Morgunblaðið - 14.02.2009, Side 41
Velvakandi 41
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. FEBRÚAR 2009
Grettir
Smáfólk
Kalvin & Hobbes
Hrólfur hræðilegi
Gæsamamma og Grímur
Úthverfið
Kóngulóarmaðurinn
Ferdinand
FIMMÞÚSUND-
KALL?!?
FYRIR
PÍTSU?!?
MAÐUR BORGAR AUKALEGA
FYRIR LÖGREGLUFYLGDINA
AF
HVERJU
FERÐ ÞÚ
ALLTAF Í
VINNUNA
EN EKKI
MAMMA?
OG HÚN
VILDI
HÆTTA?
EFTIR AÐ ÞÚ KOMST Í
HEIMINN ÁKVÁÐUM VIÐ AÐ
ANNAÐ OKKAR YRÐI HEIMA
TIL AÐ HUGSA UM ÞIG
VINNUNNI HENNAR MÖMMU
ÞINNAR FYLGDI STREITA OG
ÁLAG...
NEI, HÚN VAR ORÐIN VÖN
ÞVÍ, SVO AÐ OKKUR FANNST
SNIÐUGRA AÐ...
HVAÐ
ÁTTU
VIÐ?!?
EDDI,
TALAR ÞÚ
FRÖNSKU?
JÁ,
PÍNU...
FLOTT! SEGÐU ÞESSUM
HERRAMÖNNUM AÐ VIÐ
EIGUM ÝMISLEGT
SAMEIGINLEGT...
VIÐ ERUM TIL
DÆMIS ALLIR
MJÖG HRIFNIR AF
FRÖNSKU VÍNI
HANN FÉKK
STYRKI TIL
AÐ GERA ÞAÐ
HRAÐSKREIÐARA
HVERNIG
VAR FYRSTI
SKÓLADAGURINN?
HANN VAR
HRÆÐILEGUR!
ÉG FÉKK VERSTA
KENNARANN Í
SKÓLANUM!
MAÐUR MÁ EKKI TALA ÁN
ÞESS AÐ RÉTTA UPP HÖND...
SKRIFBORÐIÐ MANNS VERÐUR
ALLTAF AÐ VERA HREINT...
OG MAÐUR MISSIR STIG EF
MAÐUR LÆRIR EKKI HEIMA!
ER KIDDU
ILLA VIÐ NÝJA
KENNARANN
SINN?
JÁ...
EN EKKI
MÉR
MIG LANGAR AÐ
NÁ SHOCKER EINS
FLJÓTT OG ÉG
GET, EN ÉG KEMST
EKKI STRAX
AF HVERJU
EKKI?
VEGNA ÞESS
AÐ ÉG TÓK
BÚNINGINN MINN
EKKI MEÐ MÉR
HINGAÐ
KANNSKI
GERÐIR ÞÚ
ÞAÐ EKKI...
EN ÉG GERÐI ÞAÐ
ÞÚ ERT
ÆÐI!
KÆRI BLÝANTSVINUR,
HVERNIG HEFUR ÞÚ HAFT
ÞAÐ? ÉG HEF HAFT ÞAÐ
GOTT. VEÐRIÐ ER BÚIÐ AÐ
VERA MJÖG FÍNT.
Í GÆR VAR HEITT ALLAN
DAGINN. Í MORGUN
VAR FREKAR KALT,
EN Í HÁDEGINU VAR
ORÐIÐ HEITT.
ER ÞETTA ORÐIÐ OF
LEIÐINLEGT HJÁ MÉR?
VALENTÍNUSARDAGURINN er í dag og í tilefni þess og Vetrarhátíðar í
Reykjavík koma Akureyringar til Reykjavíkur og kynna ferðaþjónustu á
Norðurlandi. Gestirnir vilja leggja áherslu á að þeir brosa með hjartanu og
setja upp rauð hjörtu víðsvegar um borgina. Á myndinni má sjá Hönnu
Birnu Kristjánsdóttur borgarstjóra líma kærleikshjörtu á Ráðhús Reykja-
víkur. Einnig munu ísskurðarmenn skera út hjörtu úr ís við Höfuðborg-
arstofu og munu einnig vera að verki við gerð íshjarta á Austurvelli þar
sem Kærleiksganga hefst klukkan 17.
Morgunblaðið/Golli
Brosa með hjartanu
Starfsfólk Nóatúns
ÉG hef verið fastur við-
skiptavinur Nóatúns í
Austurveri í nokkur ár.
Undanfarið hef ég tek-
ið eftir því að starfs-
fólkið þar stendur yfir
unglingum og fylgist
með hverri hreyfingu.
Allt upp í fimm starfs-
menn fylgjast með ung-
lingunum í einu, þeir
hafa ekkert frelsi. Ung-
lingar hafa vissulega
ekki gott orð á sér en
það eru alls ekki allir
unglingar slæmir. Skv.
rannsóknum hefur
komið í ljós að fólk á 20-30 ára aldri
er þeir sem stela oftast, unglingar
langt frá því að vera verstir. Ég spyr,
eiga ekki allir rétt á því að versla í
friði? Ég bið starfsfólk Nóatúns að
vera ekki að beina spjótum sínum að
einum aldurshópi!
Guðbjörg.
