Morgunblaðið - 28.11.2008, Page 40

Morgunblaðið - 28.11.2008, Page 40
40 Minningar MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. NÓVEMBER 2008 ✝ IngimundurGuðmundsson fæddist að Gufu- nesi í Mosfellssveit þann 14. febrúar 1925. Hann lést á hjúkrunarheim- ilinu Sóltúni 19. nóvember síðast- liðinn. Foreldrar Ingi- mundar voru hjón- in Guðmundur Sig- urðsson, f. 1.2. 1876, d. 12.1. 1940 og Helga Ein- arsdóttir, f. 3.3. 1902, d. 5.3. 1988. Systkini hans, samfeðra, eru Gróa Ágústa, f. 1896, d. 1989 og Falur Siggeir, f. 1910, d. 1962. Alsystk- ini Ingimundar eru Guðmundur (Ninni), f. 1926, d. 1927, Sig- urlaug, f. 1928, d. 1977 og Sigrún, f. 1931, d. 2003. Systir sammæðra er Elsa Dargeide, fædd 1943. Ingimundur kvæntist Kristrúnu Daníelsdóttur, f. 8.1. 1928, þann 15. maí árið 1955 en hún er dóttir son, f. 1981. 3) Daníel Gunnar, f. 1969, maki María Antonía Jón- asdóttir, f. 1974. Þeirra börn eru: a) Aníta Sonja, f. 1991, b) Brynja Karen, f. 1997, c) Katrín Ýr, f. 1998, d. 1998, d) Daníel Ingi, f. 2001, e) Rebekka Lind, f. 2002 og f) Katrín Ýr f. 2006. Ingimundur ólst upp í Reykja- vík og fór snemma að vinna fyrir sér við hin ýmsu störf hjá Reykja- víkurborg og síðar sem leigubíl- stjóri. Hann var bílstjóri í 14 ár hjá Vélasjóði ríkisins og flutti skurðgröfur um allt land. Eftir það fór hann að vinna hjá Steypu- stöðinni um nokkurra ára skeið og vann um tíma hjá Smurstöð Essó við Geirsgötu en frá árinu 1974 til ársins 1992 var hann bíl- stjóri hjá Strætisvögnum Kópa- vogs. Þegar Ingimundur lét af störfum dundaði hann sér í bíl- skúrnum og bónaði og þvoði bíla fyrir vini og kunningja. Eftir að Ingimundur veiktist var hann heima við til að byrja með, fór svo í dagvistun í Roðasali en síðasta árið var hann á hjúkrunarheim- ilinu Sóltúni í Reykjavík, þar sem hann lést. Útför Ingimundar fer fram frá Kópavogskirkju í dag og hefst at- höfnin kl. 13. Jarðsett verður í Garðakirkjugarði. hjónanna Daníels Ólafssonar, f. 1894, d. 1976 og Ragnheiðar J. Árnadóttur, f. 1890, d. 1982. Börn Ingimund- ar og Kristrúnar eru: 1) Ragnheiður, f. 1955, maki Sigurður G. Sveinsson, f. 1954. Börn þeirra eru: a) Sveinn Oddur, f. 1978, maki Erla Jóna Gísla- dóttir, f. 1982. Þau eiga tvær dætur. b) Þuríður Sigurrós, f. 1980, maki Guðjón I. Daðason, f. 1978. Þau eiga tvo syni. c) Kristinn Ingi, f. 1984, maki Erla Heiða Sverrisdóttir, f. 1988. Þau eiga tvo syni. 2) Guð- munda, f. 1959, maki Þórarinn B. Guðmundsson, f. 1959. Börn henn- ar og Hafsteins Sigurjónssonar, f. 1958, frá fyrra hjónabandi eru: a) Rúnar Örn, f. 1978, maki Una Björg Einarsdóttir, f. 1977. Þau eiga eina dóttur. b) Rakel Ösp, f. 1982, maki Reynir Örn Jóhanns- Tilvera okkar er undarlegt ferðalag. Við erum gestir og hótel okkar er jörðin. Einir fara og aðrir koma í dag, því alltaf bætast nýir hópar í skörðin. Og til eru ýmsir, sem ferðalagt þetta þrá, en þó eru margir, sem ferðalaginu kvíða. Og sumum liggur reiðinnar ósköp á, en aðrir setjast við hótelgluggann og bíða. En það er margt um manninn á svona stað, og meðal gestanna er sífelldur þys og læti. Allt lendir í stöðugri keppni’ um að koma sér að og krækja sér í nógu þægilegt sæti. En þó eru sumir, sem