Morgunblaðið - 14.02.2009, Page 51
Menning 51
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. FEBRÚAR 2009
Reuters
Kabbalah, kabbalah Madonna í dulspekilegum stellingum.
SÍÐUSTU fregnir úr heimi slúðurpressunnar herma að
Madonna sé nú ákveðin í að fá kærasta sinn, hinn 22 ára
Jesus Luz, til að endurskoða kaþólska trú sína og gang-
ast undir dulspeki Kabbalah sem Madonna stundar af
miklum móð. Að sögn heimildarmanns í innsta hring
popp-stjörnunnar virðist sem áhrifamáttur Madonnu sé
þegar farinn að hrífa á Luz því hann er nú búinn að skrá
sig í Kabbalah-hóp á netinu. Foreldrar Luz eru
strangtrúaðir kaþólikkar og skiljanlega mjög áhyggju-
fullir yfir áhrifamætti söngkonunnar á son þeirra sem
er víst yfir sig ástfanginn af stjörnunni. Madonna og
Jesus byrjuðu saman í desember í fyrra í kjölfar þess
þegar Madonna sparkaði hafnaboltastjörnunni A-Rod.
Mun það hafa vegið þungt að A-Rod hafði lítinn áhuga á
dulspekinni.
Jesus stundar
Kabbalah
Jesus Luiz Karlfyrirsætan
hyggur á Kabbalah-nám.
Skráðu þig strax í síma 578-8200
Námskeiðin byrja 3. nóvember! Skrá -8
Námskeiðin byrja 16. febrúar
BRESKI grínist-
inn Steve Coogan
olli mikilli
hneykslan á dög-
unum þegar
hann gerði
ósmekklegt grín
að sjálfsmorði
Kurts Cobains í
spjallþætti
Craigs Ferguson
The Late Late
Show. Ferguson
bar upp spurningu um samband Co-
ogans við ekkju Cobains, Courtney
Love, sem Coogan svaraði með því
að stinga tveimur fingrum upp í
munn sér og öskra: „Ef ég væri með
byssu, myndi ég stinga henni upp í
mig.“ Ferguson minntist þá á þann
orðróm að Courtney Love væri um
þessar mundir í sambandi við leik-
arann Mickey Rourke og viðbrögð
Coogans létu ekki á sér standa:
„Ertu ekki að grínast? Ég er farinn
héðan með næsta flugi.“ Coogan og
Love áttu í stuttu ástarsambandi
árið 2005, ári eftir að Cobain lést en
eftir að sambandi þeirra lauk rifust
þau heiftarlega í fjölmiðlum eftir
að hann neitaði að hafa gert Love
ófríska. Þrátt fyrir að þau hafi tal-
ast við síðan eru allar líkur á að þau
muni verða á vegi hvort annars ef
svo fer að Love flytji til Englands.
Courtney Love lýsti því nefnilega
yfir á dögunum að hana langaði að
flytja til Buckinghamskíris. „Ég er
búin að fá nóg af lífinu í Los Angel-
es. Hér býr brjálað fólk.“ Ekki
fylgir sögunni hvort henni hafi að
því loknu verið bent á bjálkann.
Steve Coogan
Misjafnlega fynd-
inn grínisti.
Lét ósmekk-
leg orð falla í
spjallþætti
ÞVÍ var haldið fram í vikunni að
leikararnir T.R. Knight og Kather-
ine Heigl væru að hætta í lækna-
þáttunum Greys Anatomy. Höf-
undur þáttanna, Shonda Rhimes,
segir það ekki satt. „Þetta var mjög
áhugaverður orðrómur og hann er
ekki sannur,“ sagði Rhimes á NA-
ACP verðlaununum í Los Angeles á
fimmtudagskvöldið.
Orðrómurinn fór af stað eftir að
ummæli, sem voru höfð eftir Greys-
leikaranum James Pickens Jr., voru
tekin úr samhengi í fjölmiðlum.
„Þetta var algjörlega tekið úr sam-
hengi og ég held að orðrómur verði
að staðreyndum mjög auðveldlega.
Ég ætla ekki að segja ykkur hvað
mun gerast í þáttunum en þetta er
orðrómur,“ sagði Rhimes.
Greys Anatomy fór með þrenn
verðlaun heim af NAACP hátíðinni.
Meðal annars fékk Chandra Wilson
verðlaun sem besta leikkona í
dramaseríu. Hún sagði allt vera í
góðu á tökustað. „Við hlæjum að
þessum orðrómi,“ sagði hún og neit-
aði að félagar hennar væru að yf-
irgefa þáttinn.
Reuters
Greys Chandra Wilson leikur lækni.
Enginn að
hætta í
Greys