Morgunblaðið - 14.02.2009, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 14.02.2009, Blaðsíða 26
26 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. FEBRÚAR 2009 Einar Sigurðsson. Ólafur Þ. Stephensen. Forstjóri: Ritstjóri: STOFNAÐ 1913 Útgefandi: Árvakur hf., Reykjavík. Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal. Útlitsritstjóri: Árni Jörgensen. Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á slóðinni http://morgunbladid.blog.is/ Óðagot á ekkivið þegarsett eru ný lög um Seðlabanka Íslands. Það er vitað mál að vinna þarf hratt á Al- þingi fram að kosningum, en það má ekki verða á kostnað gæða löggjafarinnar. Nú þeg- ar eru dómstólar farnir að gera göt í neyðarlögin frá því í október, sem virðast að mörgu leyti gölluð. Þingmenn eiga ekki að hætta á að gera mistök í flýtinum. Vinnubrögðin við vinnslu Seðlabankafrumvarpsins eru ekki að öllu leyti traustvekj- andi. Á þingfundi á föstudegi fyrir rúmri viku stakk Ragn- heiður Elín Árnadóttir, þing- maður Sjálfstæðisflokksins, upp á því að frumvarpið yrði sent erlendum aðilum, m.a. Al- þjóðagjaldeyrissjóðnum, til umsagnar. Jóhanna Sigurð- ardóttir forsætisráðherra svaraði því til að slíkt væri ekki nauðsynlegt. Þá voru hennar eigin embættismenn þegar búnir að senda gjald- eyrissjóðnum frumvarpið til umsagnar! Nú liggur sú umsögn fyrir (forsætisráðherra vissi reynd- ar ekki af henni fyrr en um síðir) og mikilvægt er að skoð- að verði vel hvort ekki eigi að fara að þeim ráðum, sem Al- þjóðagjaldeyrissjóðurinn gef- ur. Í gær lá fyrir að Seðlabanki Evr- ópu var reiðubúinn að veita umsögn um frumvarpið. Því hafnaði meiri- hluti stjórnarliðs- ins og Framsóknarflokksins í viðskiptanefnd, með þeim rök- um að ekki væri hefð fyrir því að leita umsagnar erlendra að- ila um þingmál. Hafi það verið hefð, er hún klárlega úrelt nú þegar stór hluti löggjafar okkar sprettur upp úr alþjóðlegu samstarfi og samningum. Samfylkingarmenn í við- skiptanefnd hefðu raunar átt að hafa forgöngu um að nefnd- in leitaði umsagnar hjá Seðla- banka Evrópu (ECB). Þannig hefði mátt undirbúa hugs- anlegt samstarf Seðlabanka Íslands og bankans í Frank- furt í framtíðinni, þegar Ís- land kynni að vera orðið aðild- arríki Evrópusambandsins. Með því að fá umsögn frá ECB hefði mátt tryggja að skipulag og stjórn Seðlabanka Íslands uppfyllti þær kröfur, sem gerðar eru til seðlabanka að- ildarríkjanna í slíku samstarfi. Og það er raunar enn ekki of seint. Það er vissulega mikilvægt að breyta stjórn Seðlabank- ans. En það er ekki svo brýnt að menn eigi ekki að vanda sig við að setja starfi bankans nýj- an ramma. Alþingi á að vanda sig við að setja Seðlabankanum nýjan ramma} Rólegu lögin HugmyndirFrancescu af Habsburg um að stofna nýtt safn hér á landi með samvinnu sinnar eigin stofnunar um sam- tímalist og dánarbús Dieters Roth fela í sér óvenjulegt sóknarfæri. Það er ekki oft sem það gerist að erlendir að- ilar eru tilbúnir til að festa umtalsverða fjármuni í verk- efni sem tæpast mun skila þeim miklu í beinhörðum pen- ingum. Hvað þá að um sé að ræða verkefni sem þó getur verið íslensku samfélagi afar mikils virði bæði í fjárhags- legum skilningi og menning- arlegum. Verkefnið sem fjallað er um í Lesbók og á menningar- síðum Morgunblaðsins í dag, felur í fyrsta lagi í sér góðar líkur á því að arfleifð Dieters Roth, eins virtasta listamanns seinni tíma, eignist var- anlegan samastað á Íslandi þar sem hann átti djúpar ræt- ur. Það er að sönnu ómet- anlegt. Í öðru lagi felur það í sér að verðmætt og þekkt safn Francescu af Habsburg sjálfrar verði hér til sýnis. Í þriðja lagi að tvær mjög mikilvægar ís- lenskar menningar- stofnanir, Listaháskólinn og Nýlistasafnið, verði þátttak- endur í samstarfi um safnið sem gæti skapað einstakar aðstæður við að reyna á og þróa nýtt safnamódel, eins og Hans Ulrich Obrist, heims- þekktur sýningarstjóri, bend- ir á. Á tímum þegar ríki og borg berjast í