láta sér lynda það að lifa úti’ í horni, óáreittir og spakir, því það er svo misjafnt, sem mennirnir leita að, og misjafn tilgangurinn, sem fyrir þeim vakir. En mörgum finnst finnst hún dýr þessi hót- eldvöl, þó deilt sé um hvort hótelið sjálft muni græða. En við, sem ferðumst, eigum ei annars völ. Það er ekki um fleiri gististaði að ræða. Að vísu eru flestir velkomnir þangað inn, og viðbúnaður, er gestirnir koma í bæinn, og margir í allsnægtum una þar fyrst um sinn. En áhyggjan vex, er menn nálgast burtferðardaginn. Þá streymir sú hugsun um oss sem ískaldur foss, að allt verði loks upp í dvölina tekið frá oss, er dauðinn, sá mikli rukkari, réttir oss reikninginn yfir það sem var skrifað hjá oss. Þá verður oss ljóst, að framar ei frestur gefst né færi á að ráðstafa nokkru betur. Því alls, sem lífið lánaði, dauðinn krefst – í líku hlutfalli og Metúsalem og Pétur. (Tómas Guðmundsson.) Hafðu þökk fyrir allt og allt, þín eiginkona Kristrún. Hann pabbi er dáinn. Jæja, þá er þessari göngu lokið, elsku pabbi minn, hér á þessari jörð og vonandi hefur þú hitt allt þitt fólk, afa, ömmu, Sillu, Lillu, Fal, Gústu, Ninna og svo alla æskuvinina sem eru farnir, Pét- ur, Óla, Steina, Valla. Mikið gátuð þið nú skrafað og þá aðallega um bíla, ég man margar stundir þar sem þið sát- uð í eldhúsinu í hinum ýmsum veislum og þá hef ég nú grun um að aðalumræðuefnið hafi verið bílar og aftur bílar. Þú ert alinn upp í Reykjavík en fæddist á sveitabænum Gufunesi þar sem núna er Áburðarverksmiðjan en í æsku þú áttir aðallega heima í Þing- holtunum og þú þekktir gömlu Reykjavík eins og sjálfan þig og stundum sagðirðu að allt fyrir ofan Snorrabraut væri bara uppi í sveit. Ungur keyptir þú þinn fyrsta bíl og voru bílar alltaf þitt áhugamál og við þá vannst þú líka mestalla þín ævi. Annars eru mínar minningar í æsku eins og að þú hafir aldrei verið heima sem er að vissu leyti rétt því á sumrin varstu alltaf úti á landi að flytja skurð- gröfur hjá Vélasjóði og ég í sveitinni, en ekki var nú langt að fara í vinnuna því eftir að þið byggðuð húsið á Kárs- nesbrautinni þá var verkstæðið hjá Vélasjóði bara fyrir neðan og svo þeg- ar þú fórst að vinna hjá Strætó í Kópa- vogi þá var bærinn búinn að kaupa þetta sama hús fyrir SVK þannig að í sjálfu sér vannst þú lengi á sama stað. Ég á líka góðar minningar, pabbi minn, frá öllum útilegunum, fyrst í tjaldi og víða fóruð þið en ég sjaldnast því ég var hér fyrir norðan í sveit hjá afa og ömmu í Tungu. En eftir að við Siggi fórum að búa þá fórum við stundum með ykkur mömmu, þá vor- uð þið komin með tjaldvagn, hjólhýsi og svo síðast fellihýsið og mikið ofsa- lega fannst krökkunum mínum þá gaman að fara með afa og ömmu og fá að sofa í fellihýsinu og svo komuð þið á hverju sumri hingað að Hrófá eftir að ég flutti hingað og svo eignuðust þið litla húsið okkar og þá stoppuðuð þið oft lengi og þá til að dytta að ýmsu í húsinu. Aldrei mun ég heldur gleyma, elsku pabbi, hvað það var skelfilegt að horfa á bíómynd með þér. Annaðhvort varstu sofandi eða þú varst alltaf að spyrja: „Hvað er að gerast?