Morgunblaðið - 13.12.2008, Page 51
Krossgáta 51
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. DESEMBER 2008
d d
d
d
Jólakertaútsala
Opið alla daga frá 11-18, líka um helgar
d Stórkostleg jólakertaútsala
hefur opnað í Faxafeni 11
(gamla Leikbæjarhúsinu)
Ótrúleg verð d
d
d d d
dd
d
d
d
d
d
LÁRÉTT
1. Endurnýjanleg orkulind sem byggir á því að vatn
varðveitir orku sólar. (8)
5. Hertaka lands. (6)
9. Land á Balkanskaganum fyrir norðan Grikkland.
(7)
10. Fyrsti forseti fimmta lýðveldisins í Frakklandi. (2,6)
12. Fylki í Bandaríkjunum sem liggur að Kanada í
norðri og þar sem Íslendingar settust að. (9)
13. Svæði í Kanada sem var þekkt fyrir gullæði árið
1897. (8)
14. Kennileiti búið til út frá uppröðun stjarnanna á
himninum. (12)
19. Faðir Baldurs. (5)
21. „Hann vann á eyrinni vikuna alla og fór í _____ ef
að vel gaf.“ (6)
22. Sjálfvirkur plötuspilari tengdur sjálfsala. (11)
24. Rafstraumur þar sem stefna straumsins breytist
reglulega með ákveðinni tíðni. (11)
26. Ali ___, sögupersóna í Þúsund og einni nótt. (4)
29. Heiti yfir hlaupkennt bensín notað í stríði. (6)
31. Kona Jasons sem fann Gullna reyfið. (5)
33. Stórvaxið, sætt og safaríkt aldin plöntu af graskers-
ætt. (6)
35. Hreyfanlegar samtengingar beina. (7)
36. Tungumál skylt ungversku og eistnesku. (7)
37. ______-fjall er granítfjall nálægt Keystone í Suður-
Dakóta þar sem má sjá andlit fjögurra fyrrv. for-
seta Bandaríkjanna. (8)
38. Héraðsþing, fyrir 3 goðorð, háð í 4-7 daga, 7.-27.
maí. (7)
39. Söngvari og lagahöfundur, annar helmingur dúósins
sem gerði „Bridge over Troubled Water“ vinsælt.
(4,5)
40.Land í Mið-Ameríku nefnt eftir heiti indíána sem
bjuggu þar og spænska orðinu yfir vatn. (9)
LÓÐRÉTT
2. Ósæðin er _______ líkamans. (10)
3. Maður frá landi sem talibanar stjórnuðu tímabund-
ið. (6)
4. Pílagrímabær í Frakklandi þar sem María mey
birtist árið 1858. (7)
5. Grískur sólguð sem ekur dag hvern vagni sólar yfir
himinhvolfið. (6)
6. Thomas _____ þýskur rithöfundur, sem flutt til
Bandaríkjanna 1933 og síðar til Sviss skrifaði m.a.
Dauðann í Feneyjum. (4)
7. Næstum því 15 ml, nákvæmlega 14,7867648 ml. (8)
8. Marðardýr sem lifir í Asíu og hefur verið mjög eft-
irsótt síðan á miðöldum vegna feldarins. (6)
11. Mjólkurafurð gerð með því að strokka rjóma. (5)
15. Samheiti yfir botnvörpur og flotvörpur. (5)
16. „Þar stendur hnífurinn í ______“ (5)
17. Fótboltalið í Vestur-London, leikur í bláum bún-
ingum. (7)
18. Sjúkdómur sem stafar af skorti af níasíni, velþekkt-
ur í fátækum löndum og hjá langt leiddum alkóhól-
istum. (7)
20. Bjartur hnöttur sem birtist við jörð, oftast í
tengslum við þrumuveður. (9)
22. Franskt orð notað yfir þann sem kann að meta góð-
an mat. (7)
23. Mikið notaður mælikvarði á það hvernig gildi dreif-
ast í kringum meðaltal. (12)
25. Fylki í vesturhluta Bandaríkjanna sem liggur að
Kanada í norðri, Montana í norðaustri, Wyoming í
austri, Utah og Nevada í suðri og Oregon og Wash-
ington í vestri. (5)
27. Félagsskapur karlmanna í klaustri háður tilteknum
ákvæðum um lifnaðarhætti. (10)
28. Skörp fest felling á efni. (9)
30. Dulrænuástand þar sem einstaklingnum finnst
hann vera utan og ofan við venjulegan skynheim.
