Bankablaðið - 01.12.1986, Síða 45

Bankablaðið - 01.12.1986, Síða 45
Afmæli Starfsmannafélags Búnaðarbanka íslands í febrúar sl. hélt SBI upp á fimmtíu ára afmæli sitt á hinn fjölbreytilegasta hátt. Það vakti athygli utan bankans, að sett var upp sýning á ljósmyndum í gluggum aðalbankans. Myndir, sem sýndu brot úr starfi og skemmtunum þess fólks sem starfaði við bankann fyrstu áratugina. En annað var gert sem vakti mun meiri athygli en það var, að á sjálfan afmælisdaginn,7. febrúar, tók starfsfólkið sig saman og bakaði heima og kom síðan með kökurnar í vinnuna og gaf viðskipta- vinum bankans að drekka og borða. Ég hef aldrei orðið var við meiri ánægju meðal okkar ágætu viðskipta- vina heldur en þennan dag. Þrátt fyrir annir, gáfu flestir sér tíma til að staldra við og spjalla og vildu fræðast um félagið okkar.. Það sem tvímæla- laust gerði útslagið með hversu vel þetta heppnaðist var að fólkið vissi hverjir höfðu bakað, að þetta var ekki gjöf frá bankanum, heldur var þetta fyrirhöfn sem starfsfólkið sjálft lagði á sig. Eins held ég að fáir komi til með að gleyma því hvernig eitt móttöku- herbergi bankastjóra í aðalbankanum leit út þegar búið var að fylla það af kökum! En bankastjórarnir voru svo vinsamlegir að lána okkur herbergið til þeirra nota. Síðan var að góðum sið slegið upp balli laugardaginn 8. febrúar, sem átta hundruð manns sóttu. Fjöldinn var svo mikill að ekki reyndist hægt að fá nægilega stórt hús til þess að hýsa allan þennan fjölda í einu í mat, heldur varð að taka tvö hús á leigu og skemmtiatriði og ræðuhöld voru f lutt á báðum stöðum og þeyttust skemmti- kraftar og ræðumenn á milli staða í bílum og tókst allt dável. — Eins og verða vill á slíkum tímamótum barst félaginu fjöldinn allur af gjöfum, en mest er þó um vert, að um þessa hátíð og undirbúninginn ríkti samhugur og rík þátttaka nánast allra í félaginu. Það var einmitt þetta sameiginlega átak sem færði okkur saman og bætti enn þann ágæta anda sem ríkir innan stofnunarinnar. Eiríkur Guðjónsson. Sparisjóðurinn í Kef lavík Sjóður Suðurnesjamanna Við sendum starfsmönnum banka og sparisjóða um land allt bestu nýársóskir og þökkum kærlega fyrir samstarfið!

x

Bankablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bankablaðið
https://timarit.is/publication/720

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.