“ og svo bara hló ég þegar ég nennti ekki að svara oftar. Þú hafðir líka gaman af dýrum og alltaf var gaman þegar þið komuð hvað Askja mín var ánægð og svo var nú líka hún Týra hans Daníels mikið hjá ykkur, hún dáði þig. Þú hafðir líka yndi af því að vinna í garð- inum ykkar mömmu á Kársnesbraut- inni og þá sérstaklega að trjánum en á síðustu árunum áður en þið selduð var garðurinn orðinn of stór fyrir ykkur, en mikið getum við sem eftir lifum verið stolt af þessum garði þó að ým- islegt hafi breyst þar hjá nýjum eig- endum. Jæja pabbi minn, ég hefði nú viljað geta komið oftar til þín en það er nú ekki auðvelt þegar maður er bóndi og þá sérstaklega á veturna, en allar minningarnar geymi ég í mínu hjarta og við Siggi, börnin okkar og langafa- börnin þökkum allar stundir á liðnum árum. Guð geymi minningu þína, elsku pabbi minn. „Drottinn er minn hirðir, mig mun ekkert bresta.“ Þín dóttir Ragnheiður og þinn tengdasonur Sigurður. Pabbi minn, litla stelpan þín veit ekki hvar hún á að byrja. Margar góðar minningar hafa skot- ið upp kollinum, margt sem yljar og margt sem kætir. Mínar fyrstu minn- ingar eru ferð sem við fórum um páskana ‘63 á Land Rovernum á Strandir. Gerði vitlaust veður! Fest- um bílinn! Í minningunni var þetta mjög spennandi ferðalag, pabbi gerði allt til að láta okkur líða sem best með- an beðið var eftir aðstoð og þurftum við t.d. að pissa í málningarfötu sem var inni í bíl, ekki var hægt að fara út, veðrið var svo kolbrjálað. Sumrin sem ég var 4-6 ára þá fórum við mamma stundum með pabba í ferðalög um landið, þá var hann að vinna hjá Véla- sjóði ríkisins og keyrði Diamond- trukk, man ég sérstaklega eftir einu atviki. Mamma gaf okkur tyggjó, eftir smástund þurfti pabbi að stoppa trukkinn, taka út úr sér tennurnar og losa, þá hafði tyggjóið fest í fölsku tönnunum og það fannst mér fyndið. Æskuárin voru góð, pabbi vann mikið og ef hann var ekki að vinna, þá var það bílskúrinn, þar eyddi hann mörgum stundum og var hann t.d. með Land Roverinn í 3 ár inni í bíl- skúr, var að breyta honum og taka í gegn. Við krakkarnir í götunni vorum mikið í okkar útileikjum við húsið heima, aldrei var bannað að leika sér á grasflötinni okkar eða fara í brennó úti á plani, þó svo að pabbi vildi halda garðinum og lóðinni fínni, þá máttum við krakkarnir samt vera þar að leika okkur og ærslast. Þegar ég var unglingur þá fór nú pabbi aðeins að vernda stelpuna sína, vildi að hún væri ennþá litla pabbas- Ingimundur Guðmundsson ✝ Kristinn ÍsfeldAndreasen fæddist í Reykja- vík 3. mars 1981. Hann lést á heim- ili sínu 16. nóv- ember síðastlið- inn. Faðir hans var Eiríkur Ísfeld Andreasen f. 26.11. 1957, d. 9.12. 2004. Móðir Kristins er Elsa- bet Sigurðardóttir f. 2.4. 1961. Börn Eiríks og Elsabetar, og al- systkini Kristins, voru Guð- björg Eiríksdóttir f. 1.6. 1978, d. 16.2. 1981 og Þorbjörn Ei- ríksson f. 16.2. 1982. Þau skildu. Eiríkur giftist Lilju Sig- ríði Guðlaugsdóttur f. 24.5. 1968. Börn þeirra, og systkini Kristins samfeðra, eru Guð- laugur Ísfeld Andreasen f. 27. 5. 1988 og Magnús Ísfeld Andr- easen f. 17.3. 1994. Elsabet er gift Herði Sævari Haukssyni f. 21.9. 1951. Börn þeirra, og systkini Kristins sam- mæðra, eru Hólm- steinn Harðarson f. 12.6. 1992, Elsa- bet Ósk Harð- ardóttir f. 10.1. 