Morgunblaðið - 14.02.2009, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 14.02.2009, Blaðsíða 25
Gísli Stefánsson kjötiðn- aðarmaður er vinsæll jarðarfarasöngvari á Suðurlandi, syngur við jarðarför á viku allt árið. Helgi Bjarnason ræddi við Gísla um ástríðuna fyrir söngnum og gamlan draum um heimsfrægð. Ég er erfiður og þungur efég syng ekki. Með því aðstunda þetta nær maðurbetra sambandi við nátt- úruna, skynjar umhverfið vel og hug- urinn verður einhvern veginn skarp- ari,“ segir Gísli Stefánsson, söngvari og framkvæmdastjóri kjötvinnslu á Hellu. Þrátt fyrir hvatningu um að fara til útlanda til að læra meira og láta reyna á hæfileikana á stærri sviðum en hægt er að finna í kirkjum Suðurlands ákvað hann að setja fjöl- skylduna og brauðstritið í forgang. Hann lætur duga að daðra við lista- gyðjuna með því að syngja við fjölda jarðarfara um allt Suðurland og víð- ar og við ýmis önnur tækifæri. Gísli er fæddur og alinn upp á Sel- fossi. Kemur úr mikilli söng- fjölskyldu. Nægir að nefna systur hans, Kristjönu, sem er þjóðþekkt djasssöngkona. Átti ég að hlaupa frá öllu? „Kristjana fór í söngnám og ég fylgdist með því. Það dró úr mér að ég stama og stamaði mikið sem ung- lingur. Ég tók nokkra söngtíma þeg- ar ég var í Reykjavík að læra kjötiðn- ina hjá Sláturfélagi Suðurlands. Það atvikaðist síðan þannig að ég flutti með þeim austur, ekki það að ég var alla tíð ákveðinn í því að flytja aftur austur fyrir fjall,“ segir Gísli um upp- haf söngnámsins. Sigurveig Hjalte- sted óperusöngkona var með söng- æfingar fyrir nokkra karlmenn fyrir austan. Gísli taldi sig ekki mega vera að því að taka þátt í því, ekki fyrr en um miðjan vetur að einn gekk úr skaftinu. Sigurveig var hrifin af rödd Gísla og hætti ekki hvatningunni fyrr en hann fór í inntökupróf í Söngskól- anum í Reykjavík. Þar var hann í tvo vetur, fyrir um áratug, en er ekki stoltur af því hvað hann sótti tímana illa. „Ég var vinnslustjóri hjá Reykja- garði og hafði umsjón með störfum þrjátíu manns. Erfitt var að finna tíma fyrir allt sem þurfti að gera og kennararnir voru orðnir hálfleiðir á mér. Áhuginn á söngnum var alltaf jafnmikill, það var bara erfitt að finna sér tíma,“ segir Gísli. Hann fékk mikla hvatningu í Söngskólanum og segir að þar hafi þeirri hugsun skotið upp hvort hann ætti að hætta í vinnunni fyrir austan og hella sér af alvöru út í sönginn. „En það var aldrei raunverulegt val. Ég var í brauðstritinu á fullu, með fjölskyldu, ungan son og annan á leiðinni, nýbúinn að kaupa hús. Hvað átti maður að gera? Skilja konuna eftir og stökkva út í heim og verða frægur, eins og maður væri í bíó- mynd, leikriti eða skáldsögu eftir Laxness? Það er sjálfsagt hægt að spóla sig upp í svona hluti en því fylgja miklar fórnir, listagyðjan krefst síns tíma. Er það þess virði? Niðurstaða mín varð sú að ég væri alveg til í að fylgja listagyðjunni en eingöngu til að uppfylla mínar eigin langanir,“ segir Gísli. Ekki fyrir peningana