Árbók Tannlæknafélags Íslands - 01.01.1966, Blaðsíða 15
13
var því mjög félagslyndur maður og hrókur alls fagnaðar,
hvar sem hann kom.
Hugur Skúla hneigðisi til mennta enda bráðger og góðum
gáfum búinn. Settist hann i menntaskólann í Reykjavík og
lauk þaðan stúdentsprófi sumarið 1940. Um haustið 1941
hélt Skúli til Bandarikjanna og hóf nám í tannlækningum
við University of Iowa, Iowa City. I júní 1945 lauk hann
þar námi og kom skömmu siðar heim til Islands.
I Reykjavík opnaði hann tannlækningastofu og hóf læknis-
starfið. Skúli varð strax mjög eftirsóttur tannlæknir, sökum
starfshæfileika sinna og fágaðrar framkomu gagnvart sjúkl-
mgum sínum, enda átti hann auðvelt með að kynnast þeim
°g ávinna sér traust þeirra. Oft var vinnudagurinn orðinn
langur og lýjandi, en þrekið og áhuginn óbilandi, þar til heils-
an fór að gefa sig og hann varð að stilla vinnunni í hóf.
Síðustu árin hafði Skúli tekið að sér kennslu við tannlækna-
deild Háskóla Islands og naut þar mikilla vinsælda, bæði sam-
kennara sinna og nemenda.
Skúli Hansen tók um langt árabil virkan þátt í starfi T.F.I.
°g sat lengi í stjórn félagsins. Okkur, sem áttum því láni að
fagna að vinna með honum er minnisstæð prúðmannleg fram-
homa, látlaus hæverska, samofin skarpri athugun á þeim
málefnum, er úrlausnar þörfnuðust.
Skúli bar með sér svipmót heimsborgarans í þessa orðs
beztu merkingu, enda víðförull og víðsýnn. Ein var sú list,
er ætíð átti hug hans allan, en það var tónlistin. Hafði hann
srnám saman eignast eitt fullkomnasta hljómplötusafn í einka-
eign hér á landi. Hefur það veitt vinum og kunningjum hans
rnarga gleðistund á höfðinglegu heimili hans.
Skúli Hansen var tvíkvæntur. Fyrri kona hans var Sigrið
Sætersmoen. Eignuðust þau tvo syni, Kristinn Inga og Gunn
ar Milton, hina mestu efnismenn. Eru þeir búsettir vestan-
llafs hjá móður sinni. Síðari kona Skúla var Kristín Snæhólm,
agætiskona, sem var honum stoð og stytta i veikindum hans
°g ser nú á bak manni sínum á beztu manndómsárum hans.
Nú að leiðarlokum þakkar Tannlæknafélag Islands Skúla