Morgunblaðið - 14.02.2009, Qupperneq 16
16 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. FEBRÚAR 2009
Eftir Sigtrygg Sigtryggsson
sisi@mbl.is
HÆSTIRÉTTUR hefur dæmt kylf-
ing til að bera skaðabótaábyrgð á
helmingi þess tjóns sem varð þegar
hann skaut golfbolta í hægra auga
annars kylfings sem var við leik á
vellinum. Afleiðingarnar urðu þær að
maðurinn skynjar eingöngu ljós með
auganu og telst því blindur á því. Tel-
ur augnlæknir ólíklegt að maðurinn
fái frekari bata.
Atburðurinn varð 16. nóvember
2002 á golfvelli Golfklúbbsins Kjalar í
Mosfellsbæ. Kylfingurinn sem sló var
að leika ásamt fleirum á fjórðu braut
vallarins en sá sem varð fyrir kúlunni
var að leika á þriðju braut.
Fyrir Hæstarétt var lagður upp-
dráttur af golfvelli Golfklúbbsins
Kjalar í Mosfellsbæ, sem var sagður
gerður eftir loftmynd, tekinni á slys-
árinu 2002. Áður en munnlegur mál-
flutningur hófst fyrir Hæstarétti
gengu dómarar og málflytjendur á
vettvang slyssins.
Fjarlægðin 60-80 metrar
Í dómnum segir að af uppdrætt-
inum sem lagður var fyrir Hæstarétt
verði ráðið að stefnan frá högg-
staðnum að þeim stað þar sem áfrýj-
andi stóð hafi varla verið nema um
10-15 gráður frá því sem telja megi
eðlilega eða æskilega höggstefnu við
upphafshögg stefnda frá vetrarteig
fjórðu brautar. Fyrir liggi í málinu að
fjarlægðin milli þessara tveggja staða
sé 60-80 metrar svo sem lagt er til
grundvallar í héraðsdómi.
Síðan segir orðrétt:
„Golfhóparnir tveir vissu hvor af
öðrum. Teigur fjórðu brautar stendur
nokkru hærra en völlurinn fyrir neð-
an, þar sem áfrýjandi stóð. Virðist
stefndi hafa ætlað slá bolta sinn hátt
yfir og lítið eitt til hliðar við áfrýjanda
og félaga hans. Eftir vettvangsgöngu
Hæstaréttar og raunar miðað við
gögn málsins er ekki vafi á að ekkert
bar í milli stefnda og áfrýjanda þegar
höggið var slegið. Þeir gátu því séð
hvor til annars. Þó að fallast megi á
það sem segir í forsendum hins
áfrýjaða dóms um meginviðhorf við
sakarmat við iðkun golfíþróttarinnar,
og raunar íþrótta almennt, er ekki
unnt að fallast á, eins og þetta mál
liggur fyrir, að þau viðhorf leiði til
þess að sök verði ekki lögð á stefnda.
Er þá haft í huga að áfrýjandi var
staddur nánast beint í skotlínu hans,
stefndi hlaut að hafa séð áfrýjanda
þegar hann sló og auðvelt var að gera
honum og félögum hans viðvart, áður
en slegið var.“
Dómurinn segir að ekki sé unnt að
fallast á málflutning stefnda um að
sjónarmið um áhættutöku leiði til
þess að hann verði ekki gerður bóta-
ábyrgur fyrir tjóni áfrýjanda. Sjón-
armið sem að þessu lúti hafi fyrst og
fremst áhrif á sakarmatið að og hefur
þar verið litið til þeirra. Samkvæmt
framansögðu verði fallist á með áfrýj-
anda að stefndi beri fébótaábyrgð á
tjóni hans. Þá segir dómurinn að
áfrýjandi, þ.e. kylfingurinn sem varð
fyrir kúlunni, hafi vitað af ráshópi
stefnda og jafnframt að sá hópur
hafði lokið við að leika þriðju holu og
var kominn á teig þeirrar fjórðu.
„Áfrýjandi hafði slegið boltann sinn á
svæði milli brautanna og var því
miklu nær skotlínu af fjórða teig en
annars hefði verið. Hann hafði
óskerta sjónlínu að þeim stað þar sem
stefndi sló. Leikreglur í golfi gera ráð
fyrir, eins og í héraðsdómi greinir, að
sá sem leikur holu með hærra númeri
njóti forgangs gagnvart þeim sem á
eftir honum leika. Við þessar að-
stæður verða gerðar aðgæslukröfur
til áfrýjanda, sem hann sinnti ekki
nægilega umrætt sinn. Þykir hæfi-
legt að láta hann af þessum sökum
sjálfan bera helming tjóns síns,“ segir
í dómsorðum.
Dóminn kváðu upp hæstarétt-
ardómararnir Ólafur Börkur Þor-
valdsson og Jón Steinar Gunn-
laugsson. Viðar Már Matthíasson
settur héraðsdómari skilaði sér-
atkvæði. Hann vildi staðfesta héraðs-
dóminn og sýkna þann sem sló kúl-
una. Lögmaður áfrýjanda var
Ragnar Aðalsteinsson hrl. en lögmað-
ur stefnda Jakob R. Möller hrl.