(7)
32. „Ég er ________, Guð þinn, sem leiddi þig út af
Egyptalandi, út úr þrælahúsinu.“ (8)
34. Vefjarefni unnið úr fræplöntum. (7)
JÓN Viktor Gunnarsson gerði sér
lítið fyrir og sigraði á opna alþjóð-
lega mótinu í Belgrad sem lauk um
síðustu helgi. Jón hlaut 7½ vinning
af níu mögulegum og varð í efsta
sæti ásamt Srjdan Certkovic og Dej-
an Antic báðum frá Serbíu. Þetta var
lokamótið í skákferðalagi Jóns Vikt-
ors, Dags Arngrímssonar, Guð-
mundar Kjartanssonar og Braga
Þorfinnssonar sem hófst í október og
lauk með þessu móti í Belgrad. Ekki
verður annað séð en afraksturinn
hafi verið góður því Dagur náði stór-
meistaraáfanga á mótinu í Ung-
verjalandi og Guðmundur áfanga að
alþjóðlegum meistaratitli. Þeir náðu
sér einnig vel á strik stigalega séð,
einkum þó Guðmundur, sem hækkar
um tæplega 100 elo-stig eftir ferða-
lagið. Á lokamótinu í Belgrad bættist
Snorri G. Bergsson í hópinn og stóð
sig vel, hlaut sex vinninga og hafnaði
í 20.-40. sæti ásamt Degi og Guð-
mundi.
Þetta mikla skákferðalag hófst á
Evrópumóti taflfélaga í Grikklandi,
síðan voru tvö mót á dagskrá í Ung-
verjalandi og loks var haldið til Bel-
grad í Serbíu. Upplífgandi frammi-
staða og má mikils vænta af þessum
ágætu skákmönnum á næstunni. Jón
Viktor vann tvo þekkta stórmeist-
ara, þá Velimirovic og Damljanovic,
og einkum var það á lokasprettinum
sem hann bætti sig.
Dagur Arngrímsson hóf mótið í
Belgrad með eftirfarandi sigri. Byrj-
unin minnir mjög á Marshall-af-
brigði spænska leiksins en tíunda
leik svarts hafði Dagur kynnt sér
fyrir mótið og beitti honum tvisvar í
ferðinni með góðum árangri. Hug-
myndin er eiginlega komin fram eftir
15. … f3. Stóru spurningunni var
hinsvegar ekki svarað: eftir 20. Rf5 –
í stað 20. Bxg2 verður svartur hugs-
anlega að fórna drottningunni: 20. …
Hxf5 21. Bxf5 Hf8 22. He6 Hxf5!? 23.
Hxd6 Bxd6 með ýmsum færum gegn
kóngsstöðu hvits. Gambíturinn sem
hefst með 10. … d5 gerir eiginlega
ráð fyrr þessari fórn. Hinn snagg-
aralegi leikur 20. … Hxf2 molar nið-
ur varnir hvíts og eftirleikurinn er
auðveldur.
Gott dæmi um vel heppnaðan
byrjunarundirbúning:
Belgrad open 2008; 1. umferð:
Ljuboje Bekic (Serbíu) – Dagur
Arngrímsson
Spænskur leikur
1. e4 e5 2. Rf3 Rc6 3. Bb5 a6 4.
Ba4 Rf6 5. 0-0 Be7 6. He1 b5 7. Bb3
d6 8. c3 0-0 9. h3 Ra5 10. Bc2 d5 11.
exd5 e4 12. Rg5 Rxd5 13. Rxe4 f5
14. Rg3 f4 15. Re4 f3 16. d4 fxg2 17.
b4 Rc4 18. Rg3 Dd6 19. Be4 Bb7 20.
... Bxg2
20. Hxf2 21. Kxf2 Hf8+ 22. Kg1
Dxg3 23. Hf1 Rde3 24. Hxf8+ Bxf8
25. De2 Bxg2 26. Df2 Dxh3
– og hvítur gafst upp.
Friðriksmót Landsbankans
Hið árlega Friðriksmót Lands-
banka Íslands hefst í dag í húsa-
kynnum gamla aðalbankans. Búist
er við að keppendur verði í kringum
70 talsins, þar af fjórir stórmeistar-
ar. Verða tefldar ellefu umferðir.
Mótið hefst kl. 13.
Friðrik verður meðal þátttakenda
en hann er nýkominn frá keppni liðs
nafntogaðra skákmanna og úrvals-
liðs kvenna. Karlarnir unnu
17½:14½ eftir að hafa byrjað fremur
illa. Vlastimil Hort stóð sig best karl-
anna, hlaut 6½ vinning af átta mögu-
legum, Karpov hlaut 5½ vinning,
Friðrik 3½ vinning og Uhlmann tvo
vinninga.
Efstur Jón Viktor Gunnarsson varð í 1. – 3. sæti á opna mótinu í Belgrad.
Friðrik Ólafsson Hann verður
meðal þátttakenda í Landsbank-
anum dag.
Jón Viktor
efstur í Belgrad
Helgi Ólafsson | helol@simnet.is
SKÁK
Belgrad, Serbíu
Belgrad open
25. nóvember til 5. desember 2008