Morgunblaðið - 28.11.2008, Síða 20
20 FréttirERLENT
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. NÓVEMBER 2008
Eftir Svein Sigurðsson
svs@mbl.is
MANMOHAN Singh, forsætisráð-
herra Indlands, hét því í gær að
hafa hendur í hári þeirra, sem staðið
hefðu fyrir hryðjuverkaárásunum í
Mumbai, og fullyrti, að aðsetur
þeirra væri „utan landamæranna“. Í
gærkvöld var vitað um 125 manns,
sem látið höfðu lífið í árásunum, og
288 særða. Seint í gærkvöldi var tal-
ið að hryðjuverkamennirnir væru
enn með einhverja gísla í haldi, jafn-
vel nokkra tugi, en sérsveitarmönn-
um hafði þá meðal annars tekist að
frelsa 39 gísla sem haldið var föngn-
um á Oberoi-Trident-hótelinu.
Árásarmennirnir, sem voru lík-
lega 20 til 30 og vopnaðir sjálfvirk-
um byssum og handsprengjum, réð-
ust til atlögum á sjö stöðum að
minnsta kosti, þar á meðal á tvö hót-
el, Taj Mahal og áðurnefnt Oberoi-
Trident, á brautarstöðina, sjúkrahús
og vinsælt veitingahús. Alls lágu í
valnum 14 lögreglumenn, 105
óbreyttir borgarar og sex útlend-
ingar. Þá voru fimm hryðjuverka-
menn felldir og níu handteknir.
„Eins og ungir drengir“
Rakesh Patel, breskur gestur á
Taj Mahal-hótelinu, segir, að árás-
armennirnir hafi verið vel vopnaðir
og smalað saman þeim gestum, sem
þeir náðu í. Þá hefðu þeir sagt þeim
að rétta upp hönd, sem væru banda-
rískir eða breskir, og síðan farið
með þá upp stigana.
„Ég held þeir hafi ætlað að fara
með okkur upp á þak,“ sagði Patel
en honum tókst að laumast burt á
18. hæðinni. Sagði hann, að sér
hefðu virst árásarmennirnir mjög
ungir að árum, „eins og ungir
drengir í gallabuxum og skyrtubol“.
Skömmu síðar braust út eldur á
efstu hæðum Taj Mahal.
Indverskir sérsveitarmenn náðu
Taj Mahal-hótelinu fljótlega á sitt
vald og segja vitni, að út úr húsinu
hafi verið borin allmörg lík. Sér-
sveitarmennirnir biðu með að ráðast
inn í Oberoi-Trident-hótelið vegna
gíslanna, sem þar voru á valdi
hryðjuverkamannanna, en réðust til
atlögu í gærkvöld og frelsuðu þá
nokkra tugi manna. Um miðnætti í
nótt var óljóst hversu margir gíslar
væru þar enn. Í svokölluðu Chabad-
húsi voru árásarmenn með gísla, þar
á meðal nokkra gyðinga, og tókst að
frelsa minnst átta þeirra í gær.
Sagðir hafa komið á
bátum til Mumbai
Haft er eftir indversku lögregl-
unni, að hópurinn hafi komið á bát-
um og lent skammt frá Indverska
hliðinu, sem reist var til heiðurs
Georg V. Bretakonungi og Maríu
drottningu 1928. Hefðu þeir verið
með þunga poka með sér og rænt
bílum, þar á meðal lögreglubíl, eftir
að í land kom. Segir indverska lög-
reglan, að sjö menn af þeim níu, sem
hafa verið handteknir, séu fiski-
menn og í gær fóru indverskir sjó-
liðar um borð í flutningaskip, sem
talið var að tengdist árásunum.
Hafði það komið til Mumbai frá Ka-
rachi í Pakistan. Upplýsti lögreglan
einnig, að fundist hefði poki með
mjög öflugu sprengiefni við veit-
ingahús skammt frá Taj Mahal og
þykir það benda til, að árásarmenn-
irnir hafi haft á prjónunum fleiri
hryðjuverk.
Einn hryðjuverkamannanna í
Oberoi-Trident-hótelinu sagði í gær
í viðtali við indverska sjónvarpsstöð,
að kröfur þeirra væru, að ofsóknum
gegn múslímum á Indlandi yrði
hætt og öllum íslömskum skærulið-
um í indverskum fangelsum sleppt.
Hryðjuverkin fordæmd
Þjóðarleiðtogar og aðrir frammá-
menn víða um heim hafa fordæmt
hryðjuverkin í Mumbai og lýst yfir
samstöðu með Indlandsstjórn. Bar-
ack Obama, verðandi Bandaríkja-
forseti, sagði, að atburðirnir sýndu
hve mikilvægt það væri fyrir Banda-
ríkjamenn að vinna með öðrum
þjóðum að því að uppræta hryðju-
verkasamtök. Dmítrí Medvedev,
forseti Rússlands, sagði árásirnar
atlögu gegn fólki um allan heim og
við sama tón kvað hjá mörgum öðr-
um, t.d. stjórnvöldum í arabaríkjum.