Kylfingur bótaskyldur
Sló golfkylfu í hægra auga annars kylfings sem missti sjón á auganu
Einn hæstaréttardómari skilaði sératkvæði og vildi sýkna kylfinginn
Morgunblaðið/Ómar
Á golfvellinum Þegar golf er leikið þurfa kylfingar að gæta sérstaklega að
því að vera ekki í skotlínunni hjá öðrum kylfingum sem eru að leik.
Í HNOTSKURN
»Það getur verið lífs-hættulegt að fá golfkúlu í
sig og henni fylgir algengasta
og alvarlegasta hættan við
golfiðkun.
»Golfbolti vegur 46 grömmog hann getur náð hrað-
anum 260 km/klst., eða 65m/
sek. fyrst eftir höggið.
»Kylfan sem notuð var viðslysaskotið var upphafs-
kylfa, svokallaður „dræver.“
Hún er nánast eingöngu notuð
við upphafshögg og mark-
miðið er að slá sem allra
lengst og fastast.
Dómur Hæstaréttar verður tekinn
til skoðunar hjá Golfsambandi Ís-
lands, að sögn Harðar Þorsteins-
sonar, framkvæmdastjóra sam-
bandsins. Að því er hann best veit
er þetta fyrsta mál sinnar teg-
undar sem kemur til kasta Hæsta-
réttar. Hins vegar hafi mál af
þessu tagi komið kasta til dóm-
stóla erlendis.
Hörður segir að Golfsambandið
hafi fylgst með málarekstrinum
frá upphafi og beðið hafi verið eft-
ir endanlegri niðurstöðu.
Hann segir að í kjölfarið þurfi að
skoða ýmsa fleti málsins, m.a.
tryggingamál kylfinga. Þau þurfi
væntanlega að endurskoða í kjöl-
far dómsins.
Eins komi til skoðunar hvort
Golfsambandið þurfi að brýna enn
frekar fyrir kylfingum að hættur
geti leynst á golfvellinum og ann-
ars staðar.
Skoða verður tryggingamál kylfinga
Ólöf Nordal, þing-
maður Sjálfstæð-
isflokksins í Norð-
austurkjördæmi,
hefur ákveðið að
taka þátt í próf-
kjöri Sjálfstæð-
isflokksins í
Reykjavík fyrir
komandi alþing-
iskosningar. Prófkjörið fer fram
13. og 14. mars. Ólöf tók sæti á Al-
þingi eftir þingkosningarnar 2007
og hefur m.a. átt sæti í allsherjar-
og umhverfisnefnd.
Ólöf Nordal
fram í Reykjavík
Ólöf Nordal
EINAR Skúlason,
fyrrverandi fram-
kvæmdastjóri Al-
þjóðahússins og
skrifstofustjóri
þingflokks Fram-
sóknarflokksins,
býður sig fram í
fyrsta sæti Reykja-
vík suður á lista
Framsóknarflokksins í Reykjavík.
Einar er 37 ára gamall, þriggja
barna faðir, með BA-gráðu í stjórn-
málafræði frá Háskóla Íslands og
MBA-gráðu frá Háskólanum í Ed-
inborg.
Einar í 1. sæti
Framsóknar
Einar Skúlason
JENS Garðar
Helgason, fram-
kvæmdastjóri
Fiskimiða ehf. og
bæjarfulltrúi í
Fjarðabyggð, sæk-
ist eftir 4. sæti í
prófkjöri sjálfstæð-
ismanna í NA-
kjördæmi. Hann er
32 ára gamall og
uppalinn á Eskifirði. Jens hefur
gegnt ýmsum trúnaðar- og stjórn-
arstörfum fyrir Sjálfstæðisflokk-
inn.
Jens Garðar sækist
eftir 4. sætinu
Jens Garðar
Helgason
FRÉTTASKÝRING
Eftir Magnús Halldórsson
magnush@mbl.is
SALA þriggja fulltrúa í SPRON
sumarið 2007 á stofnfjárhlutum í
sjóðnum hefur dregið dilk á eftir sér.
Frá því upplýst var um söluna í þing-
haldi í máli Saga Capital fjárfesting-
arbanka gegn Insolidum ehf., sem er
í eigu Daggar Pálsdóttur hrl. og Ólafs
Ágústs Ólafssonar sonar hennar, hef-
ur harðlega verið deilt á söluna af
hálfu stofnfjáreigenda og ekki síður
Samtaka fjárfesta, með Vilhjálm
Bjarnason, aðjúnkt og fram-
kvæmdastjóra, sem helsta talsmann.
Ekki var skýrt frá því opinberlega að
stjórnarmennirnir hefðu „fóðrað
stofnfjármarkaðinn“ eins og það var
orðað í þinghaldi.
