Árroði - 01.04.1947, Qupperneq 24
STARFSEMI F. U. J.
Framhald af bls. 18.
ur það verk með höndum, að innheimta
félagsgjöld, afla allra nauðsynlegra upplýs-
inga fyrir félag og flokk, og í einu orði sagt,
að vera hinn nauðsynlegi tengiliður milli
stjórnar og meðlima.
Spjaldhappdrætti.
Það, sem iðulegast reynizt dragbftur á störf
og framkvæmdir félaga eru hinir marg um
töluðu peningar. Ef F. U. J. ætti að miða
allt starf sitt og allar sínar framkvæmdir við
fjárhagslega getu sína af félagsgj öldum, sem
eru mjög lág, er trúlegt, að heldur lítið færi
fyrir þeim. I því sambandi hefur stjórnin
farið hinar venjulegu tekjuöflunarleiðir
félaga og m. a. haldið opinberan dansleik á
vetrinum. En því miður, eru samkomuhúsin
svo yfirsetin og lofuð, að skammt hrökkva
þær tekjur, sem af einum dansleik fást. Þess
vegna hefur stjórnin efnt til innanfélags
spjaldhappdrættis. I sjálfu sér er það engin
neyð, út af fyrir sig, en þar kemur til kasta
félaganna sjálfra í sölu happdrættisins og er
allt undir því komið, að þar séu félagarnir
samtaka og duglegir. Því vill stjórnin beina
þeim tilmælum til félaganna, sem ekki hafa
tekið spjald til sölu, að koma í skrifstofu
félagsins, sem allra fyrst og hefjast handa. Og
minnist þess góðu félagar, að aukin fjárhags-
geta F. U. J. tryggir meira starf, stærri fram-
kvæmdir og aukinn árangur í baráttu okkar
fyrir jafnaðarstefnunni.
Útbreiðslustarf.
I útbreiðslustarfseminni hefur stjórnin fyrst
og fremst talið aðkallandi, að F. U. J. héldi
áfram útgáfu á blaði sínu Arroða og stuðl-
aði þá að því, að hann kæmi reglulega og
yrði ekki kaupendum fyrir stórum vonbrigð-
um, hvað útkomu snertir og efnisval. Eins og
gefur að skilja, er engan veginn nóg, að Al-
þýðuflokkurinn haldi aðeins úti einu mál-
gagni, sem sé Alþýðublaðinu. Bæði hlýtur
rúm þess, að mestu að fara undir innlendar
og erlendar fréttir og annað það, sem við
kemur líðandi stund, og vill oft verða svo,
að dagblöð hafi minna rúm undir fræðileg
og söguleg efni, sem þó flestum lesendum
eru mjög kærkomin. Ur þessu vill F. U. J.
leitast við að leysa og væri mjög þakkarvert,
að unnendur jafnaðarstefnunnar, veittu þann
stuðning, sem tryggt getur stöðuga útkomu
blaðsins, efnislega og fjárhagslega. Þetta blað
Arroðans er annað tölublað þessa árgangs.
Ákveðið hefur verið að sex blöð komi út
árlega, en eins og gefur að skilja, hlýtur það
að vera mikið verk, þegar þess er gætt, að öll
störf í sambandi við blaðið eru sjálfboða-
liðastörf ungra manna og kvenna. Því ætti
það, að vera kappsmál góðra Alþýðu-
flokksmanna, að hlúa vel að blaðinu og þá
ekki hvað sízt með góðu efni, fræðilegu og
sögulegu.
Æskulýðsfundir.
Það hefur oft komið skýrt í ljós, að jafn-
aðarmenn, eru manna fúsastir, að túlka og
rökræða skoðanir sínar við pólitízka and-
stæðinga og heyja kappræður á opinberum
vettvangi. Eins og menn muna, beitti F. U. J.
í Reykjavík sér fyrir tveimur opinberum
æskulýðsfundum á árunum 1945—46 og ósk-
aði eftir þátttöku hinna pólitízku æskulýðs-
félaganna í bænum, en eins og alkunnugt er
orðið, létu þeir ekki sjá sig á síðari fundin-
um, það er að segja ræðumenn kommúnista
og íhaldsins frá fyrri fundi stóðu út við dyr,
en hættu sér aldrei í ræðustólinn, þrátt fyrir
ítrekaðar áskoranir og tilboð frá fundar-
stjóra og ræðumönnum F. U. J. En hins
vegar voru ungkommar og Heimdellingar
með sameiginlegan fund nokkru síðar, og
24 ÁRROOI