Bankablaðið - 01.12.1986, Side 43
íþróttir
43
SIGURSVEITIN. Guðrún Ástdis afhendir þeim Gunnari Þór Guðjónssyni, Braga Björnssyni
og Jóhannesi Jónssyni sigurlaunin.
Sigurvegarar fengu að launum bik-
ara og verðlaunapeninga, en þar að
auki voru veitt verðlaun í púttkeppni
og ýmis aukaverðlaun. Voru Sparisjóð-
urinn í Keflavík og Landsbankinn í
Grindavík gefendur þeirra verðlauna.
Veður var yndislegt meðan mótið stóð
yfir. Góðar aðstæður og skemmtilegar
móttökur heimamanna settu svip á
mótið. Menn eru þegar farnir að
hlakka til næsta móts.
BRIDGE-
MÓT
SÍB
GOLFMOT SIB 1986
Þann 19. júlí fór golfmót SIB fram á
golfvellinum við Grindavík. Þátttak-
endur voru um sextíu talsins og vakti
sérstaka athygli, hversu stór hópur
mætti frá Akureyri. í sveitakeppninni
mættu 7 sveitir til leiks og 32 léku 18
holur í einstaklingskeppninni. Að
þessu sinni var leikið í tveimur byrj-
endahópum og léku byrjendur 9 holur.
Einnig tóku nokkrir makar keppenda
þátt í mótinu.
Byrjendaflokkur A.
Kristín Jónsd., Alþýðub. 60 högg
Erna Árnad. Sparisj. Kefl. 65 högg
Byrjendaflokkur B.
Úlfar Ásmundsson Alþýðub. 47 högg
Þorgeir Jónatanss., Verzlb. 47 högg
Gunnar Viðar, Verzlunarb. 48 högg
í bönkunum er að finna margt fólk
sem er mjög liðtækt í bridge ekki síður
en í skák, en bankamenn eru fræknir
skákmenn. Við birtum hér eina mynd
til gamans, en hún var tekin á Bridge-
móti SÍB í vetur. Það var sveit Lands-
banka íslands sem sigraði í mótinu, en
á myndinni sjáum við tvo þátttakend-
urna, þær Arnþrúði Halldórsdóttur úr
Alþýðubankanum og Önnu ívarsdóttur
úr Búnaðarbankanum.
o
Úrslit:
Sveitakeppni.
D sveit Útvegsbanka 117 högg
B sveit Útvegsbanka 130 högg
A sveit Landsbanka 133 högg
Einstaklingskeppni, án forgjafar:
Björn Axelsson, Útvegsb. 72 högg
Karl Hólm 73 högg
Jóhann R. Kjærbo, Landsb. 75 högg
Með forgjöf:
Axel Björnsson, Búnaðarb. 50 högg
Bragi Björnsson, Útvegsb. 56 högg
Katla Ólafsdóttir 60 högg