Morgunblaðið - 28.11.2008, Qupperneq 30

Morgunblaðið - 28.11.2008, Qupperneq 30
30 Umræðan MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. NÓVEMBER 2008 Morgunblaðinu hefur borist mikill fjöldi greina og pistla frá lesendum um ástandið í efnahagsmálum landsins. Margir höfundar lýsa áhyggjum sínum af þróun mála og margir gera tillögur um leiðir út úr efnahagsvanda þjóð- arinnar. Morgunblaðið leggur áherslu á að gera þessum umræðum góð skil í blaðinu á næstunni. Skoðanir fólksins Þetta mætti gera með því að ráða tímabundið einhvern þekktan fjármálasnilling í stól seðlabankastjóra. Leitin ætti ekki að taka langan tíma... ’ AÐILAR frá IMF hafa verið hér bæði fyrir og eftir fall bank- anna. Ábyrgð þeirra er mikil þar sem þeir vita nákvæmlega hversu ástandið hér er gríð- arlega viðkvæmt fyrir þeim tíma sem það tek- ur að afgreiða lán til Íslendinga. IMF á að teljast þekktur fyrir að taka hlutlausar ákvarðanir um lán óháð pólitík og utanaðkomandi hagsmunum. Annað hefur komið á daginn þar sem áhrifaaðilar innan sjóðsins hafa nú beitt honum sem vopni í þágu eigin hagsmuna. Ótrúlegast af öllu er að þetta hefur verið staðfest opinberlega af talsmanni sjóðsins. Þessi afgreiðsla sjóðsins á umsókn Ís- lendinga er ekkert annað en hneyksli og getur orðið honum dýrkeypt þar sem IMF hefur fyr- ir vikið misst hlutleysi sitt og um leið trúverð- ugleika á alþjóðavettvangi. Þegar fram líða stundir væri ekki úr vegi að Íslendingar segðu sig úr sjóðnum og hefðu forystu um að stofan nýjan alþjóðlegan sjóð til höfuðs IMF sem væri laus við slæma aðgerðasögu og fá til liðs við sig ósáttar þjóðir innan IMF, sem vilja m.a. hreinsa sig undan stimpli pólitískrar spillingar. Nýr sjóður gæti t.d. heitið GIMF (Global In- dependent Monetary Fund). Er IMF óþarfur fyrir Íslendinga? Ef lánið yrði ekki tekið frá IMF fæst heldur ekki það traust í peningamálin sem fylgir að- gerðaplani þeirra. Það er því enn mikilvægara að endurheimta traust Seðlabanka Íslands til þess að hægt sé yfirstíga núverandi erfiðleika. Þetta mætti gera með því að ráða tímabundið einhvern þekktan fjármálasnilling í stól seðla- bankastjóra. Leitin ætti ekki að taka langan tíma þar sem hægt er að bjóða honum upp á ofurlaun í stað launa núverandi 3 bankastjóra og töluverða athygli í ljósi aðstæðna. Seðlabankinn hækkaði nýverið stýrivexti upp í 18% til þess að sporna við útstreymi gjald- eyris þegar krónan verður sett á flot. Afleið- ingarnar gætu riðið miklum fjölda einstaklinga og fyrirtækja að fullu. Útgefendur jöklabréfa og samskonar bréfa eru hins vegar tiltölulega þröngur hópur sem ætti að vera auðvelt að nálgast, þrátt fyrir að kaupendur þeirra séu margir. Hvers vegna er ekki samið við þennan hóp um að frysta og gengistryggja bréf þeirra miðað við áætlað jafnvægisgengi eftir 12-18 mánuði, þannig að þau kæmu til innlausnar í skömmtum að þeim tíma liðnum? Með þessum hætti væri hægt að minnka núverandi láns- fjárþörf um 2-300 milljarða og jafnvel meira, eða jafnvirði lánsins frá IMF. Enginn vill tapa peningum, en það er ljóst að þessir aðilar munu tapa miklum peningum ef þeir fara út á genginu eins og það er í dag og enn meira þegar krónan fer á flot aftur, vegna þess gengisfalls sem búist er við þegar krónunni verður fleytt. Jöklabréfaútgefendur/-eigendur geta því lágmarkað skaðann með því að semja, en Íslendingar kaupa aftur á móti tíma