bökkum við að halda grunnþjónustu gangandi og eru lítt aflögufær, felst í verk- efnum sem byggjast á veru- legu erlendu fjárframlagi í samvinnu við fjársveltar ís- lenskar stofnanir tækifæri sem erfitt er að hafna. Safn á borð við þetta myndi ekki ein- ungis glæða auð og niðurnídd hús lífi, heldur einnig skapa töluverðar tekjur bæði af er- lendum og innlendum gestum. Nú er um að gera að ríki og borg sameinist um að skapa þann samvinnugrundvöll sem nauðsynlegur er til að verk- efnið nái fram að ganga. Ríki og borg þurfa að sameinast um samvinnugrundvöll} Vandfundið erlent fé í boði S egðu þjóð þinni að hætta að drepa hvali,“ sagði hann kuldalega við mig og var greinilega misboðið. Þetta var á pósthúsi í litlum, fal- legum bandarískum bæ, Great Barrington. Ég var í sakleysi mínu að póst- leggja bréf heim til Íslands og þessi ókunnugi maður sá ICELAND skrifað stórum stöfum á umslagið. Ég var sautján ára skiptinemi árið 1989 og kannski hélt hann að ég mundi þakka ábendinguna en það var öðru nær. Ég reyndi að vera kurteis en svaraði að bragði að ef hann segði sinni eigin þjóð, Bandaríkjunum og CIA, að hætta að drepa lítil börn í Suður-Ameríku þá mundi ég skila því heim að honum væri illa við hvalskurð. Með því kvöddumst við. Þetta var áður en Ísland varð stuðningsaðili stríðsins í Írak – þar sem fleiri börn voru drepin en allir hvalir heimsins – og þetta var líka áður en Íslendingar eyðilögðu sisvona fegurstu fossaröð Evrópu og gáfu gróðann til alþjóðlegra auðhringja. Já, þetta var þegar Ísland var allt annað land en það er í dag. Skynsemin kennir okkur að greina aðalatriði frá aukaatriðum, stærri hagsmuni frá minni, og velja þær orrustur sem öllu máli skipta. Stöndum við í sömu sporum nú og sautján ára skólastúlka gerði fyrir 20 árum? Eða hefur kannski eitthvað breyst? Á næstu árum verður okkar litla samfélag ekki síst að reiða sig á greinar eins og sjávarútveg og ferðaþjónustu – skapandi menningu, samstöðu, nýsköpun? Og ekki má gleyma landbúnaði sem sér okkur fyrir holl- um, ferskum, góðum mat úr heimabyggð – fyrir utan náttúrlega mannlífi, landslagi, um- hverfi, lifandi byggð. Staðreyndin er sú að æ erfiðara reynist að selja fiskinn okkar í út- löndum. Viðskiptaaðilar nýta sér veika stöðu Íslands og forsenda áframhaldandi viðskipta, traustið, er í uppnámi. Ferðaþjónustan er sú grein sem vex hér hvað hraðast og náttúra landsins og menning býður ótæmandi mögu- leika. Heildarhagsmunir okkar allra eru að veðja á réttan hest til framtíðar. Hvalveiðar? Veljum okkur orrustur, metum vígvellina, verum skynsöm. Gefum ekkert eftir á sviðum þar sem við þurfum bráðnauðsynlega að vinna sigra, en sökkvum okkur ekki á kaf í hliðarbardaga sem hætta meiri hagsmunum fyrir minni. Að stimpla litla ICELAND nú sem enn frek- ara villimannasamfélag, nú þegar við verðum, verðum að geta selt fiskinn okkar, verðum að geta eflt ferðaþjón- ustuna, verðum að geta byggt upp traust á alþjóðlegum vettvangi – slíkt er ekki innihaldsríkt sjálfstæði heldur rangt stöðumat. Dorothy er ekki lengur í Kansas eða Great Barrington og árið er ekki lengur 1989. Íslendingar eru ekki lengur hvalveiðiþjóð þótt nostalgían sé sterk. Gömul slagorð sem bergmála hið liðna gagnast lítt. Hvalrekistefna á hlaupum úr valdastól er ekki beinlínis ný hugsun og ekki beinlínis framtíðin. Veljum framtíðina. liljagretars@gmail.com Guðfríður Lilja Grétarsdóttir Pistill Hvalrekistefna eða framtíðin? Framleiðsluhvatinn víkur úr stefnu ESB FRÉTTASKÝRING Eftir Baldur Arnarson baldura@mbl.is S ú meginbreyting hefur orð- ið á styrkjakerfi Evrópu- sambandsins í landbúnaði að styrkjunum er ekki lengur ætlað að vera framleiðsluhvetjandi, líkt og áður var. Smjör- og kjötfjöllin heyra því sög- unni til. Þetta segir Simon Kay, tæknilegur ráðgjafi framkvæmdastjórnar Evr- ópusambandsins í landbúnaðar- málum, sem bendir á að nú fari um 87 prósent heildarstyrkjanna í sameig- inlegri landbúnaðarstefnu