Ársrit Vélstjórafélags Íslands - 01.01.1926, Síða 34
32
um deilum útaf samningunum. Eru þeir til umræðu
á sjö fjelagsfundum og fjórum stjórnarfundum. For-
maður hjelt fast fram þeim kröfum, sem hlutaðeig-
andi meðlimir höfðu samþykt á fjelagsfundum, að
falla aldrei frá, en standa um þær sem einn maður.
Eftir langar umræður hafði hann von um að koma
flestum kröfum þeirra inn í samningana. En er svo
var komið, notuðu útgerðarmenn fjarveru hans til
að rægja hann á svívirðilegan hátt við fjelag vort,
og kröfðus.t þess, að aðrir tækju þegar upp samn-
ingatilraunir. Ákvað fjelagsfundur að verða við til-
mælum þeirra og sendi nefnd manna, í stað for-
manns, til samningsfundar. Undirritaði nefndin nú-
verandi samninga. Beið stjettin við samninga þessa
30—40 þús. kr. fjárhagslegan halla árlega, í saman-
burði við þá samninga, sem formaður hafði mikla
von um að koma fram, ef fullur vilji fjelagsmanna
stæði á bak við. Annað fjárhagslegt glappaskot þess-
arar nefndar var það, að láta samningana ekki gilda
frá 1. okt. Gaf hún með því útgerðarmönnum tæki-
færi til að skamta vjelstjórunum kaup í rúman mán-
uð. Notuðu þeir dyggilega tækifærið og færðu kaup-
ið niður sem svaraði 8 þús. kr. fyrir viðkomandi með-
limi. Þetta verður þó ekki nema díll í samanburði
við þann svívirðilega blett, en nefndin setti á virð-
ingu fjelagsins með því að samþykkja þegjandi róg
og lygar útgerðarmanna á fjarverandi leiðtoga fje-
lagsins og gefa honum á engan hátt kost á að verja
sig. Þeir verða fleiri en einn, sem þreytast á því, í
framtíðinni, að bera merki og málefni fram til sig-
urs fyrir fjelag vort, ef bitrustu skeytin koma á