og frelsa um leið einstaklinga og fyrirtæki úr heljargreipum hávaxtastefnunnar. Ekki er víst að það næðust samningar við alla, en með þessari aðferð væri gjaldeyrisútstreymi vegna jöklabréfanna breytt úr óþekktri stærð í þekkta stærð, sem er vægast sagt mikilvægar upplýsingar og um leið er tengingin milli stýrivaxta og gjaldeyrisútstreymis slitin. Fyrir vikið mætti lækka stýrivexti niður í 8% til að byrja með og koma þannig í veg fyrir fjölda- gjaldþrot fyrirtækja og heimila. Aðgerðin kostar eitthvað, en sá kostnaður er smár sam- anborið við kostnaðinn sem hlytist af fjölda- gjaldþroti. Guðlaugur Ö. Þorsteinsson, rekstrarverkfræðingur. Er lánið fyrir framan nefið á okkur? KÆRU starfsmenn Trygging- arsjóðs innstæðueigenda og fjár- festa! Kæru Íslendingar! Við erum stofnendur vefsíðunnar http://kaupthing-edge.helft-uns.de/ Með þessum línum langar okkur að koma á framfæri þakklæti okkar til Íslendinga og alveg sérstaklega til starfsmanna Tryggingarsjóðs innstæðueigenda og fjárfesta. Sím- tölum okkar þangað, sem hafa verið fjölmörg, hefur alltaf verið svarað kunnáttusamlega og af sérstakri vel- vild, sem ekki verður sagt um stjórn- völd okkar. Herra Karlheinz Bellmann var á Íslandi og þar tók almenningur hon- um afar vingjarnlega, sem snart okkur mjög. Þessi hlýhugur og und- irtektir fjölmiðla studdu framgang máls okkar verulega áleiðis og eiga örugglega sinn þátt í að endanleg niðurstaða fékkst. Þessu bréfi er ætlað að færa ís- lensku þjóðinni opinberlega þakkir okkar. Við vonum að Ísland komi sterk- ara út úr kreppunni. Við vildum fús- lega liðsinna ykkur, en það reynist okkur þó ekki unnt. Engu að síður vonumst við til að komast einhvern tíma í frí til Íslands og geta þannig endurgoldið lítinn hluta af vinsemd ykkar og hjálpsemi. Kærar kveðjur fyrir hönd vinnu- hópsins. Þakkarbréf til Ís- lendinga vegna Kaupþingsmáls- ins í Þýskalandi Dirk Schwarz Weinbergstraße 84 73262 Reichenbach/Fils Telefon +49 176-64012490 Telefax +49 7153-924861 E-Mail: ke@helft-uns.de ÍSLENDINGAR búsettir erlendis eins og ég erum stöðugt í samræðum við nágranna, vini, vinnufélaga og aðra um ástandið á Íslandi og ímynd Íslands. Hvergi hef ég mætt í Svíþjóð neinni andúð á Íslendingum vegna bankakreppunnar. Þvert á móti hef ég mætt gífurlegum áhuga á ástandinu og landi og þjóð. Ef eitthvað er, þá mæti ég frekar samúð Svía með land- anum. Í Svíþjóð eru um 5 þúsund Íslendingar og það skaðar meir orðstír landsins hér, þegar forsetinn lýsir því yfir, að Svíar séu óvinveittir Íslendingum en að nokkrir bankar falla. Svíar sem og aðrir sem taka virkan þátt í alþjóða fjármálageiranum hafa reynslu af því, að stórfyrirtæki geta fallið, bankar orðið gjaldþrota og að ýmsir auðjöfrar fara ekki alltaf eftir lögum. Svíar hafa einnig reynt, hversu dýrt það getur orðið að halda uppi gildi krónunnar gegn digrum sjóðum spákaupmanna með margfalt meira fjármagn milli handanna en sjálft sænska ríkið er með á fjárlögum. Þegar ekki dugði að verja krónuna med 500% vöxtum árið 1992 var gengið látið fljóta. Ég þekki marga Breta og enginn þeirra hefur borið Ísland neikvæðum orðum, þrátt fyrir erfiðleika margra þar í landi sem völdu að ávaxta fé sitt hjá Icesave og Kaupþingi. Frekar hefur verið rætt, að flestir þeir sem ávaxta fé annarra liggja undir álagi að fá sem skjótastan gróða. Slík sjónarmið stjórna vali á ávöxtunarleiðum sem