Eftir að Jóhannes Karl Sveinsson
hrl. greindi frá sölunni í varnarræðu í
héraðsdómi hefur mikið vatn runnið
til sjávar.
Stjórnarmenn sem seldu stofnfjár-
hluti í SPRON sumarið 2007 voru
Hildur Petersen, sem var formaður
stjórnar, Ásgeir Baldurs og Gunnar
Þór Gíslason. Stjórnin sjálf hafði
frumkvæði að því að upplýsa um söl-
una eftir að ljóst var að félag Gunnars
Þórs, Sundagarðar hf., hafði selt hluti
fyrir 188 milljónir að nafnvirði. Hild-
ur og Ásgeir seldu fyrir umtalsvert
minna en í heild seldu stjórnarmenn
hluti fyrir 196 milljónir að nafnvirði.
Að raunvirði var um að ræða tvo til
þrjá milljarða króna.
Stofnfjáreigendur, þar á meðal Vil-
hjálmur fyrir hönd smærri fjárfesta
og Árni Gunnarsson, fyrrverandi
þingmaður, kærðu sölu stjórn-
armanna til ríkislögreglustjóra. Hinn
18. desember komst saksóknari efna-
hagsbrota, Helgi Magnús Gunn-
arsson, að því að ekki væri tilefni til
rannsóknar á meintum inn-
herjasvikum. Eins og greint var frá í
Morgunblaðinu í gær hefur rík-
issaksóknari nú falið efnahags-
brotadeildinni að rannsaka hvort sala
stjórnarmannanna kunni að fela í sér
fjársvik.
Sneri við niðurstöðu
frá ríkislögreglustjóra
Morgunblaðið/BrynjarGauti
Hringt inn SPRON var skráður á markað haustið 2007. Forsvarsmenn
SPRON sögðu í tilkynningu í gær að sala stjórnarmanna hefði áður verið
rannsökuð af FME og RLS en ekkert ólöglegt hefði komið í ljós.
Sala stjórnar-
manna SPRON
verður rannsökuð
BREYTINGAR í framleiðslu og auk-
in sjálfvirkni leiða til fækkunar
starfsfólks í mjólkursamlaginu í
Búðardal. Samlagið er einn af
stærstu vinnustöðum byggðarlags-
ins. Ekki eru uppi áform um róttæk-
an niðurskurð starfseminnar.
Unnið er að sérhæfingu mjólk-
ursamlagsins í Búðardal til fram-
leiðslu á mygluostum og fetaosti, að
sögn Egils Sigurðssonar, formanns
stjórnar Mjólkursamsölunnar. Þang-
að hefur verið flutt ostagerð frá öðr-
um starfsstöðvum en önnur fram-
leiðsla færð í burtu. Jafnframt hefur
verið fjárfest í tæknibúnaði þannig
að sjálfvirkni hefur aukist. Egill seg-
ir að með því hafi grundvöllur
vinnslunnar verið styrktur. Breyt-
ingarnar leiði hins vegar til þess að
störfum fækki heldur.
Mikilvægur vinnustaður
„Við höfum reynt að fylgjast með
þessum breytingum. Störfum hefur
ekki fækkað stórkostlega, enn sem
komið er, og yfirmenn fyrirtækisins
fullyrða við okkur að það standi ekki
til,“ segir Þórður Ingólfsson, oddviti
Dalabyggðar. Mjólkursamlagið er
næststærsti vinnustaðurinn í Búð-
ardal, þar hafa verið hátt í 40 starfs-
menn, og segir Þórður starfsemi
þess afar mikilvæga. helgi@mbl.is
Sérhæfð
ostagerð í
Búðardal
Samfylking og Vinstri hreyfingin
grænt framboð hafa komið sér
saman um að Alþingiskosningar
fari fram laugardaginn 25. apríl
næstkomandi. Morgunblaðið
mun daglega birta fréttir sem
tengjast framboðum, próf-
kjörum, kosningafundum o.fl.
Kosningar
2009
RAGNAR Thor-
arensen gefur kost
á sér í 3. sæti hjá
Samfylkingunni í
NA-kjördæmi.
Ragnar er land-
fræðingur að
mennt og stundar
nú meistaranám í
viðskiptum og
stjórnun (MBA) við
Háskóla Íslands. Ragnar hefur unn-
ið ýmis störf til sjós og lands en síð-
ustu ár hefur hann starfað á fast-
eignasölumarkaðnum.
Ragnar fer
í prófkjör í NA
Ragnar
Thorarensen
ÁKVÖRÐUN um prófkjör Samfylk-
ingarinnar í Reykjavík verður tekin
á fundi fulltrúaráðs flokksins nk.
mánudag, 16. febrúar. Fundurinn
fer fram á Grand hóteli og hefst kl.
20.30.
Á dagskrá fundarins er einnig
umræða um kosningabaráttuna
framundan.
Ákvörðun um próf-
kjör í Reykjavík
STUTT