Ársrit Vélstjórafélags Íslands - 01.01.1926, Blaðsíða 12

Ársrit Vélstjórafélags Íslands - 01.01.1926, Blaðsíða 12
10 varð því að samkomulagi að fresta umræðum þar til kaupdeilunni við háseta væri lokið. Að þeirri deilu lokinni fóru skipin af stað sem örast og dreifðust við það samningskraftar fjelagsins, því að nefndarmenn fóru hver með sínu skipi. Fundir voru þó haldnir eft- ir það, en eigi gátu samningamenn vjelstjórafjelags- ins mætt þar allir saman. Lægstu kröfur vorar voru þessar: Fyrir 1. vjelstjóra IV4 % af öllum brúttó afla, 300 kr. á mánuði fast, og mánaðarsumarleyfi með fullum launum, ef skipið gengur minst 10 mán- uði. Fyrir 2. vjelstjóra 480 kr. á mánuði fast, og 15 daga sumarleyfi með fullu kaupi, önnur ákvæði óbreytt frá fyrra samningi. Af dreifingu samningsaðilt og einkum því, hve lít- inn tíma þeir höfðu.leiddi það,að einhver misskilning- ur hefir átt sjer stað meðal þeirra um þær kröfur sem gerðar voru á stjórnarfundi, og þeir höfðu ákveð- ið að vera einhuga um. Varð einn nefndarmanna til þess, sýnilega í ógáti, að skrifa undir uppkast að kaupsamningi til þriggja ára. Var það i mjög veru- legum atriðum frábrugðið því, sem til var ætlast, sbr. samþykt stjórnarfundar. Jafn skjótt og stjórn- inni barst uppkast þetta í hendur, hjelt hún fund, þar sem samþykt var að benda nefndinni á ósam- ræmi það, sem var á milli uppkastsins og samþyktar þeirrar, sem nefndannenn höfðu sjálfir verið með að gera á stjórnarfundi nokkru áður. Þegar hinir samn- ingsmennirnir svo lásu uppkast þetta, töldu þeir það engan veginn í samræmi við niðurstöðu síðasta samningsfundar, og neituðu að skrifa undir það.

x

Ársrit Vélstjórafélags Íslands

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ársrit Vélstjórafélags Íslands
https://timarit.is/publication/738

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.