Ársrit Vélstjórafélags Íslands - 01.01.1926, Qupperneq 14
12
Eins og að undanförnu var efnt til
Jólatrjes- skemtikvölds fyrir böm fjelags-
skenitunin. manna, með jólatrje og smávegis
veitingum. Urðu flestir þeir sömu í
skemtinefndinni og árið áður. Má óhætt þakka það
atorku þeirra og umhyggju, að vinsældir skemtun-
arinnar aukast með ári hverju. Og líklega er jóla-
trjesskemtunin sú einasta af framkvæmdum fjelags-
ins, en sem komið er, sem fundið hefir almennan
hljómgrunn í sjálfum heimilum fjelagsmanna. Það
skemtikvöld er orðið fjelagsleg nauðsyn. Vona jeg
að fundarmönnum verði sýnt um að velja einungis
þá í næstu skemtinefnd, sem vel kunna og vel vilja
starfa. Einnig vona jeg að þeim sem fyrir vahnu
verða, sje Ijúft að leggja á sig nokkurt erfiði fyrir
þetta málefni, því með því leggja þeir góðan skerf
til fjelagsstarfsins. Að þessu sinni voru keyptir
nokkrir munir til notkunar við skreytingu á jóla-
trjenu, eru þeir til og nothæfir áframhaldandi. Veit-
ingar handa nokkrum gestum voru og einnig greidd-
ar úr fjelagssjóði. Að öðru leyti hefir fjármálum
skemtunarinnar verið iialdið útaf fyrir sig.
Þó að samningum þessum væri ekki
Kaupsamn. lokið fyr en nokkru eftir áramót, þá
við E. 1. tel jeg rjettast að gerð sje grein fyr-
ir þeim hjer í skrifuðu skýrslunni,
því þeir gilda frá ársbyrjun.
Sú skoðun er orðin almenn hjá atvinnurekendum
hjer á landi, og enda víðar, að kostnaðurinn við fólks-
haldið sje sá liðurinn, sem mest þjáir nú atvinnuveg-
ina. Fyrsta og helsta umbótaskrefið sje því það, að