Ársrit Vélstjórafélags Íslands - 01.01.1926, Blaðsíða 36

Ársrit Vélstjórafélags Íslands - 01.01.1926, Blaðsíða 36
34 ínælin dæmd dauð og ómerk, en stjórnin krafðist sýknunar á kröfum nefndarinnar og skýrslan dæmd rjett. Innlegg beggja aðila ásamt fylgiskjölum og öðr- um plöggum hefir gerðardómurinn athugað og kom- kt að þessari niðurstöðu: „Þegar fjelag kýs nefnd eða menn til að fara með málefni sín út í frá, ber hún, eða þeir, ábyrgð á gerð- urn sínum gagnvart fjelagsmönnum“. Samkvæmt fundarbók og öðrum plöggum, hefir umgetin samningsnefnd verið kosin til að halda áfram samnimgstilraunum í fjarveru formanns. Sam- kvæmt ofanrituðu var henni skylt að taka alt það til greina, er komið hafði fram við undanfarandi samningstilraunir, og má þá eigi ætlast til minna, en að hún haldi uppi heiðri fjelagsins sem sendisveitþess og krefjist skýringar á því, sem útgerðarmenn höfðu sagt um formann vorn, sem áður hafði verið við samningsumleitanir fyrir fjelagsins hönd. Stjórn hvers fjelags, ber skylda til þess, að benda meðlimunum á bresti þá, er hún þykist verða vör við hjá þeim sem fjelagsmeðlimum, og er þá vel viðeig- andi, þar sem prentuð ársskýrsla er gefin út, að hún sje þá notuð til þess meðal annars. Eftir plöggum þeim, er fyrir liggja, virðist síst hafa verið vanþörf á þessu, því samkvæmt marg- ítrekuðum samþyktum fjelagsmanna, senda þeir formann með ákveðinn vilja sinn til kaupsamninga, en sem þeir svo hörfa frá við fyrsta mótbyr. Sökin á þessu liggur síst hjá formanni, sem fram á síð-

x

Ársrit Vélstjórafélags Íslands

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ársrit Vélstjórafélags Íslands
https://timarit.is/publication/738

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.