bankamannaskólanum og hefur gert það í 20 ár. Það húsnæði er orðið of lítið fyrir nokkru og hafa menn á und- anförnum árum verið að líta í kringum sig eftir heppilegu húsnæði. Snorrabraut 27—29. Nú hafa málin skipast þannig, að SÍB seldi Brunabótafélagi íslands 5. hæðina að Laugavegi 103, en keypti í staðinn 4. hæðina í næsta húsi, þ.e. á horni Laugavegs og Snorrabrautar. Var húsnæðið keypt tilbúið undir tré- verk og mun SÍB skila skólanum því tilbúnu fyrir notkun. Lovísa Christi- ansen, innanhússarkitekt, var ráðin til að fylgja því máli í höfn. Reiknað er með, að Bankamannaskólinn geti hafið kennslu í hinu nýja húsnæði fyrir miðjan janúar á næsta ári. Lýsing á húsnæðinu. 4. hæðin að Snorrabraut 27—29 er öll með svölum talin um 432,5 nP auk tveggja bílastæða í kjallara hússins. í þessu húsnæði er gert ráð fyrir, að Bankamannaskólinn fái til afnota mestan hluta, en jafnframt er gert ráð fyrir að samninganefnd bankanna hafi þarna aðsetur í framtíðinni. Má því gera ráð fyrir að samningaviðræður geti hér eftir farið fram þar. En það er til mikilla bóta, því að á undanförnum árum hafa samninganefndirnar verið á hrakhólum með húsnæði. Bankamannaskólinn mun þarna fá mjög aukið kennslurými, auk þess sem aðstaða kennara og nemenda breytist mjög til batnaðar. Fjármögnun. Við þessi húsakaup hefur þess verið gætt, að þau komi sem minnst niður á venjulegri starfsemi SÍB. Hið nýja húsnæði var keypt á kr. 11,2 milljónir og reiknað er með, að það kosti 3,8 milljónir að fullklára það. Fyrir Laugaveg 103 fengust um 5,5 milljónir og nokkrar krónur voru til í sjóði. Það sem á vantar verður fjármagnað með því að ákveðinn hluti af húsaleigunni fæst greiddur fyrirfram. Aukin starfsemi skólans. Skólanefnd og skólastjóri hafa ýmis- legt nýtt á prjónunum á komandi árum. Það er trú og von allra þeirra sem að þessu máli hafa staðið, að starfsemi skólans geti aukist og dafnað á þessum nýja stað.

x

Bankablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bankablaðið
https://timarit.is/publication/720

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.