Lítil saga af tveimur
stjórnarskrám og
nokkrum reglugerðum
AÐ FYRRI heimstyrjöld lokinni
stofnuðu Þjóðverjar lýðveldi og sam-
þykktu stjórnarskrá sem almennt
var talin ein hin lýðræðislegasta í
Evrópu. Árið 1933 komst Adolf Hit-
ler til valda í skjóli þessarar sömu
stjórnarskrár. Hún var aldrei form-
lega numin úr gildi í þriðja ríkinu og
á meðan ógnarstjórn nasista var við
völd voru sex milljónir gyðinga myrt-
ar auk fjömargra annarra. Fáum ár-
um eftir valdatöku Hitlers var sam-
þykkt í Sovétríkunum ný
stjórnarskrá sem var mjög lýðræð-
isleg að allri gerð. Blekið á henni var
varla þornað þegar Stalín og skó-
sveinar hans hófu blóðugar hreins-
anir sem kostuðu ótölulegan fjölda
fólks lífið og enn fleiri sátu árum
saman í fangabúðum.
Í dagblöðunum 5.
febrúar sl. birtu þeir
sem standa að vefritinu
Andríki auglýsingu
sem ætlað er að sýna
fram á að ekki hefði
skort reglugerðir og
lög til að halda utan um
efnahagslífið und-
anfarin ár. Þessi aug-
lýsing missir hrap-
allega marks því það
eina sem hún leiðir í
ljós, líkt og sagan hér
að framan um stjórn-
arskrárnar tvær, er að
það skiptir litlu máli
hvað settar eru margar
reglugerðir eða lög ef pólitískan vilja
stjórnvalda til að framfylgja þeim
sem skyldi skortir. Því má segja að
framtak þetta snúist upp í andhverfu
sína og umbreytist í átakanlegt
minnismerki um gjaldþrot þeirrar
hugmyndafræði sem aðstandendur
Andríkis hafa helgað krafta sína
undanfarin ár.
Guðmundur J. Guðmundsson kennari.
Svar til Magnúsar
Í VELVAKANDA hér á dögunum
þakkar Magnús nokkur Kristjánsson
mér fyrir grein sem ég skrifaði í
Skessuhornið fyrir nokkru. Við höf-
um nú áður verið sammála og nefni
ég þar lúpínubeitarlönd fyrir rollur.
Hann bendir á að uppstoppuðu
dýrin hans lykti illa. Ég er ekki í
nokkrum vafa um að þessi ólykt af
dýrunum hans stafar af því að hann
verslar við lélegan hamskera og ráð-
legg ég honum að skipta honum út
fyrir nýjan, eins og hverjum öðrum
bankastjóra.
Margrét Jónsdóttir,
Melteigi 4, Akranesi.
Svarað í síma 5691100 frá 10–12
velvakandi@mbl.is
Félagsstarfeldriborgara
Félag eldri borgara í Kópavogi | Fé-
lagsfundur í Gjábakka kl. 14. Stefán Ólafs-
son prófessor, formaður nefndar um end-
urskoðun almannatryggingakerfisins
ræðir um almannatryggingakerfið og
væntanlegar breytingar á því og svarar
fyrirspurnum. Ingvar Hólmgeirsson leikur
á harmoniku. Kaffiveitingar í boði félags-
ins. Takið með ykkur gesti.
Félagsheimilið Gjábakki | Gönguhópur
Hana-nú fer í heimsókn í félagsmiðstöð-
ina Hæðargarð. Farið með rútu kl. 9.30.
Félagsmiðstöðin Gullsmára 13 | Fyr-
irhugað er að vera með málm og silfur-
námskeið ef næg þátttaka fæst, kennari
Vífill Valgeirsson. Einnig er fyrirhuguð
stóla leikfimi ef næg þátttaka fæst, kenn-
ari Kolbrún Þórðardóttir jógakennari og
hjúkrunarfræðingur. Skráning í s. 546-
5260.
Félagsstarf eldri borgara í Mosfellsbæ
| Skoðunarferð í Byggðarsafn Hafn-
arfjarðar verður 19. febrúar. Lagt af stað
frá Hlaðhömrum kl. 13. Akstur kostar
1.000 kr. Þátttaka tilkynnist í síma 586-
8014 kl. 13-16.
Félagsstarf Gerðubergi | Vetrarhátíð í
Reykjavík í Ráðhúsinu kl. 14.30-17. M.a.
skólahljómsveit Árbæjar og Breiðholts,
dagskrá frá Vestmannaeyjum, kórsöngur
o.fl. Kynnir Raggi Bjarna, sem ásamt Þor-
geiri Ástvaldssyni slær á létta strengi.
Hraunsel | Sparidagar á Hótel Örk 8.-13.
mars. Skráning og nánari upplýsingar í s.
555-0142. Sjá febh.is
Hæðargarður 31 | Í tilefni Vetrarhátíðar
kl. 10-11.30: laugardagsganga kl. 10, leið-
sögumenn Þórdís Ólafsdóttir og Theo-
dóra Thorodssen. Gestir dagsins eru
Hana-nú og Göngu-Hrólfar. Teygjuæf-
ingar, vatn, ávextir, Guðni Stefánsson
leikur á nikkuna og Inga og línudansarar.
Íþróttafélagið Glóð | Ringó í Snælands-
skóla v/Víðigrund kl. 9.30. Uppl. í síma
564-1490, 554-5330 og 554-2780.
Íþróttafélagið Glóð | Ringó í Snælands-
skóla v/Víðigrund kl. 9.30-10.30. Uppl. í
síma 564-1490 og 554-2780.