Morgunblaðið - 14.02.2009, Blaðsíða 48

Morgunblaðið - 14.02.2009, Blaðsíða 48
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. FEBRÚAR 2009 Eftir Árna Matthíasson arnim@mbl.is PJETUR og Úlfarnir var hljóm- sveit sem fjórir félagar í Mennta- skólanum í Hamrahlíð stofnuðu 1977. Sveitin naut talsverðrar hylli innan skólans og lagði svo landsmenn að fótum sér með því geysivinsæla lagi „Stjáni saxó- fónn“ sem flestir þekkja enn þann dag í dag. Pjetur og Úlfana stofnuðu þeir Eggert Pálsson, Kjartan Ólafsson, Kristján Sigurmundsson og Pétur Jónasson. Hljómsveitin vakti slíka hrifningu að ekki varð undan því vikist að gefa út plötu, fjögurra laga, sem tekin var upp vorið 1978. Á þeirri skífu var lagið sem sló svo rækilega í gegn og á næstu árum höfðu þeir félagar í nógu að snúast í spilamennsku á skólaböllum og víðar. Önnur fjög- urra laga plata var tekin upp fjórum árum síðar, en um það leyti var starfsemi sveitarinnar orðin með minna móti. Þessar tvær plötur, átta lög alls, voru svo gefnar út fyrir skemmstu á geisladisk. Kjartan Ólafsson segir að þeir félagar hafi aldrei haft rænu á að hætta og því sé hljómsveitin enn til, komin á fertugsaldurinn. Þeir hafa líka spilað öðru hvoru í gegnum árin, alltaf ef einhver hljómsveitarmeðlima hefur óskað eftir því, og haft gaman af. Hann nefnir sem dæmi að sveitin sé ein- mitt að spila í kvöld, laugardags- kvöld. „Við höfum mjög gaman af því að spila, þetta er eins og að taka sér smá frí frá daglegum störf- um,“ segir hann en leggur áherslu á að miklu skipti að dag- skráin sé sem líkust því sem hún var forðum, því annars sé hætt við að mönnum fipist. „Við kunn- um þetta utanað ef það er í réttri röð,“ segir hann og kímir. Hluti af tónlistarsögunni Eins og getið er gekk Pjetri og Úlfunum flest í haginn. Að- spurður hvort þeir félagar hafi einhverntímann velt því fyrir sér að reka hljómsveitina áfram svar- ar Kjartan því til að það hafi aldrei komið upp. „Við vorum fyrst og fremst menntaskóla- hljómsveit og spiluðum mikið á böllum hjá jafnöldrum okkar í ýmsum skólum sem var mjög skemmtilegt. Þegar við vorum síðan farnir að spila á böllum þar sem við kynntumst skemmtanalífi eldra fólks var það ekki eins gaman og því hættum við að spila.“ Hljóðvinnslu fyrir diskinn ann- aðist Bjarni Bragi Kjartansson og Kjartan segir að hann hafi unnið mikið og gott starf við að koma upptökunum í réttan búning fyrir endurútgáfuna. Spurður hvort það hafi hvarflað að honum að láta þetta kannski kyrrt liggja þegar hann hlustaði á upptök- urnar segir Kjartan að það sér öðru nær. „Þetta er hluti af tón- listarsögunni og skylda okkar að koma því á varanlegra form svo það sé aðgengilegt fyrir þá sem vilja skoða það í dag og í framtíð- inni. Við erum náttúrlega flestir að fást við allskonar tónlist sem þátt- takendur í tónlistarlífinu í dag og þessi plata er dæmi um eitt af því sem við höfum fengist við.