ófáar enda í afleiðinga- og skortspákaupum. Hér eru fáir undanskildir, hvorki einstaklingar, lífeyr- issjóðir, sveitarstjórnir né bankar. Ég hef í gamni sagt, að tvennar dyr séu á verðbréfamörkuðum: Dyr hollra fjárfestinga í heilbrigðum fyrirtækjarekstri og dyr að spilavíti. Ef til vill eru dyr nr. 2 þær, sem stoppa einn mesta auðkýfing veraldar, Ingvar Kamprad eiganda og stofnanda IKEA, í því að gera IKEA aðgengilegt á verð- bréfamörkuðum. Hann útskýrði í viðtali, að IKEA gæti ekki fjárfest til langtíma í löndum eins og t.d. í Rússlandi, hefði IKEA verið á verðbréfamarkaðinum. Munur er á ráðnum, bónusborguðum framkvæmda- stjórum og raunverulegum athafnamönnum sem fylgja kalli sínu og hafa fundið heilbrigða viðskiptahugmynd sem virkar. Ekki er víst í nýjungabriminu, þegar lítil þjóð sækir í fyrsta skiptið borubrött á alþjóðafjármálamið, að allir þáttakendur hafi til fulls gert sér grein fyrir áhættu- stigi róðursins. Hér hafa fjármálastofnanir og bankar skyldum að gegna, að upplýsa fjárfesta um mismunandi áhættur og ólík mið. Ábyrgð hvílir á fjárfestum að skilja hverja áhættu er verið að taka og sá sem meiri áhættu tekur getur bæði fengið skjótan gróða en líka stóran skell. Við skulum ekki eyða kröftum í að deila innbyrðis og finna sökudólga. Öll þjóðin þarf að standa saman og læra af þessu. Útrás víkinganna var einstakt afrek og nær allir með í bátnum. Illt yrði verra nú ef skipstjórinn yfirgæfi bátinn. Ríkisstjórnin okkar hefur unnið kraftaverk með lausn á lánsfjármagni og aðgerðaáætlun til að lyfta Ís- landi á ný á kreik. Ísland gæti orðið fyrsta ríkið í Evrópu sem nær sér að fullu eftir þennan djúpa alþjóða öldudal. Íslenska ímyndin stendur sig þótt fjármálakerfið þurfi að laga Gústaf Adolf Skúlason, ritari Evrópska smáfyrirtækjabandalagsins og formaður Sænska smáfyrirtækjabandalagsins. GREIN þessi er skrifuð í skugga ritskoðunar hjá Morgunblaðinu. Óvíst er hvort ráðamönnum blaðsins þóknast að birta greinina. Í skugga þeirra hamfara er yfir þjóðina hafa gengið á sviði fjármála verður ekki séð að neinar raunhæfar lausnir séu á leiðinni. Múgæsing fólks sem birst hefur í ýmsum myndum og fengið margs konar ímyndir hefur beinst að röngum forsendum. Ástandið á sviði fjármála í þjóðfélaginu er græðgi margra einstaklinga sem ekki vildu sjá klæðleysi útrás- arvíkinganna. Þeir voru klæðlausir eins og keisarinn sem átti að fá ný föt en fékk aðeins niðurlægingu. Varðandi lausnarorðið sem margur maðurinn hefur tekið sér í munn að skipta um gjaldmiðil og taka upp evru er skýjaborg sem leysist upp þegar sólin fer að skína. Fyrir sjálfstæða víkinga eins og Íslendinga skiptir engu máli hvaða gjaldmiðill er notaður. Við munum halda áfram að spila það fjár- hættuspil sem leikið hefur verið í íslensku þjóðfélagi undanfarna áratugi. Hluti þjóðarinnar er sjálftökulið á verðmætasköpun þjóðarinnar og er ekki reiðubúið til að samþykkja jöfnun lífskjara í þessu litla samfélagi. Kom þetta skýrt fram í 64.000.000 kr. launagreiðslum til eins af útrás- arvíkingunum. Aðrir íslenskir víkingar vilja einnig fá stóran bita af kök- unni og berjast grimmt til að ná sínum markmiðum. Aðrir þjóðfélags- þegnar fylgja svo á eftir í lífsgæðakapphlaupinu og endirinn verður að stjórnendur landsins hafa engin tök á að halda verðgildi þess gjaldmiðils sem við notum sem fast hlutfall af öðrum gjaldmiðlum. Í ljósi þessa skiptir