Morgunblaðið - 14.02.2009, Blaðsíða 13
Fréttir 13INNLENT
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. FEBRÚAR 2009
SENDIHERRAR Bandaríkjanna,
Finnlands, Bretlands, Þýskalands,
Svíþjóðar, Frakklands og Hollands
gengu á fund Steingríms J. Sigfús-
sonar, sjávarútvegsráðherra, í gær
og afhentu honum bréf þar sem
lýst er yfir áhyggjum vegna
áforma um veiðar á 150 lang-
reyðum og 100 hrefnum hér við
land á þessu ári.
Samkvæmt upplýsingum á vef
sjávarútvegsráðuneytisins fóru á
fundinum fram gagnlegar og vin-
samlegar viðræður milli sendi-
herranna og ráðherrans.
Í bréfi sendiherranna er lýst
miklum vonbrigðum með þá
ákvörðun Einars K. Guðfinns-
sonar, fyrirrennara Steingríms, að
gefa út veiðikvóta fyrir 150 lang-
reyðar og 100 hrefnur í lögsögu
Íslands. Er því fagnað, að Stein-
grímur hafi ákveðið að endur-
skoða þessa ákvörðun.
Þá segja sendiherrarnir, að
hvalveiðar Íslendinga nú séu til
þess fallnar, að grafa undan til-
raunum innan Alþjóðahval-
veiðiráðsins til að ná samkomulagi
um framtíð hvalveiða. Hvetja þeir
til þess að íslensk stjórnvöld horfi
frekar til langtímahagsmuna í stað
skammtímahagsmuna hvalveiði-
manna.
Hvalveiðum mótmælt
Morgunblaðið /RAX
Hagsmunir Carol van Voorst, sendiherra Bandaríkjanna, afhenti Stein-
grími J. Sigfússyni sjávarútvegsráðherra bréf sendiherranna sjö.
STÆRSTU vísindastyrkjum Ís-
lands var úthlutað í Þjóð-
menningarhúsinu í gær. Styrkirnir,
sem eru hluti
nýrrar markáætl-
unar Vísinda- og
tækniráðs, eru
allir veittir til sjö
ára. Er mark-
miðið með þeim
að efla vísinda- og
tæknirannsóknir
á ákveðnum
áherslusviðum,
hvetja til árang-
ursríkrar samvinnu milli ólíkra aðila
innanlands og í alþjóðlegu sam-
hengi, og ýta undir verðmæta-
sköpun og fjárfestingu í rann-
sóknum og nýsköpun í atvinnulífinu.
Verkefnið Alþjóðlegur rannsókna-
klasi í jarðhita undir verkstjórn Sig-
urðar M. Garðarssonar prófessors í
verkfræðideild Háskóla Íslands
hlaut stærsta styrkinn, 70 milljónir
kr. En einnig hlutu styrk verkefnin
Öndvegissetur í jafnréttis- og marg-
breytileikarannsóknum undir verk-
efnisstjórn Irmu Erlingsdóttur for-
stöðumanns RIKK, sem fékk 35
milljón kr., og Vitvélasetur Íslands
sem Kristinn R. Þórisson dósent í
tölvunarfræðideild Háskólans í
Reykjavík veitir forstöðu og hlaut
það 55 milljón kr. styrk.
annaei@mbl.is
Vísinda- og
tæknirann-
sóknir efldar
Sigurður M.
Garðarsson
ÞRÍR skiluðu inn löglegum fram-
boðum til formanns í VR. Þetta eru
Kristinn Örn Jóhannesson starfs-
maður Primera Air ehf, Gunnar Páll
Pálsson núverandi formaður VR og
Lúðvík Lúðvíksson, fyrrverandi
starfsmaður Steypustöðvarinnar.
VR er stærsta stéttarfélag lands-
ins með um 28 þúsund félagsmenn.
Aldrei áður í sögu félagsins hefur far-
ið fram allsherjaratkvæðagreiðsla um
kosningu formanns í félaginu.
Þrjú lögleg
framboð í VR
Það hefði
getað farið verr...
570 2400
www.oryggi.is
og fáðu öruggari öryggishnapp!Hringdu í
Endurnýjaðu öryggishnappinn án endurgjalds
í febrúar og fáðu reykskynjara í kaupbæti.
Karl Kristinsson? Sæll, þetta er hjá
Öryggismiðstöðinni. Við erum heima hjá
pabba þínum. Hann var að sjóða egg og
gleymdi sér aðeins yfir fréttunum.
Jú jú, það er allt í lagi með hann.
Reykskynjarinn sem fylgdi öryggis-
hnappnum gerði okkur viðvart. Það væri
fínt ef þú gætir komið, honum er svolítið
brugðið. Já, þetta hefði getað farið verr.
Öryggishnappur eldri borgara
Öryggishnappur –
armband eða hálsmen
Þegar þrýst er á öryggishnappinn
berast boð strax til vaktmiðstöðvar
Öryggismiðstöðvarinnar.
Beintengdur
reykskynjari
Öryggishnappnum fylgir reykskynjari
sem er beintengdur vaktmiðstöð
Öryggismiðstöðvarinnar.
P
IP
A
R
•
S
ÍA
•
9
0
1
0
2
SAMTÖK atvinnulífsins eru ósátt
við tillögurnar sem settar eru fram í
fyrstu skýrslu nefndar um endur-
reisn fjármála-
kerfisins og
kynntar voru í
vikunni. Tillög-
urnar gangi í
veigamiklum at-
riðum gegn
stefnumörkun
þáverandi rík-
isstjórnar um að-
gerðir í þágu fyr-
irtækja sem
unnin var í samráði við Samtök at-
vinnulífsins, Alþýðusamband Ís-
lands og fleiri hagsmunaaðila.
„Því verður ekki trúað að það sé
ætlan ríkisstjórnarinnar að taka
svona tillögugerð alvarlega eins og
gefið hefur verið í skyn,“ segir í
pistli Vilhjálms Egilssonar, fram-
kvæmdastjóra SA, á vef samtak-
anna. Framkvæmd tillagnanna leiði
til mikils ófarnaðar og framlengi
erfiðleikana í atvinnulífinu um mörg
ár ef ekki áratugi.
Nú sé það ríkið sem eigi að eiga
bankana og láta þau boð út ganga að
viðskipti eigi ekki að ganga fyrir sig
með sama hætti og áður. Þó að áður
hafi verið hvatt til þess að bankarnir
settu sér skýrar viðmiðunarreglur
um vinnubrögð við uppstokkun fyr-
irtækja. „Nú skal pólitíkin ráða. Nú
vita menn hvert á að hringja ef mál-
in ganga ekki „eðlilega“ fyrir sig í
bönkunum,“ segir í pistli Vilhjálms.
annaei@mbl.is
Framlengir
erfiðleikana
um áratugi
Vilhjálmur
Egilsson