1994 og Sigurður Skúli Harðarson f. 22.4. 2000. Barnsmóðir Kristins er Tinna Guðjónsdóttir f. 13.7. 1981. Barn þeirra er Sunna Ísfeld Andreasen f. 21.6. 2002. Þau slitu samvistum. Sambýliskona Kristins var Kristný Lára Rósinkarsdóttir f. 3. desember 1989. Kristinn lauk grunnskóla- prófi frá Þinghólsskóla árið 1997. Hann vann ýmis verka- mannastörf, m.a. hjá Loftorku og Gatnamálastjóra. Kristinn Ísfeld verður jarð- sunginn frá Laugarneskirkju í dag og hefst athöfnin kl. 13. Elsku pabbi. Mikið á ég eftir að sakna þín. Ég veit að þú varst stundum veikur og þess vegna gátum við ekki verið meira saman. En ég veit að þér þótti svo vænt um mig því ég man svo vel að þú kvaddir mig alltaf með því að segja: „Ég elska þig hærra en sólin og dýpra en sjórinn.“ Mér þykir líka allt- af vænt um þig elsku pabbi minn og ég veit að þú ert núna með hinum englunum og vakir yfir mér. Þín Sunna Ísfeld. Elsku Kiddi minn, nú ert þú búinn að fá hvíldina langþráðu og ert eflaust búin að hitta Guðbjörgu systur þína, sem lést áður en þú fæddist. Pabbi þinn hefur líka tekið vel á móti þér, en þú misstir mikið þegar hann dó fyrir tæpum fjórum árum. Nú færð þú ósk þína uppfyllta og hvílir þeim við hlið. Elsku Kiddi, margs er að sakna og margs er að minnast. Það virðist svo stutt síðan þú og bróðir þinn fluttuð til okkar pabba þíns og bræðra, þú varst bara rétt 10 ára, hjartahlýr en skap- mikill. Þú hlakkaðir svo mikið til að fara í nýjan skóla og kynnast nýjum krökkum. Þú varst mjög ævintýra- gjarn, ekkert var þér heilagt og þú varst óhræddur við eitthvað nýtt og allt var svo spennandi, já, Kiddi minn, þú lifðir þínu stutta lífi mjög hratt. Á ellefta ári fórst þú að æfa skíða- íþróttina, sem átti hug þinn allan. Þú fórst í æfingaferðir til Austurríkis og sýndir frábæran árangur. Eitt sinn þegar þú fórst og kepptir á unglinga- landsliðsmóti lentir þú í 16. sæti og þar með varst þú með besta árang- urinn í Breiðabliki. Þá kom minn maður stoltur heim. Við brölluðum mikið og margt saman, margar útilegurnar voru farnar innanlands og einnig í utan- landsferðir, þar stendur Hollands- ferðin upp úr. Mér er mjög minni- stætt þegar þú plataðir mig til að hjóla með ykkur í sund, við hjóluðum þar sem bannað var að hjóla og vor- um stoppuð, ég var skömmuð og þið bræðurnir grétuð úr hlátri. Svo fór- um við að keyra um og vorum í stór- hættu, pabbi þinn var alls staðar fyrir sporvögnum og við lentum í árekstri, já, aldrei dauður tími hjá okkur. Nú eru jólin að nálgast, það verður mjög erfiður tími fyrir okkur, pabbi þinn dó líka rétt fyrir jólin. Áramótin verða aldrei söm, eitt það skemmti- legasta sem þú gerðir var að sprengja upp, það erfðir þú frá pabba þínum, hann var sprengjuóður. Eftir að hann dó komstu alltaf til okkar og passaðir að það væri til bíl- farmur af flugeldum og kökum, og svo voruð þið bræðurnir að sprengja upp frá miðnætti og langt fram á nótt, nema síðustu áramót, þá varst þú er- lendis með Kristnýju, kærustu þinni. Stærsta stundin þín var þegar þú eignaðist Sunnu litlu, þú varst svo hamingjusamur og gleði þín var mikil við að gera allt tilbúið fyrir heim- komu mæðgnanna. Ég held að stolt- ari amma en ég hafi ekki