“ Menntaskólahljómsveit á fertugsaldri Menntó Pjetur og Úlfarnir í árdaga; Pétur, Kjartan, Eggert og Kristján. AF ÞEIM fjórum sem skipuðu kjarna Pjeturs og Úlfanna hafa þrír starfað við tónlist upp frá því, en sá fjórði er enn viðloð- andi tónlist þó það sé ekki hans aðalstarf. EGGERT PÁLSSON (píanó, trommur, hljómborð, söngur) – Pákuleikari í Sinfóníuhljómsveit Íslands og syngur með Vocis Thulis. Hefur lagt stund á þjóð- lagatónlist og sungið með hljómsveitum á því sviði. KJARTAN ÓLAFSSON (bassi, gítar, söngur) – Samdi flest laga sveitarinnar og sneri sér síðan alfarið að tónlist, tón- skáld og kennari. Hefur gefið út nokkrar plötur ólíkrar gerðar. KRISTJÁN SIGURMUNDSSON (slagverk, trommur, söngur) – Starfar við félagsmál hjá Reykjavíkurborg og hefur sung- ið með ýmsum kórum. PÉTUR JÓNASSON (gítar, söng- ur) – Klassískur gítarleikari og hefur starfað hér á landi og er- lendis. Býr á Spáni en starfar á Íslandi. Obbinn í músík Sími 462 3500 Þú færð 5 % endurgreitt í Borgarbíó Þú færð 5 % endurgreitt í Háskólabíó 650 KR. - ALLAR MYNDIR - ALLAR SÝNINGAR - ALLA DAGA ÓDÝRT Í BÍÓ Í REGNBO GANUM HÖRKUSPENNANDI MYND ÚR SMIÐJU LUC BESSON 650k r. Þú færð 5 % e n d u r g r e i t t í Regnboganum Sími 551 9000 Valkyrie kl. 3 - 5:30 - 8 - 10:30 B.i. 12 ára Bride wars kl. 4 - 6 - 8 - 10 B.i. 12 ára Revolutionary Road kl. 3 - 5:30 - 8 B.i. 12 ára Taken kl. 4 - 10:30 B.i. 16 ára Australia kl. 6 B.i. 12 ára Underworld 3 kl. 10 B.i. 16 ára MEÐAN AÐRIR FYLGDU SKIPUNUM... FYLGDI HANN SAMVISKU SINNI 650k r. Hrikalegri og flottari enn nokkru sinni fyrr! 650k r. The Wrestler kl. 5:30 - 8 - 10:30 B.i.14 ára Frost/Nixon kl. 3 - 5:30 - 8 - 10:30 B.i.12 ára Vicky Cristina Barcelona kl. 5:50 - 8 - 10:10 LEYFÐ Sólskinsdrengurinn kl. 3 - 5:30 - 8 - 10:30 LEYFÐ Refurinn og Barnið ísl. texti kl. 3 LEYFÐ Skógarstríðið 2 m/ísl. tali kl. 3 Börn-550 kr., Fullorðnir-650 kr. LEYFÐ Bride Wars kl. 8 - 10:15 LEYFÐ Skógarstríð 2 kl. 4 550 kr. f. börn, 650 kr. f. fullorðna - 6 LEYFÐ Revolutionary road kl. 10:10 B.i.12 ára Sólskinsdrengurinn kl. 6 LEYFÐ Skoppa og Skrítla kl. 4 LEYFÐ International FORSÝNING kl. 8 B.i.16 ára - S.V., MBL - DÓRI DNA, DV - S.V. Mbl. - E.E., DV “MÖRG DÚNDURSPENNANDI ATRIÐI, SÉRSTAKLEGA Í KRINGUM UNDIRBÚNINGINN AÐTILRÆÐINU” - V.J.V. ,TOPP5/FBL. - S.V. Mbl. - E.E., DV “MÖRG DÚNDURSPENNANDI ATRIÐI, SÉRSTAKLEGA Í KRINGUM UNDIRBÚNINGINN AÐTILRÆÐINU” - V.J.V. ,TOPP5/FBL. MEÐAN AÐRIR FYLGDU SKIPUNUM... FYLGDI HANN SAMVISKU SINNI 650k r. 650k r. 3 Frábær gamanmynd um fimm vini sem brjótast inn í Skywalker Ranch til að stela fyrsta eintaki af Star Wars Episode I. Sjón er sögu ríkari! Með aðalhlutverk fer m.a. Dan Fogler úr Balls of Fury, Good Luck Chuck og School For Scoundrels. SÝND Í SMÁRABÍÓI SÝND Í HÁSKÓLABÍÓI SÝND Í SMÁRABÍÓI SÝND Í SMÁRABÍÓI “Rourke eignar sér ekki aðeins myndina, hann ER öll myndin! Frábær leikur, stórgóð mynd!” - Tommi, kvikmyndir.is „Einstök kvikmyndaupplifun!” - DÓRI DNA, DV SÝND Í HÁSKÓLABÍÓI FRÁ ÓSKARSVERÐLAUNAHAFANUMRON HOWARD STÓRKOSTLEG MYND UM EINN UMTALAÐASTA SJÓNVARPSVIÐBURÐ ALLRA TÍMA 650k r. Valentínusarmyndin í ár SÝND Í HÁSKÓLABÍÓIFOSRSÝND Í BORGARBÍÓI * Gildir á allar sýningar merktar með rauðu TILBOÐ Í BÍÓ „Frost/Nixon er svo sannalega meðal bestu mynda Howards”” - V.J.V.,TOPP5.IS Þú færð 5% endurgreitt í Borgarbíói, Smárabíói og Regnboganum og Háskólabíói ef þú

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.