Morgunblaðið - 28.11.2008, Page 26

Morgunblaðið - 28.11.2008, Page 26
26 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. NÓVEMBER 2008 Einar Sigurðsson. Ólafur Þ. Stephensen. Forstjóri: Ritstjóri: STOFNAÐ 1913 Útgefandi: Árvakur hf., Reykjavík. Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal. Útlitsritstjóri: Árni Jörgensen. Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á slóðinni http://morgunbladid.blog.is/ Til að byggjaupp trúverð-ugri hluta- bréfamarkað á Ís- landi þarf að tryggja betur vernd smærri hluthafa gagnvart ráðandi hlut- höfum. Að öðrum kosti verða al- menningshlutafélög ekki nema að litlu leyti í eigu almennings. Jón Steinsson, lektor í hag- fræði við Columbia-háskólann í New York, tekur dæmi af því hvernig smærri hluthafar hafa verið hlunnfarnir í viðskiptum tengdra aðila í Morgunblaðinu í gær. Það eigi við þegar stórar eignir eða jafnvel heilu fyr- irtækin stoppi stutt við í eign- arhaldsfélögum fjárfesta áður en þau séu seld áfram til al- menningshlutafélaga með mikl- um hagnaði. Jón segir lagaumhverfið á Ís- landi sérstaklega veikburða þegar kemur að vernd litlu hlut- hafanna og lánardrottna gegn óeðlilegum viðskiptaháttum ráðandi hluthafa. Máli sínu til stuðning vísar hann í sam- anburðarrannsókn á lagahöml- um varðandi viðskipti tengdra aðila sem birt var á þessu ári. Í henni kemur fram að lagaum- hverfi á Íslandi er mun hag- stæðara fyrir þá sem vilja stunda óeðlilega viðskiptahætti en til dæmis í Bandaríkjunum og Bretlandi. Í hlutafélagalögum kemur fram að stjórn og framkvæmdastjórn félags megi ekki gera neinar þær ráðstafanir sem bersýnilega eru fallnar til þess að afla ákveðnum hluthöfum eða öðrum ótilhlýðilegra hags- muna á kostnað annarra hlut- hafa eða félagsins. Hingað til hefur lítið eftirlit verið með að þessum lögum sé fylgt. Vissulega hafa einstakir hluthafar getað leitað réttar síns fyrir dómstólum telji þeir á sér brotið. Það er hins vegar sjaldgæft. Nánast ógjörningur er að vinna slík mál hér á landi nema brotin séu mjög gróf. Við núverandi aðstæður er mikilvægt að stjórnvöld endur- skoði lög og reglur um hluta- félög og sérstaklega viðskipti tengdra aðila. Breyta þarf reglum þannig að minnihlutinn eigi auðveldara með að fara í mál við ráðandi hluthafa. Eft- irlit þeirra sem eiga hagsmuna að gæta er skilvirkara en þung- lamalegt opinbert eftirlitskerfi. Jón bendir á í grein sinni að hvatar ráðandi hluthafa í fyr- irtækjum landsins til að viðhafa óeðlilega viðskiptahætti hafi aldrei verið meiri en nú. Hér þarf að tryggja að hvorki skatt- greiðendur né smærri hluthafar séu hlunnfarnir. Og efla trú- verðugleika hlutabréfamark- aðarins. Hluthafar leita sjaldan réttar síns}Vernd smærri hluthafa Hvaða máliskiptir bankaleynd yfir viðskiptum gjald- þrota fyrirtækja? Skaðast viðskipta- hagsmunir þeirra? Nei. Hvers vegna er þá ekki hægt að birta hve háar upp- hæðir fyrirtæki tengd helstu eigendum bankanna höfðu fengið með útgáfu skuldabréfa sem peningamarkaðssjóðirnir keyptu og hvernig og hvenær sú fjárfesting kom til? Glitnir birti þessar upplýs- ingar. Það hefur leitt af sér mikla umfjöllun, enda upplýst- ist til dæmis að bankinn átti fyrirtækjaskuldabréf í Stoðum, einum helsta eiganda bankans. Vilhjálmur Bjarnason, að- junkt í Háskóla Íslands, segir ekkert mál að kaupa banka sé hægt að fjármagna kaupin með peningum í bankanum. Ákvörðun Glitnis um að birta upplýsingarnar varpaði ljósi á sjóð 9 einan. Tap þeirra spari- fjáreigenda og sveitarfélaga sem höfðu keypt í peninga- markaðssjóðnum voru tæp 15 prósent, eins og hjá Kaupþingi. Tap þeirra sem keyptu í ís- lenska sjóði Landsbankans var rúm 30 prósent. Sveitarfélagið Hornafjörður fékk að vita um samsetninguna á sjóði Landsbank- ans í gegnum síma. Hornfirðingar seldu og sögðu bankann hafa keypt fyrirtækja- skuldabréf af Sam- son, kjölfestufjárfesti