Mikið sönglíf er í Rangárvalla- sýslu. Gísli syngur með Karlakór Rangæinga og með félögum úr kórn- um við jarðarfarir og á ýmsum öðr- um samkomum. Þá syngur hann ein- söng á eigin vegum við athafnir víða um Suðurland. Hann segist ekki fara ótilneyddur vestur fyrir Hellisheiði en hefur þó sungið við jarðarfarir í Borgarfirði og Reykhólasveit. „Það er nóg að gera á Suðurlandi. Ég hef aldrei beðið um að fá að syngja, þetta hefur bara þróast svona. Ég geri þetta heldur ekki fyrir peningana og syng stundum við jarðarfarir án þess að taka greiðslu.“ Hann segir að tónlistin gefi sér mikla lífsfyllingu. „Ég hlusta mikið á tónlist og hitti píanóleikara reglulega Jarðarfarasöngvari Gísli Stefánsson er vinsæll jarðarfarasöngvari. Fer í þeim tilgangi um allt Suður- land og víðar um, þótt hann reyni að losna við að fara vestur yfir Hellisheiði. Morgunblaðið/Helgi Bjarnason til að syngja þýsk ljóð og óperuaríur. Maður er alltaf að leita eftir nýrri ögrun og reyna að gera betur,“ segir Gísli. Hann er með barítónrödd og mikla vídd. Hann syngur annan bassa með karlakórnum en getur einnig sungið tenóraríur, ef því er að skipta. Söngurinn og ekki síst söngnámið hefur hjálpað Gísla að takast á við stamið. Hann segir að öndunin skipti miklu máli við það. Stamið kemur í sveiflum og stundum er viðkomandi meðvitaður um það og stundum ekki. „Þegar maður fer að stama er mik- ilvægt að ná sér niður, út úr þessum fasa. Það gerir maður með önd- uninni. Í söngnum lærir maður dýpri öndun og að hemja sig og það nýtist á fleiri sviðum lífsins,“ segir Gísli. Unnið úr kalkúnakjöti Söngurinn er áhugamálið hjá Gísla en hann segist ekki geta stundað jarðarfarasönginn nema af því að hann vinnur hjá sjálfum sér. Hann rekur kjötvinnsluna Sólfugl á Hellu, með konu sinni Hafdísi Dóru Sigurð- ardóttur, og getur því skipulagt vinnu sína þannig að hægt sé að skreppa frá auk þess sem Hafdís tek- ur við hans verkum. „Við erum með litla kjötvinnslu sem sérhæfir sig í vinnslu á fugla- kjöti. Við höfum frá upphafi einbeitt okkur að vinnslu á kalkúnakjöti úr ís- lensku hráefni. Þessi vara var áður flutt inn og við erum því eingöngu að keppa við innflutning,“ segir Gísli. helgi@mbl.is Fylgir listagyðjunni á heimaslóð Hann lætur duga að daðra við lista- gyðjuna með því að syngja við fjölda jarðarfara um allt Suðurland og víðar og við ým- is önnur tækifæri. Daglegt líf 25 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. FEBRÚAR 2009 Í BOÐI ER: Á ENSKU OG DÖNSKU • Byggingafræði • Véltæknifræði • Byggingaiðnfræði • Markaðshagfræði • Byggingatæknifræði Á ENSKU • Tölvutæknifræði • Framleiðslutæknifræði • Útflutningstæknifræði Á DÖNSKU • Véltækni • Landmælingar • Aðgangsnámskeið HJÁ VIA UNIVERSITY COLLEGE (VITUS BERING DENMARK) Í HORSENS BJÓÐUM VIÐ UPP Á MARGVÍSLEGA MENNTUN Fulltrúar skólans, Eva Þrastardóttir, Johan Eli Ellendersen og Anders Møller verða á Íslandi (Norræna húsinu) laugardaginn 21. febrúar 2009, frá kl. 11-16. Áhugasamir