Ársrit Vélstjórafélags Íslands - 01.01.1926, Blaðsíða 41
Sigurður Kr. Einarsson
1. vjelstjóri á e/s Ara.
Enn er skarð höggvið í okkar fámennu fylkingu,
þar sem fallinn er í valinn einn af okkar bestu og
áhugamestu vjel-
stjórum: Sigurður
Kristinn Einars-
son, 1. vjelstjóri á
e/s ARA.
Hann er fæddur
á Tóftum í Stokks-
eyrarhreppi 12.
ágúst 1891 sonur
hjónanna þar, Ein-
ars Sigurðssonar
og Ingunnar Sig-
urðardóttur, sem
lifa son sinn.
Hinn 4. okt.
1919 kvæntist Sig-
urður Margrjetu
Kristjánsdóttur frá Hjalla í Övesi, og varð þeim 4
bama auðið. — Er að þeim mikill harmur kveðinn,
að sjá á bak jafn ástríkum eiginmanni og föður. Með-
al þeirra, er sárast sakna, eru einnig tengdaforeldr-
ar íSigurðar, sem hann ávalt sýndi sjerstaka alúð