ESB til annarra þátta en framleiðslunnar. Bændum sé nú greitt fyrir að ganga vel um náttúruna, svo sem með því að tryggja að vatnsból mengist ekki af ofnotkun áburðar, ásamt því sem fé sé varið til að tryggja að byggð og sú menning sem henni fylgir hald- ist í sveitunum en leggist ekki af vegna breytinga á rekstrarumhverfi landbúnaðarins. Að mati Kays, sem kynnti sameiginlega landbúnaðarstefnu ESB á Fræðaþingi landbúnaðarins í Reykjavík fyrir helgi, er styrkjakerf- ið því orðið hluti af víðtækari umhverfisstefnu sambandsins. Óhugsandi sé að ná sama árangri í náttúruvernd í dreifbýli án samvinnu við bændur sem þekki vel til nær- sveita sinna og eigi hag sinn undir því að vistkerfi séu óspillt. Þarf að reikna dæmið til enda Inntur eftir þeirri gagnrýni að landbúnaðaráætlun sambandsins sé fjárhagslegt svarthol sem sogi til sín gífurlegt fé úr vasa þegnanna svarar Kay því til að bragði að það sé rétt að áætlunin sé stór hluti af útgjöldum ESB, eða alls um 40 prósent. Á hitt beri að líta að útgjöld til heil- brigðismála og samgöngumála falli á aðildarríkin og því yrði landbúnaður- inn aðeins brot af heildarútgjöldum sambandsins að þessum veigamiklu liðum meðtöldum. Aðspurður hvort það sé ekki samt sem áður tilefni til að auka markaðs- frelsi í landbúnaði álfunnar vísar Kay til þess að greinin sé í eðli sínu sveiflukennd og því þurfi með ein- hverju móti að tryggja bændum stöð- ugt rekstrarumhverfi. Sama hugsun sé uppi vestanhafs þar sem bændum sé greitt fyrirfram fyrir afurðir á hráefnismarkaðnum í Chicago, fyrirkomulag sem geri kleift að skipuleggja fram í tímann. Annað atriði sé að í reiknilíkönum fyrir markaðsdrifið rekstrarumhverfi bænda sé gjarnan litið hjá kostnaði sem falli á þriðja aðila, svo sem kostn- aði vegna röskunar á lífríki og því samfélagslega tapi sem hnignun byggðar hefur í för með sér. Ekki leyft að halda í hömlurnar Guðmundur Sigþórsson, sendi- ráðsráðunautur sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytisins í Brussel, hélt erindi á fræðaþinginu um áhrif ESB-aðildar á landbúnaðinn. „Nýjum ríkjum er ekki leyft að halda í einhverja verðíhlutun eða gamlar hömlur. Landbúnaðar- samþykktir ESB gilda alfarið frá fyrsta degi,“ sagði Guðmundur. Hann útskýrði því næst að ef um- sóknarríki næðu að knýja á um sér- stakar aðlaganir fyrir landbúnaðinn í aðildarsamningi yrðu þær m.a. að takmarkaðst við efni og tíma og ekki leiða til „marktækrar truflunar“ á samkeppni á innri markaði ESB. Þá bar Guðmundur saman fram- leiðendaverð á helstu landbúnaðar- afurðum í nokkrum löndum og á Ís- landi miðað við að gengi evru væri 175 krónur og kom þar fram að verð á eggjum og svínakjöti væri hér hátt, en verð á kjúklingum, nautakjöti og mjólk umtalsvert lægra. AP Styrkjakerfi Sem dæmi um stuðning ESB við landbúnað einstakra ríkja má nefna að 2007 komu 58% af styrkjum til finnska landbúnaðarins frá ESB. Daði Már Kristófersson, sérfræð- ingur við Hagfræðistofnun Háskóla Íslands, fjallaði um þjóðhagslegan kostnað landbúnaðarkerfisins hér á landi í fyrirlestri á fræðaþinginu. „Landbúnaður nýtur ríkisstuðn- ings víða um heiminn. Stuðning- urinn er rökstuddur á margvís- legan hátt, allt frá því að hann tryggi matvælaöryggi í að hann viðhaldi menningarlandslagi og byggð,“ segir Daði Már. „Stuðningnum fylgir þjóðhags- legur kostnaður. Þetta er ekki sú upphæð sem bændur fá í stuðning. Það eru einungis tilfærslur frá ein- um hópi innan þjóðfélagsins til ann- ars sem ekki rýra þjóðarhag í sjálfu sér. Þjóðhagslegur kostnaður felst í glötuðum ábata skattgreiðenda vegna þeirra skatta sem renna til landbúnaðarins og í glötuðum ábata neytenda vegna hærra vöru- verðs í vegna innflutningshafta. Samkvæmt niðurstöðunum liggur þessi kostnaður á bilinu 1,5-2,5 milljarðar og hefur farið mjög lækkandi á undanförnum misserum vegna gengisfalls krónunnar.“ 1.500-2.000 MILLJÓNIR ››

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.