geta haft samband í síma 5901400 (Hótel Plaza). Leggið inn skilaboð og við munum hringja til baka eða hringið beint í Johan í síma 8458715. VIA UNIVERSITY COLLEGE CHR. M. ØSTERGAARDS VEJ 4 DK-8700 HORSENS TEL. +45 8755 4000 FAX: +45 8755 4001 MAIL: TEKMERK@VIAUC.DK WWW.VIAUC.DK KYNNINGARDAGUR Í NORRÆNA HÚSINU Í REYKJAVÍK: NÁM Í DANMÖRKU 93 3, 02 .0 9. ,m ar h Reinhold Richter skrifar á fésbók eðasnjáldurskjóðu Hrafns Jökulssonar: „Amma mín Sigurey Júlíusdóttir var alin upp hjá góðu fólki á Kambi, hún var alla tíð eldrauð kvenréttindakona. Á Drangsnesi furðuðu menn sig á að kona alin upp í þokusveit væri svona staðfastur sósíalisti. Oft heyrði ég ömmu segja: „Allt er betra en íhaldið.“ Hún hallmælti aldrei Framsókn og misréttið var Íhaldinu einu að kenna, brauðstritinu lýsti hún svona: Þó ég hafi starfið stranga stundað eins og best ég gat mega aldrei af mér ganga áhyggjur um föt og mat. Afi var framsóknarmaður og keypti Tímann en amma tók á móti blaðinu sínu með þessum orðum: Þarna kemur Þjóðviljinn það er nú meiri snilldin. Geislar af honum góðviljinn gáfurnar og mildin.“ „Smávaxinn menntamálaráðherra vippaði Gunnari Birgissyni úr sæti sem hann hafði set- ið í mannsaldur,“ skrifar Hjálmar Frey- steinsson og yrkir: Grátinn burtu ganga má Gunnar bassi. Sá hafði lengi setið á sínum rassi. Þannig veltir þúfa smá þungu hlassi. Magnús Geir Guðmundsson las frétt um „Frið og blóm á Austurvelli“ og orti á bloggið meðan á mótmælum stóð: Mótmæli að sönnu með sóma sýndi nú lýður háróma. Trega sinn tjáði, traustu með ráði í faðmi friðar og blóma! VÍSNAHORNIÐ pebl@mbl.is Af mildi og Þjóðvilja VÍSINDAMENN í Bandaríkjunum telja sig hafa greint helstu veikleika vírussins sem veldur venjulegu kvefi og að því sé lyf við þessum kvilla í sjónmáli. Engin með- öl hafa hingað til dugað gegn þessum vírus (e. rhinov- irus). Ekki hefur miklum fjármunum verið kostað til rannsókna á venjulegu kvefi því það gengur yfirleitt fljótt yfir og veldur sjúklingum litlu tjóni. Því hefur verið talið ólíklegt að lyfjaeftirlitið samþykki lyf við kvefi, hafi það einhverjar algengar aukaverkanir. Nú telja vísindamenn við Wisconsin-háskóla í sam- vinnu við háskólann í Maryland, sig hafa komist hjá þessum vandamálum. Hafa þeir afhjúpað kvefvírusinn og greint hann með aðferðum erfðafræðinnar í öreind- ir. Þannig hafa þeir komist að því að ákveðnir þættir vírussins eru sífellt að breytast en aðrir ekki. Með því að þróa lyf sem verkar á föstu þætti vírussins sé hugs- anlega hægt að lækna kvef. En vísindamennirnir eru ekki allir jafn sannfærðir um að þetta verði raunin enda kostnaður við lyfjaþróun gríðarlegur. Hins vegar telja þeir að niðurstöðurnar og áframhaldandi rann- sóknir á lækningu komi astmasjúkum til góða þar sem vírusinn er talinn valda 50% allra astmakasta. Morgunblaðið/Ásdís Lyf Kvef er hvimleitt en yfirleitt ekki hættulegt. Lækning við kvefi í sjónmáli?

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.