Á annað hundrað lét lífið
Hryðjuverkamenn réðust gegn fólki á hótelum, sjúkrahúsi, veitingahúsi og brautarstöð í Mumbai
Talið er að árásarmennirnir tilheyri fjölmennum hryðjuverkasamtökum íslamista í Pakistan
Reuters
Á ögurstundu Lögregluþjónar og óbreyttir borgarar leita skjóls fyrir utan Taj Mahal-hótelið í gær. Á sama tíma
heyrðust skothvellir innan úr byggingunni. Um miðnætti í nótt leit út fyrir að tekist hefði að frelsa alla gíslana.
+
,
-
. *./ .0. . .1 *.
.
2.,3
.2.+
, .0. .2.3 4 ./ .5
3
.
.0.16
*.1 1.. 1.2
,..+ . . .2.00
! " # $ %
&' ! (# ! 789: -;88<=>?.@.+A+7>
+A+7>
+ A + 7 >
* + , -
(
% !.
/ -!
# $
+.$
+>->?>- ?>
-B?>9
( $$
#. / &
,01 23456
1 ($$
C .>,.1 1
C 5
4
=
. 5 .1 1
1.
4
C , 1
-4
4
4
C .85
*+7 + +!
8 % $ 7 )
.+
.9 +
& ! $!7
.D,
: !% $
; $ + %# !!
$< !7
Í HNOTSKURN
» Múslímar á Indlandi eruum 130 milljónir en þeim
finnst sem þeir séu settir skör
lægra en hindúar, sem eru í
miklum meirihluta.
» Margoft hefur komið tilblóðugra átaka á milli
trúarhópanna, til dæmis í Guj-
arat-ríki 2002 þegar að
minnsta kosti 2.000 manns
voru höggnir, skotnir og
brenndir inni. Voru það að-
allega múslímar.
» Íslamistar, oft með náintengsl við hryðjuverka-
samtök í Pakistan, þar á meðal
við al-Qaeda-hryðjuverka-
samtökin, hafa staðið fyrir
mörgum hryðjuverkum á Ind-
landi.
TAJ Mahal-hótelið í Mumbai, eitt
helsta skotmark hryðjuverkamann-
anna, er þjóðardjásn og hafði mikið
táknrænt gildi í sjálfstæðisbaráttu
Indverja. Það var indverski iðnrek-
andinn Jamsetji N. Tata, sem lét
reisa það árið 1903, og sagt er, að það
hafi hann gert eftir að honum var
meinaður aðgangur að hóteli vegna
þess, að hann var ekki Evrópumaður.
Hótelið er rétt við höfnina en það
vekur athygli, að framhlið þess veit
ekki að henni, heldur inn til landsins.
Töldu margir, að einhverjum mistök-
um væri um að kenna en svo er ekki.
Þetta var beinlínis gert í óvirðing-
arskyni við Breta og sem stuðnings-
yfirlýsing við indverska þjóðern-
issinna.
Árás íslamista á Taj Mahal er ekki
síður táknræn því að það hefur verið
áningarstaður innlendra og erlendra
frammámanna. Í indverskum fjöl-
miðlum hefur árásinni á það verið líkt
við árásina á Tvíburaturnana í New
York.
Reynt að
tortíma
þjóðardjásni
Reuters
INDVERSKIR sérsveitarmenn
handtóku í nótt að staðartíma þrjá
menn á Taj Mahal-hótelinu í
Mumbai sem taldir voru tilheyra
hryðjuverkasamtökunum Lashkar-
e-Taiba, einum stærstu öfga-
samtökum íslamista í Suður-Asíu.
AFP-fréttastofan greindi frá
þessu en áður höfðu fjölmiðlar sagt
frá því að árásarmennirnir kölluðu
sig „Deccan-stríðsmennina“ og
virtist það vísa til Deccan-
hásléttunnar í Suður-Indlandi.
Aðrir hópar, sem einnig leggja
áherslu á indverskan uppruna sinn,
hafa staðið fyrir mörgum hryðju-
verkum á síðustu tveimur árum.
Í nýlegri skýrslu bandaríska ut-
anríkisráðuneytisins segir, að 2.300
manns hafi fallið í hryðjuverka-
árásum á Indlandi á síðasta ári.
Slíkar árásir eru því hvergi algeng-
ari en þar.
Talið er, að hryðjuverkamenn-
irnir hafi komið til Mumbai á bátum
og nákvæm skipulagning árásanna
vekur grunsemdir um tengsl þeirra
við al-Qaeda-hryðjuverkasamtökin.
Það styður það líka, að þeir leituðu
sérstaklega að Bretum og Banda-
ríkjamönnum meðal hótelgesta.
Böndin
berast til
Pakistans
NICOTINELL
Fæst nú hjá okkur!
®Nicotinell
er samstarfsaðili
Krabbameinsfélagsins
Ártúnshöfða - Lækjargötu – Hringbraut – Háholti