bank- ans. Nú eru bæði bankinn og Samson gjaldþrota. Þingmaðurinn Atli Gíslason segir að eigendur bankanna virðist hafa látið peningamark- aðssjóðina kaupa í sínum eigin fyrirtækjum skömmu fyrir hrun þeirra, en selja í traustari fyrirtækjum. Glitnir vísar í opna árshlutareikninga sjóð- anna til að hrekja orðróminn. Kaupþing og Landsbanki vísa ásökunum á bug, en enn er bókhaldinu haldið lokuðu. Vilja stjórnendur bankanna – nýrra eða gamalla – ekki hrekja ásakanir þingmannsins með óyggjandi hætti? Eða geta þeir það ekki? Mælt hefur verið fyrir frum- varpi um nefnd sem rannsaki aðdraganda og orsakir falls bankanna. Nefndin má aflétta leyndinni og á að gera það. Jafnvel þótt ekkert saknæmt hafi gerst í peningamark- aðssjóðum bankanna á fólk, sem tapaði sparnaði sínum, rétt á að fá að vita hvað varð um peninga þess. Vilja stjórnendur bankanna ekki hrekja ásakanir þingmannsins? } Upplýsum leyndarmálið Þ egar ég heyrði fyrst um George W. Bush, sem færa má rök fyrir að sé hataðasti maður heims nú um stundir, var það á afar já- kvæðum nótum. Þetta var áður en hann hóf kosningabaráttu sína til að verða forseti Bandaríkjanna. Sýnd var frétt í sjón- varpsfréttum RÚV þar sem talað var lofsam- lega um þennan mann sem margir bentu á sem hugsanlegan frambjóðanda Repúblik- anaflokksins. Bent var á að Bush væri sér- staklega alþýðlegur náungi sem kynni spænsku og myndi því eiga auðvelt með að ná til spænskumælandi kjósenda. Kannski var Bush betri maður þá eða kannski réð hann ekki við starf sitt sem forseti. Í dag hafa alla- vega flestar fregnir af honum neikvæðan blæ. Hann er álitinn heimskur og siðlaus pabbastrákur. Fáum sögum fer af spænskukunnáttu hans. Svo eru það mennirnir sem fjölmiðlar nefndu útrás- arvíkinga. Þegar orðið var fundið upp var hugsunin á bak við það að reyna að ná utan um þá klikkuðu hrifn- ingu sem fólk hafði á þessum mönnum. Nú geta menn hinsvegar ekki beðið eftir að fá útrás á umræddum vík- ingum og lofið hefur breyst í skammir og hneykslun. Þetta hefur gerst á skömmum tíma. Jafnvel fyrr á þessu ári notaði B&L orðið „útrásarvíkingur“ í auglýs- ingar fyrir Range Rover-bíla. Í dag væri það ávísun á að umboðið yrði fyrir eggjakasti. Margir hafa fallið gríðarlega í áliti. Bjarni Ármannsson, sem stóð meira að segja eins og klettur í náðinni hjá þjóðinni í gegnum REI-málið, er núna einn hataðasti maður landsins. Honum er í dag lýst sem slóttugum svikahrappi og landráðamanni en var áður talinn hógvær heimilisfaðir með hlaupadellu sem lenti í því að verða fjár- málaséní og snillingur og þar af leiðandi með tuttugu milljónir í mánaðarlaun. Ég fell sjálfur í þessa gryfju. Ég var meira að segja hrifinn af George Bush. Fannst hann sannur og alþýðlegur. Ég elskaði hvernig rauðsokkur og menningarvitar engdust um af stressi þegar hann hóf upp raust sína og otaði sínum kjarnorku- sprengjutakkaputta á ögrandi hátt í allar áttir. Mér fór þó að hætta að lítast á blikuna þegar ég tók eftir því að öll framkoma Bush er eins og hótun, líka þegar hann kveikir á jólatrjám eða heimsæk- ir leikskóla. Núna hata ég Bush og elska Obama út af lífinu. Það virðast allir gera það. Ætli maður endi ekki á að hata hann líka. Sumir segja að við eigum ekki að hata. Þvílík von- brigði. Það er falleinkunn í mannfræðum 103. Við hætt- um ekki að hata fyrr en við hættum að elska. Hatrið er tilfinning sem grípur um sig þegar manns eigin sekt- arkennd er komin í spilið. Maður hatar bara þá sem maður getur elskað. Annað nefnist vanþóknun og er allt annað. Ekki vera hrædd við að hata. Hötumst aðeins. Það jafnast hvort eð er ekkert á við sáttakossa. bergur.ebbi.benediktsson@gmail.com Bergur Ebbi Pistill Að elska og hata Ólga og stéttastríð í Landi brosanna FRÉTTASKÝRING Eftir Boga Þór Arason bogi@mbl.is M ótmælin og pólitísku ólguna í Taílandi að undanförnu má rekja til stéttabaráttu og