Morgunblaðið - 14.02.2009, Side 21

Morgunblaðið - 14.02.2009, Side 21
Frá19.990kr.* MasterCard Mundu ferðaávísunina! Skógarhlí› 18 • 105 Reykjavík • Sími 595 1000 • Fax 595 1001 • Akureyri sími: 461 1099 • www.heimsferdir.is E N N E M M / S IA • N M 3 65 81 Heimsferðir bjóða þér beint flug til Alicante næsta sumar eins og undanfarin 17 ár. Við bjóðum betri verð, frábæra flugtíma og fyrsta flokks þjónustu alla leið – fyrir þig! Nú er tækifærið að bregðast skjótt við og tryggja þér lægsta verðið því ódýrustu sætin fljúga hratt út á www.heimsferdir.is. Frá kr. 39.980 báðar leiðir með sköttum. Fargjald A. Takmarkaður sætafjöldi á völdum brottf. Tryggðu þér lægsta verðið og bókaðu strax á www.heimsferdir.is Beint morgu nflug á frábærum kjörum árið 2009 Alicante *) Fl ug sæ ti að ra le ið m eð sk ö tt um .F ar g ja ld A . N et ve rð á m an n. Ta km ar ka ð sæ ta fr am b o ð á þ es su ve rð i. V er ð g et ur b re ys t án fy rir va ra . Veldu traustan ferðafélaga í sumar! Birt með fyrirvara um prentvillur. Heimsferðir áskilja sér rétt til leiðréttinga á slíku. Ath. að verð getur breyst án fyrirvara. Fréttir 21ERLENT MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. FEBRÚAR 2009 Eftir Baldur Arnarson baldura@mbl.is „ÞAÐ voru mín mistök, augljóslega, að segja já,“ sagði repúblikaninn Judd Gregg þegar hann leitaðist við að útskýra hvers vegna hann hefði þegið en síðan afþakkað stöðu við- skiptaráðherra í stjórn Baracks Obama forseta, þrátt fyrir að aðhyll- ast að eigin sögn stranga aðhalds- semi í fjármálum. Vart þarf að taka fram að sú stefna gengur þvert á hundraða milljarða dala viðreisnarpakka ríkis- stjórnarinnar að undanförnu, nú síð- ast 789 milljarða dala áætlun sem samþykkt var í gær. Ákvörðun Greggs er nýtt áfall fyr- ir Obama, sem lagði í kosningabar- áttu sinni mikla áherslu á að brúa bilið milli demókrata og repúblik- ana. Með því að þiggja stöðuna hefði öldungadeildarþingmaðurinn Gregg þannig orðið þriðji ráðherrann úr röðum repúblikana í stjórn Obama, en fyrir eru varnarmálaráðherrann Robert M. Gates og Ray LaHood samgönguráðherra. Með Gregg innanborðs hefðu því aldrei jafn margir repúblikanar setið á ráðherrabekk í tíð nokkurs demó- krataforseta. Frá því Obama tók við embætti hafa nokkrir kandídatar í há embætti helst úr lestinni. Þurftu frá að hverfa Tom Daschle gat ekki tekið við embætti heilbrigðisráðherra vegna skattahneykslis og Bill Richardson, ríkisstjóri Nýju-Mexíkó, kom að sama skapi ekki lengur til greina sem viðskiptaráðherra vegna rann- sóknar á embættisfærslum hans. Báðir eru demókratar. Þá þurfti Nancy Killefer, sem ætlað var að auka skilvirkni í stjórnkerfinu, frá að hverfa vegna skattrannsóknar. Mál Greggs sker sig því úr þar sem hann hafnar embætti að eigin frumkvæði og hefur dagblaðið The Washington Post það eftir aðstoðarmönnum Obama að forset- anum finnist sem honum hafi ekki verið umbunað sem skyldi fyrir brú- arsmíðina á milli flokkanna. Hann finni sig því ekki knúinn til að fylla í skarðið sem Gregg skilur eftir sig með repúblikana. Segir þar að Obama gæti snúið sér að blökkumanninum John W. Thompson, forstjóra hátæknifyrir- tækisins Symantec, með þeim fyrir- vara að fjármál jafn auðugs manns gætu valdið vandkvæðum, með vísun til áðurnefndra skattrannsókna. Gregg tekur ekki við stöðu viðskiptaráðherra Áfall fyrir tilraunir Obama til að brúa bilið á milli flokkanna Reuters Hlið við hlið Barack Obama og Judd Gregg í upphafi mánaðarins. Vikan var ekki alslæm fyrir Obama því öldungadeildin samþykkti á fimmtudag útnefningu Leon E. Pa- netta í embætti yfirmanns banda- rísku leyniþjónustunnar, CIA. Pa- netta, sem tekur við embættinu af Michael V. Hayden, var starfs- mannastjóri í Hvíta húsinu í emb- ættistíð Bills Clintons forseta á ár- unum 1994 til 1997. Þótt Panetta hafi ekki verið fyrsti valkostur forsetans hefur hann engu að síður umtalsverða reynslu af utanríkismálum og hef- ur m.a. átt sæti í sérstakri rann- sóknarnefnd í málefnum Íraks. Útnefningin var hins vegar um- deild og má nefna að demókratinn Dianne Feinstein var í fyrstu and- víg því að Panetta stjórnaði CIA. Panetta stjórnar bandarísku leyniþjónustunni Hjálparstarf kirkjunnar, Mæðrastyrksnefnd Reykjavíkur og Reykjavíkurdeild RKÍ þakka öllum sjálfboðaliðum frábæra hjálp við jólaaðstoðina. Húsnæði og öll aðstaða var endurgjaldslaus og velvild svo margra áþreifanleg. Rausnarleg framlög á erfiðum tímum gerðu gæfumuninn. Einlægar þakkir til allra sem lögðu hönd á plóg KONUR úr stærsta stjórnarand- stöðuflokki Indlands, Bharatiya Ja- nata, reyna að skemma skreytingu sem sett var upp í tilefni Valent- ínusardagsins. Hópar úr þjóðern- issinnuðum flokkum landsins hafa hótað að trufla hátíðarhöld í dag þar sem Valentínusardagurinn sé vestrænn siður sem spilli ind- verskri menningu. jmv@mbl.is AP Stungið á Valentínusi

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.