Morgunblaðið - 28.11.2008, Blaðsíða 48
48 MenningFÓLK
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. NÓVEMBER 2008
Fólk
UNGMENNARÁÐ UNICEF hefur í samstarfi við
Kronkron hafið sölu á bolum til að vekja athygli
á því að í heiminum í dag standa fjöldamörg
börn frammi fyrir miklum hindrunum á leið
sinni að mannsæmandi lífi.
Prenthönnunin á bolunum vísar í að veröldin
sé eins og völundarhús þar sem sumir rati rétta
leið að góðu lífi á meðan aðrir sitji fastir í öng-
stræti fátæktar. Með því að ganga í bolunum er
sýnd samstaða með baráttu UNICEF við að leiða
börn úr öngstrætum lífsins í átt að bættum lífs-
skilyrðum. Þetta er í annað sinn sem UNISEF og
Kronkron taka höndum saman ásamt grafíska
hönnuðinum Herði Kristbjörnssyni og gera boli
til að vekja athygli á stöðu barna í heiminum.
Yfirskrift verkefnisins er „bestu bolir í heimi“
og er með því vísað í það að kaup á bolunum geti
bjargað lífi þurfandi barna. Bolirnir fást í sjö lit-
um og öllum stærðum, bæði á börn og fullorðna.
Þeir kosta 2800 kr. og allur ágóði af bolasölunni
rennur til UNICEF, Barnahjálpar Sameinuðu
þjóðanna
Í tilefni af því að sala bolanna er hafin býður
Kronkron öllum sem vilja til glaðnings í fata-
verslun sinni, Laugavegi 63, á morgun, laug-
ardaginn 29. nóvember, á milli 14 og 16. Boðið
verður upp á pönnukökur og heitt súkkulaði í
vetrarkuldanum og er fjölskyldufólk hvatt sér-
staklega til að koma við í helgargöngutúrnum til
að gæða sér á veitingunum og gleðjast með
Kronkron og ungmennaráði UNICEF.
ingveldur@mbl.is
Veröldin er eins og völundarhús
Góðverk Ungmennaráð UNICEF og íslenskir hönn-
uðir framleiða boli sem geta breytt lífi barna.
Eins og lesa mátti um í Morg-
unblaðinu í gær er skiptum lokið á
þrotabúi Little Trip efh., fyrirtækis
sem var stofnað til þess að framleiða
kvikmynd Baltasars Kormáks, A
Little Trip to Heaven sem var frum-
sýnd í lok árs 2005 og skartaði ekki
minni stjörnum en Forest Whitaker
og Juliu Stiles í aðalhlutverkum.
Kröfur í þrotabúið námu alls 388
milljónum króna en þar af átti Kaup-
þing banki hf. langhæstu kröfuna
upp á rúmlega 341 milljón króna.
Einhverjum kynni að þykja þetta
undarlegar fréttir, sér í lagi þegar
haft er í huga að myndin var seld til
fleiri en 40 landa og að samning-
arnir sem gerðir voru um myndina
voru að sögn framleiðenda stærri og
umfangsmeiri en þá höfðu verið
gerðir um íslenskar myndir.
Tvö önnur framleiðslufyrirtæki,
Blueeyes Production sem er í eigu
Baltasars Kormáks og Palomar
Pictures sem er í eigu Sigurjóns Sig-
hvatssonar komu einnig að gerð
myndarinnar en þau fyrirtæki eru
eftir því sem best verður séð enn í
góðum rekstri.
Endaði himnaförin
þar neðra?
Þeir Egill Ólafsson og Valgeir
Guðjónsson fóru á kostum í viðtali
við Morgunblaðið í gær í tilefni af
tónleikum sínum í Norræna húsinu
í gær og í dag. Tónleikarnir eru
hluti af jóladagatali þessa mæta
húss en sá háttur hefur verið hafð-
ur á undanfarin jól að merkir lista-
menn troði upp með einum eða öðr-
um hætti þennan mánuð fyrir jól og
komi þar með borgarbúum í lista-
gott jólaskap. Samkvæmt heim-
ildum Morgunblaðsins er jóladaga-
tals-dagskráin með eindæmum
glæsileg í ár og á meðal þeirra sem
gætu dúkkað upp með stuttum fyr-
irvara eru meðal annars ein vinsæl-
asta hljómsveit landsins, heimsfræg
söngkona, eitt stykki leiksýning og
ein umtalaðasta fyrirsæta þjóð-
arinnar – og þá er nú bara fátt eitt
upptalið. Ja hérna, er Norræna hús-
ið að verða aftur „in“?
Stjörnurnar troða
upp í Norræna húsinu
Lýstu eigin útliti.
Hávaxinn, myndarlegur og jafn-
massaður.
Hvaðan ertu?
Frá Íslandi, og stoltur af því.
Ef þú ættir Íslandsmet í einhverju, í
hverju væri það þá? (Spurt af síð-
asta aðalsmanni, Viktoríu Sigurð-
ardóttur).
Áræði.
Hver er að þínu mati besti forstjóri
Íslandssögunnar?
Hvers konar spurning er þetta?
Það er ekki hægt að keppa í for-
stjórn.
Hvað þarf góður forstjóri að hafa til
að bera?
Einlægni, áræði, ábyrgðartilfinn-
ingu, framsýni, aðlögunarhæfni og
víðsýni.
Hvaða áhugamál höfða til góðs for-
stjóra?
Lestur góðra bóka, ferðalög og að
láta gott af sér leiða í samfélaginu.
