Morgunblaðið - 28.11.2008, Qupperneq 23
þess að breyta stjórnun Giftar. Einn
stjórnarmanna lagði fram tillögur
um að ráða sérfræðinga til að greina
fjárfestingarkosti bæði á innlendum
og erlendum hlutabréfamörkuðum.
Þá voru einnig lagðar fram tillögur
um að selja hlut félagsins í fjárfest-
ingarfélaginu Exista, eða að minnsta
kosti að minnka hann verulega. Öðru
fremur til þess að dreifa áhættu í
eignasafni félagsins. Gengi bréfa í
Exista var í frjálsu falli á þessum
tíma. Samkvæmt heimildum Morg-
unblaðsins var rætt um að selja hlut-
inn í Exista á fjórum til átta vikum.
Helgi S. Guðmundsson sagði skyn-
samlegt að leita leiða til þess að
dreifa áhættu og vildi skoða tillög-
urnar betur, samkvæmt heimildum
Morgunblaðsins.
Þórólfur tók þá til máls og upplýsti
stjórnarmenn um að fyrir lægi
„óformlegt samkomulag við Exista“
um að selja ekki hlut Giftar í félag-
inu, a.m.k. ekki á árinu 2007. Var það
aðallega vegna þess að forsvarsmenn
Exista óttuðust áhrifin af sölunni ef
af henni yrði. Það myndi bæta gráu
ofan á svart.
Samkvæmt heimildum Morg-
unblaðsins lýstu stjórnarmenn sig
óánægða með þetta fyrirkomulag og
spurðu hvernig það hefði komið til að
þetta samkomulag var gert án þess
að aðrir stjórnarmenn hefðu verið
upplýstir um það. Var meðal annars
lagt til að stjórnarfundir færu fram
með styttra millibili til þess að ræða
mikilvæg mál þegar þau kæmu upp.
Deilt var á Þórólf á fundinum fyrir að
hafa gert þetta samkomulag. Hann
svaraði því til að það hefði verið gert
með hagsmuni félagsins að leið-
arljósi – en ítrekaði að endurskoða
mætti stöðuna eftir áramótin.
Staðan versnar enn
Eftir fyrrnefndan stjórnarfund
var staða Giftar orðin tvísýn.
Hremmingar á íslenskum hluta-
bréfamarkaði héldu áfram að leika
eignasafn Giftar grátt. Frá miðju ári
2007 og til ársloka sama árs tapaði
félagið rúmlega ellefu milljörðum af
eigin fé sínu. Átti tæplega 19 millj-
arða í lok árs en rúmlega 30 um mitt
ár. Í desember þetta ár ákvað Gift að
taka boði Kaupþings um að kaup
stóran hlut í bankanum sem áður var
í eigu fjárfestingafélagsins Gnúps.
Það félag var við það að komast í
þrot og voru bréfin tímabundið í eigu
Kaupþings áður en þau fóru í hendur
Giftar.
Þetta voru stór kaup sem fjár-
mögnuð voru með láni frá Kaup-
þingi. Samtals greiddi Gift um 20
milljarða fyrir hlutinn en samþykkti
jafnframt að selja eignir á móti fyrir
um tíu milljarða. Félagið seldi hins
vegar aldrei bréf nema fyrir u.þ.b.
6,5 milljarða samkvæmt heimildum
Morgunblaðsins. Það gerði kaupin í
desember enn meira íþyngjandi fyrir
félagið.
Eftir að kaupin voru frágengin, og
lánasamningar undirritaðir, komu til
umræðu innan stjórnar Giftar
ákvæði í lánasamningnum. Sam-
kvæmt því gat stjórn Giftar ekki selt
meira en 15 prósent af eignum sínum
nema með samþykki Kaupþings.
Þetta þýddi í raun að Gift gat ekki
selt sínar stærstu eignir, í Exista og
Kaupþingi, nema með samþykki
Kaupþings. Samkvæmt heimildum
Morgunblaðsins deildu stjórn-
armenn um þessa ráðstöfun og
heimtuðu svör frá Þórólfi hvers
vegna þetta ákvæði var sett inn í
lánasamninginn. Samkvæmt heim-
ildum Morgunblaðsins var það ekki
inni í drögum að lánasamningi sem
kynnt voru fyrir stjórn Giftar áður
en gengið var frá samningnum.
Eftir kaupin á hlutnum í Kaup-
þingi hallaði hratt undan fæti. Á
rúmlega tveimur mánuðum lækkaði
virði hlutarins í Kaupþingi um þrjá
milljarða að markaðsvirði. Þá þegar
var orðið ljóst að félagið væri komið í
vanda og væri líklega búið að tapa
öllu eigin fé sínu ef staðan versnaði
enn. Það gerðist.
Gengi hlutabréfa í eignum Giftar
hélt áfram að lækka. Þó ekki eins
mikið hlutfallslega í Kaupþingi eins
og í öðrum eignum. En í ljósi þess
hversu stóran hlut Gift átti í Kaup-
þingi mátti félagið ekki við frekari
lækkunum á Kaupþingsbréfunum. Í
febrúar var staðan orðin slæm. Hlut-
urinn í Exista hafði lækkað um tæp-
lega 70 prósent á innan við ári.