fundist þeg- ar þú baðst mig um að vera skírnarvottur Sunnu, dóttur þinnar þegar hún var skírð. Þú varst alltaf svo bóngóður, ef þú varst beðinn um eitthvað þá var það ekkert mál svo fremi sem þú hafðir tök á því. Annar eins snyrtipinni var vandfundinn, þú vildir alltaf vera hreinn og fínn, helst að fara í sturtu tvisvar á dag og fara í hrein föt. Elsku Kiddi minn, það er svo erfitt að kveðja þig, þær eru svo margar minn- ingarnar sem ég á um þig og þær mun ég geyma. Ég veit að þér líður vel núna og margir góðir annast þig. Ég trúi því að við sjáumst aftur. Hvíl í friði. Þín stjúpmóðir, Lilja. Elsku Kiddi. Þú hefur att kappi við fleiri þrautir en flestir á okkar aldri. Sú þrauta- ganga var þér erfið og markaði gjarn- an spor sitt í hátterni þitt og fram- komu. Þó hef ég alltaf vitað að hinn sanni persónuleiki þinn hefur að geyma ljúfan dreng. Ljúfan dreng sem kunni svo fallega að hrósa, elska, koma manni til að hlæja og vildi svo vel. Þess vegna varð ég ástfangin af þér og þú varst fyrsta ástin mín. Við vorum bara 19 ára, svo ung og ást- fangin og fannst ekkert annað í heim- inum skipta máli. Við áttum saman góða tíma. Við vorum bara búin að vera saman í hálft ár þegar við sett- um upp trúlofunarhringa niðrí fjöru. Ég man hvað við vorum glöð þá og hlógum mikið. Ég man þú lékst þér stundum að því að láta fíflalega til að láta mig liggja í hláturskasti og þér tókst það alltaf. Þessar góðu minn- ingar mun ég alltaf geyma í hjarta mér. Þú gafst mér það dýrmætasta sem ég á, dóttur okkar Sunnu. Hún er ljúfur og orkumikill persónuleiki eins og pabbi hennar. Ég gleymi ekki hvað þú varst stoltur þegar þú fékkst hana í hendurnar, þú varst með tárin í augunum og sagðir: „Vá… nýtt líf!“ Ljósmóðirin spurði hvort stúlkan ætti að heita Líf en þú stamaðir klökkur „Nei, hún er bara svo falleg“. Þú sagðir mér svo oft hvað þig lang- aði að vera besti pabbinn í heiminum en þú varst alltaf hræddur um að geta ekki staðið þig nógu vel. Sunna mun alltaf vita hvað pabbi hennar var góð sál og hvað hann elskaði hana mikið. Ég kveð þig með sorg í hjarta en trúi því að þér líði betur þar sem þú ert núna. Hvíl í friði, elsku Kiddi, Þín, Tinna. Elsku bróðir, ég man alltaf hvað þú varst lífsglaður. Þú áttir stundum erf- itt eins og svo margir aðrir en hafðir það meira fyrir þig en þú fékkst mig alltaf til að brosa. Það sem mér fannst skemmtilegast var þegar þú hringdir og baðst mig að koma með þér í „ri- ver rafting“ eða að koma á krossar- ann, eða bara að gera eitthvað skemmtilegt saman, svona varst þú bara, þetta þótti mér rosalega vænt um. Hjá mér er ein sterk minning, þeg- ar þú og Tobbi bróðir komuð með stelpu í vinnuna til mín og kynntuð okkur, það var Arna sem er kærasta mín í dag. Elsku bróðir, í mínum huga lifa minningarnar um þig sem eru bæði góðar og margar. Nú kveð ég þig í hinsta sinn í þessu lífi, elsku Kiddi minn. Einmani, stend ég uppi hér a örlaga köldu svæði, sverði bitrari sorgin sker sál og líkama bæði. Sjóðandi af augunum falla tár, hjartanu bólgnu blæðir. (Guðlaugur Sigurðsson.) Blessuð sé minning þín. Þinn bróðir, Guðlaugur. Kristinn Ísfeld Andreasen

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.