Hvað eiga þeir Ármann Reynisson
og Árni Matthíasson sameiginlegt?
Báðir eru þeir fæddar fyrirsætur
og heimsborgarar.
Hvað uppgötvaðir þú síðast um
sjálfan þig?
Hæfileikann til að fyrirgefa.
Styðurðu ríkisstjórnina?
Styður ríkisstjórnin mig?
Hver ber ábyrgð á kreppunni?
Samkvæmt öllu þá ber enginn
ábyrgð á henni. Ætli hún beri ekki
bara ábyrgð á sjálfri sér.
Dansarðu til að gleyma?
Hef ekki gert það hingað til. En
stundum elda ég til að gleyma.
Hvaða plötu hlustar þú mest á
þessa dagana?
Glass Houses með Billy Joel.
Hvaða bók lastu síðast?
Forstjóra dagsins, hún liggur alltaf
á náttborðinu. Fín lesning fyrir
svefninn.
Uppáhaldskvikmynd?
Wall Street.
Hvenær varstu hamingjusamastur?
Þegar fyrsti draumurinn rættist.
Hvað fer mest í taugarnar á þér?
Nurl og dindilmennska.
Hvað ætlaðir þú að verða þegar þú
yrðir stór?
Forstjóri.
Hver eru þín mestu mistök?
Að hafna starfinu hjá FL Group á
sínum tíma.
Og þinn stærsti sigur?
Verð ég ekki að segja fjölskyldan
hér?
Hvernig viltu deyja?
Eins og hetja.
Hvers viltu spyrja næsta viðmæl-
anda?
Hver vilt þú að verði næsti forseti
lýðveldisins Íslands?
SIGURÐUR BJÖRN BLÖNDAL
AÐALSMAÐUR VIKUNNAR ER TÓNLISTARMAÐUR, SÉRFRÆÐINGUR OG NÚ SÍÐAST FORSTJÓRI
LÍKT OG LESA MÁ UM Í NÝRRI PÓSTKORTABÓK HANS, BAD CREDIT - GREAT CHARACTER, SEM
VAKA-HELGAFELL GEFUR ÚT.
Ljósmynd/Spessi
Forstjórinn Sigurður Björn Blöndal
er jafnmassaður.
Eftir Arnar Eggert Thoroddsen
arnart@mbl.is
„ÞAÐ var alltaf verið að tala um það í ein-
hverjum partíum að ég væri líkur Mick Jagger,“
segir Björn Stefánsson, Bjössi í Mínus, spurður
um aðdragandann að spánýrri Rolling Stones
heiðrunarsveit sem heitir einfaldlega Stóns.
„Svo vorum við félagarnir að grínast eitthvað
með þetta. En svo hringdi Bjarni (gítarleikari og
félagi Bjössa í Mínus) í mig og vildi stofna Stóns-
band. Upphaflega var nú ekki mikil alvara á bak-
við þetta en Palli Papi, umboðsmaður, sá hins
vegar tækifæri í þessu og því hífðum við þetta
óðar upp á næsta þrep.“
Með þeim Bjössa og Bjarna í sveitinni eru þeir
Frosti Gringo (trommur, úr Klink og Esju), Karl
Lúðvíksson (bassi, úr Lights on the Highway) og
Birgir Ísleifur Gunnarsson (píanó, úr Motion Bo-
ys). Allt saman fígúrur úr jaðartónlistarheimum
og fremur ólíklegir kandidatar í „tribute“-sveit
sem troðfyllir Players eða Kringlukrána um
hverja helgi. Eða hvað? Hefur verið einhver hiti í
garð manna frá 101 elítunni vegna þessa?
„Alls ekki og okkur væri aukinheldur alveg
nákvæmlega sama. Maður hætti að leika þennan
hvað er „rétt“ og hvað er „rangt“ leik fyrir
margt löngu.“ segir Bjössi og hnyklar brýrnar.
Hann bætir svo við hlæjandi: „Reyndar er ég sá
eini af okkur sem hefur komið inn á Players. Það
var árið 2002 og ég spilaði pool. Ég átti ekki von
á að ég ætti eftir álpast þangað inn aftur.“
Efnisskrá sveitarinnar er stór að vöxtum og
spannar allt frá fyrstu árum Stones til dagsins í
dag.
„Við höfum verið að sökkva okkur í þessi „tri-
bute“ fræði og komumst fljótlega að því að oft er
grunnhugmyndafræðin ekki á hreinu,“ segir
Bjössi og verður hugsi.
„Maður hefur t.d. séð menn spila Stones-lög
afskaplega vel. Þannig á það ekkert að vera!
Þetta á að vera hrátt, sveitt og skítugt ... alveg
eins og hjá frumgerðinni. Þetta á að vera
groddalegt og þetta á að vera skemmtilegt.“
Stóns klæða sig upp og hverfa inn í heim frum-
myndarinnar, Bjössi talar á ensku á milli laga og
verður Jagger.
„Þetta er hins vegar ekki hermisveit, eða eitt-
hvert grín. Lykilatriðið er að ná þessu „attit-
júdi“, þessum anda sem leikur um Rolling Stones
og gerir hana að svölustu rokksveit allra tíma.“
Ljósmynd/Björn Árnason
Groddalegir „Þetta á að vera hrátt, sveitt og skítugt ... alveg eins og hjá frumgerðinni,“ segir Bjössi „Jagger“, söngvari Stóns.
Hráir, villtir ... rokkaðir ...
Íslenskir jaðarhundar gera Rolling Stones almennileg skil á Players í kvöld