Þrýstingur stjórnarmanna á Þórólf
hélt áfram. Sérstaklega voru uppi
kröfur um að starf félagsins, og þá
sérstaklega umsjón með eignum
þess, væri sett í faglegri farveg. Sér-
fræðingar yrðu kallaðir að því starfi
með endurskiplagningu eignasafns-
ins í huga. Samkvæmt heimildum
Morgunblaðsins tók steininn úr þeg-
ar Helgi S. Guðmundsson snerist
gegn Þórólfi, en hann hafði fram að
þessu verið einn af hans nánustu
bandamönnum, í gegnum súrt og
sætt í starfi Samvinnutrygginga. Í
kjölfarið hætti Þórólfur í stjórn fé-
lagsins án skýringa. Í lok febrúar á
þessu ári var því félagið án stjórn-
arformanns og með skuldir nokkuð
umfram eignir.
Sigurjón Rúnar Rafnsson, aðstoð-
arkaupfélagsstjóri í Skagafirði og
nánasti samstarfsmaður Þórólfs,
varð fljótlega í kjölfarið formaður
stjórnar Giftar. Hann hafði setið í
stjórn Exista um nokkurt skeið og
þekkti því vel hagsmuni stærstu
eigna Giftar. Togstreitan innan
stjórnarinnar skánaði lítið við komu
Sigurjóns Rúnars samkvæmt heim-
ildum Morgunblaðsins. Áfram var
deilt um óskilvirka stjórnun, lítið
samráð við stjórnarmenn og hvernig
skyldi bregðast við stöðunni sem
upp væri komin. Stjórnarmenn
þrýstu á um að félagið yrði að selja
eignir til þess að bjarga því sem
mögulega væri hægt að bjarga.
Í höndum annarra
Það gerðist ekki þar sem félagið
var í raun „algjörlega í höndum
Kaupþings og Exista“ svo vitnað sé
til orða heimildarmanns Morg-
unblaðsins. Gift var – og er enn –
með veð í bréfum félagsins í Kaup-
þingi. Í greinargerð sem stjórnin
sendi skilanefnd Eignarhaldsfélags
Samvinnutrygginga 25. nóvember
síðastliðinn kemur fram að ólíklegt
hefði verið að Gift hefði fengið leyfi
til þess að selja bréfin. Í grein-
argerðinni segir orðrétt: „Fyrr hefði
bankinn tekið sjálfur bréfin og þar
með gjaldfellt það sem út af stæði
ótryggt og félagið hefði þar með ver-
ið komið í uppnám. Verð á bréfum í
Exista hafði lækkað það mikið að
þau voru verulega undir innra virði
félagsins og því afar óhagkvæmt að
selja þau auk þess sem kauphliðin
var varla til staðar og því má nánast
fullyrða að bréfin hefðu hrunið í
verði.“
Í greinargerðinni segir enn frem-
ur að kaup félagsins á hlutunum í
Kaupþingi í desember í fyrra hafi
verið „stærri biti en félagið réð við“.
Þá kemur fram í greinargerðinni að
stjórnin hafi metið það svo að sala á
hlutum félagsins á undanförnum
mánuðum hefði „ekki bara haft al-
varlegar afleiðingar fyrir aðstand-
endur Giftar heldur markaðinn í
heild.“
Ekkert eftir til skiptanna
Átakasamir mánuðir í stjórnartíð
Giftar enduðu illa. Þegar Fjármála-
eftirlitið tók yfir íslensku bankanna
þrjá þurrkuðust eignir Giftar í
skráðum félögum að miklu leyti út.
Þetta setti áætlanir um að slíta fé-
laginu og skipta hlutafé félagsins
milli þeirra sem rétt ættu til þess í
uppnám. Rúmlega 50 þúsund lög-
aðilar, einstaklingar, fyrirtæki og
sveitarfélög, áttu rétt til þess að fá
hlutafé í félaginu. Réttindi hvers og
eins voru misjafnlega mikil en hlutur
Samvinnusjóðsins var þó stærstur,
eða milli 30 og 40 prósent af heild-
inni. Átökin í stjórninni á und-
anförnu ári eru meðal annars til-
komin vegna þess að hluti
stjórnarmanna vildi vinna hratt að
því að slíta félaginu, á meðan aðrir
töldu skynsamlegt að verja eignir fé-
lagsins í samstarfi við stjórnendur í
stærstu félögunum sem Gift átti hlut
í. Eftir að forræði yfir sölu eigna fór
að mestu úr höndum stjórnarinnar,
til Kaupþings, í desember 2007
reyndist nær útilokað fyrir stjórnina
að selja eignir til þess að gæta hags-
muna þeirra sem í raun áttu hlutafé
félagsins. Það er tryggingartaka hjá
Samvinnutryggingum á árunum
1987 til 1989 og einnig þeirra sem
keyptu brunatryggingu fyrir hús-
næði hjá Brunabótafélagi Íslands á
árunum 1992 og 1993. Eignirnar
„brunnu“ þannig inni í félaginu.
C+ 4
*
01 !02- 3) 45)
6*)
*,+- 7 -8
4
,)
M
5)
!) 4 ,+- % 2<
4
% 2 )
2. 0
.4
2.4
.4
$ - !)
"
C '+) &M
&
% 4 % 2 - %+ =
3)/4
% 2 )
)'
! !&))"
) %$
!$)
)# #")%"
)#!!"')
&&'(&$&
'"%
$'!(!
(""$$)'
!%)!(#
! """"
) """
#) ""
)$'&
)""""
#"""""
!%""""
%'!
!"()'
$ %$!'
;
.2.0 .)""'
N ) '
. '
. N
8O
&&!
(*&!
' ( ! " # " $ % & '
GH
G
H
H
H
J
H
H
H
H
5/ 4
4 ) 3
G
P )
+P
;6 4
4 ) 3
G
P )
+P
' ( ! " # " $ % & '
Fréttir 23VIÐSKIPTI | ATVINNULÍF
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. NÓVEMBER 2008