engu máli hvort evra, dollar, þýsk mörk eða norsk króna verður gjaldmiðill. Við náum aldrei tökum á fjármálavandanum nema geta komið okkur saman um réttláta skiptingu hinnar svokölluðu þjóðarköku sem eru þau verðmæti er þjóðfélagið í heild sinni aflar. Það verður að afleggja misbeitingu stjórnvaldsins í landinu á útdeil- ingu verðmætanna og stöðva sjálftökuliðið í ríkisgeiranum. Ef við ekki getum komið okkur saman um hvaða tekjuskiptingarhlutfall eigi að vera á milli hinna ýmsu starfsstétta skiptir engu máli hvað gjaldmiðill okkar heitir. Frjálshyggjuliðið verður að sætta sig við að græðgi einstaklinga innan þeirra raða kemur í veg fyrir sátt í þjóðfélaginu. Á hinn bóginn verður að koma böndum á það lið sem telur sig geta fengið allt frá samfélaginu án þess að leggja nokkuð af mörkum. Ef það er rétt að komnir séu fram þrír ættliðir sem lifað hafa á samfélagsbótum og lifi viðunandi lífi með svartri vinnu sem íhlaup verður að stöðva slíkt. Svo lengi sem ekki er samstaða um skiptingu lífsgæða sem þjóðfélagið getur boðið upp á verð- ur barist um verðgildi gjaldmiðilsins. Íslenskur gjaldmiðill Kristján Guðmundsson, fv. skipstjóri. HVERS vegna líður mér eins og ég ætti að skammast mín fyrir eitthvað sem ég kom ekki ná- lægt? Kannski af því að ég er stoltur af því að vera Ís- lendingur, og það sem „við“ gerðum er hreinlega þjófnaður. En hvar eru þessir peningar? Eru þeir horfnir? Nei, það getur ekki verið, peningarnir eru einhvers staðar og það vita það allir. En hvar? Það er svo skrítið að þeir sem hafa tapað nokkrum milljörðum, þeir halda bara áfram eins og ekkert hafi í skorist, en venjulegt fólk, það missti allt sparifé sitt og jú það verður að halda áfram en eitthvað er öðruvísi hjá þeim, öryggið er farið og ævi- sparnaður horfinn. Allt var svo gull- tryggt, allir reikningar pottþéttir, Ís- land besta land í heimi og Danir og aðrir sem efuðust um ágæti útrásar okkar voru bara öfundsjúkir. Svo kemur á daginn að þetta var bara loft- bóla og bara svindl. Íslenskt mannorð svert af útrás- arsnillingum og hvað? Eigum við að láta þar við sitja eða reyna að höfða til betri vitundar þessara manna og biðja þá vinsamlegast að skila peningunum aftur? Tja, við gætum reynt það. Einnig er sá möguleiki að hætta að skipta við þessa aðila, bara að hætta að versla við fyrirtæki þeirra, sem reyndar þýðir að við yrðum að éta það sem úti frýs og hætta að tala í síma og bara horfa og hlusta á RÚV, senni- lega yrðum við að fara allra okkar ferða á reiðhjóli því þessir aðilar eiga nánast allar verslanir, síma og olíu- fyrirtæki á landinu, og meira til. En hvað er til ráða? Eigum við að ganga til kosninga í vor og kjósa? Hvað eigum við að kjósa, hverjum getum við treyst? Sjálfstæðisflokki, sem þurfti að halda blaðamannafund til segja að þeir væru að hugsa um að hugsa um að skipta kannski um skoð- un? Samfylkingu sem lofar okkur og stendur ekki við gefin loforð? Já eða framsóknarmenn sem er uppteknir við að stinga hver annan í bakið, svona svipað og Frjálslyndi flokk- urinn? Varla Vinstri græna, þeir væru örugglega bara á móti því. Hvað er þá til ráða? Nei, það þarf eitthvert nýtt afl, eitt- hvað annað en vina- og kunn- ingjapólitíkusa. Nýtt afl, það er nú bara svolítið flott nafn. Veldur hver á heldur Emil Gústafsson húsasmiður. Fréttir í tölvupósti

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.