togstreitu milli „gömlu yfirstéttarinnar“ í Bangkok og stjórnmálamanna sem njóta stuðnings alþýðunnar í fátækari héruðum lands- ins. Laustengd samtök íhaldssamra afla, PAD, Þjóðarfylking lýðræðis, standa fyrir mótmælunum. Þau efndu einnig til fjöldamótmæla á götum Bangkok fyrir tveimur árum og þau urðu til þess að her landsins steypti auðkýfingnum Thaksin Shinawatra af stóli forsætisráðherra. Thaksin komst til valda árið 2001 með miklum stuðningi kjósenda úti á landsbyggðinni, einkum í norðaust- urhluta landsins, á svæði sem nefnist Isaan. Hvað tungumál og menningu áhrærir er þetta svæði tengdara grannríkinu Laos en Bangkok og ná- grenni. Margir íbúar höfuðborg- arsvæðisins hafa litið niður á Isaan- búa sem telja sig hafa verið hlunn- farna í stjórnmálunum þar til Thaksin kom til sögunnar. Thaksin nýtur enn mikilla vinsælda í Isaan og íbúar svæðisins segja hann hafa bætt lífskjör þeirra með því með- al annars að sjá þeim fyrir ódýrri heilsugæslu, auk þess sem þorp í fá- tækum héruðum hafa fengið hagstæð lán. Íhaldsöflunum í Bangkok, sem höfðu haldið um stjórnartaumana í áratugi, stóð hins vegar ógn af Thaks- in og stuðningsmönnum hans. Sakaður um spillingu Þótt Thaksin hafi bætt kjör fátækra landsmanna er hann ekki með geisla- baug því hann hefur verið sakaður um spillingu, frændhygli, valdhroka og mannréttindabrot. Eftir að Thaksin var steypt af stóli stofnuðu bandamenn hans nýjan flokk, Þjóðaraflsflokkinn (PPP), sem sigraði í þingkosningum fyrir tæpu ári. PAD-samtökin saka flokkinn um að hafa tryggt sér sigur með atkvæða- kaupum og hófu nýja hrinu mótmæla í ágúst til að koma flokknum frá völd- um. Stjórnlagadómstóll landsins úr- skurðaði síðan í september að eft- irmanni Thaksins, Samak Sundaravej forsætisráðherra, bæri að segja af sér vegna þess að hann hefði gerst sekur um stjórnarskrárbrot og alvarlegan hagsmunaárekstur þegar hann þáði laun fyrir matreiðsluþátt í sjónvarpi. PAD-samtökin töldu að Samak væri strengjabrúða Thaksins. Ekki tók betra við eftir afsögn Samaks því stjórnarflokkurinn valdi mág Thaks- ins, Somchai Wongsawat, í forsætis- ráðherraembættið. PAD-samtökin vilja ekki aðeins að Somchai segi af sér heldur einnig að stjórnarskránni verði breytt. Þau halda því fram að lýðræði að vest- rænni fyrirmynd hafi aðeins leitt til spillingar, atkvæðakaupa og dug- lausra ríkisstjórna í Taílandi. Sam- tökin vilja að aðeins 30% þingmanna landsins verði þjóðkjörin en aðrir skipaðir á þingið með einhverjum hætti. Niðurstaðan yrði líklega sú að skriffinnar og bandamenn hersins stjórnuðu landinu. PAD-samtökin hafa einnig lýst sér sem verndara áttræðs konungs Taí- lands, Bhumibols Adulyadejs, sem nýtur mikilla vinsælda í landinu. Þau saka bandamenn Thaksins um að ætla að stofna lýðveldi í „Landi bros- anna“, eins og Taíland hefur verið kallað, en stjórnarflokkurinn neitar því. AP Klofin þjóð Stjórnarandstæðingur með mótmælaspjald á alþjóðaflugvelli í Bangkok sem hefur verið lokaður vegna mótmæla síðustu tvo daga. UTANRÍKISRÁÐUNEYTIÐ hefur ráðið Íslendingum frá því að fara til Taílands vegna mótmælanna og ráðlagt þeim, sem eiga bókaðar ferðir þangað, að hafa samband við ferðaskrifstofur sínar. Íslendingar í Taílandi eða nákomnir ættingjar þeirra geta haft samband við borg- araþjónustu utanríkisráðuneytisins á skrifstofutíma, neyðarþjónustu ráðuneytisins eftir lokun í síma 545 9900 eða sent tölvupóst á netfangið: borgarathjonusta@utn.stjr.is. Flugvellir í Bangkok hafa lokast vegna mótmælanna og er það mikið áfall fyrir ferðaþjónustuna í land- inu. Orðrómur hefur verið á kreiki um að her Taílands hyggist taka völdin í sínar hendur vegna ólg- unnar. Láti herinn til skarar skríða yrði það nítjánda valdarán hans frá árinu 1932 þegar komið var á þing- bundinni konungsstjórn. FERÐAFÓLK VARAÐ VIÐ ››

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.