Morgunblaðið - 19.03.2009, Qupperneq 6

Morgunblaðið - 19.03.2009, Qupperneq 6
6 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. MARS 2009 SVEFNSÓFA 20 - 30% AFSLÁTTUR! H E I L S U R Ú MRekkjan ehf ≤≥ Suðurlandsbraut 48 (Bláu húsin í Faxafeni) ≥≥ 108 Reykjavík 588 1955 ≥≥ www.rekkjan.iS ≥≥ Opið virka d. 10–18 og lau 11–16 EITT MESTA ÚRVAL LANDSINS AF SVEFNSÓFUM! Verð frá 37.840 kr. Eftir Ingibjörgu B. Sveinsdóttur ingibjorg@mbl.is HÓPLEIT í Leitarstöð Krabba- meinsfélagsins verður takmörkuð við þrjá til fjóra daga í viku þar sem félaginu hefur verið gert að draga úr rekstrarkostnaði. Ekki verður ráðið í stöður sem losna í leitarstöðinni og starfsfólki verður mögulega boðið að lækka starfshlutfall tímabundið, að sögn Kristjáns Sigurðssonar, yf- irlæknis á leitarstöðinni. Skoðunarstöðum utan Reykjavík- ur verður fækkað úr 42 í 30 í hag- ræðingarskyni og millibil í legháls- krabbameinsleit verður lengt úr tveimur árum í fjögur hjá konum 40 ára og eldri hafi fyrri skoðanir verið eðlilegar. Nýta á betur dagana sem hópleit í leitarstöðinni fer fram, að því er Kristján greinir frá. „Við byrjum fyrr á morgnana og notum hádegið betur. Við tökum á móti jafnmörgum í hópleitina á heildina litið og áður. Hjúkrunarfræðingar munu hins vegar meta hvort konur sem ekki eru á boðunarskrá, en leita eftir skoðun vegna einkenna, fái skoðun hjá okkur eða verði vísað til heilsu- gæslu eða sérfræðinga til nánari skoðunar og ákvörðunar um frekari rannsókn. Biðtíminn eftir skoðun vegna einkenna hefur lengst, bæði vegna breytinga innandyra og einn- ig vegna hagræðingar.“ Samningur milli Krabbameins- félagsins og heilbrigðisráðuneytisins um rekstur legháls- og brjósta- krabbameinsleitar rann út um síð- ustu áramót. Nú er unnið að endur- nýjun samningsins til næstu fimm ára. Vantar 30 til 40 milljónir til að brúa bilið án breytinga „Okkur er gert að spara um 5 pró- sent af því sem við fengum í síðasta samningi sem við gerðum til fimm ára. Það eru á milli 15 og 20 milljónir króna miðað við það sem við fengum í fyrra en þá er ekki búið að uppfæra með tilliti til vísitölu. Í reynd vantar 30 til 40 milljónir króna til þess að geta brúað bilið án breytinga,“ segir Kristján. Hann getur þess að kostnaður hafi aukist mikið vegna nýrrar tækni sem heitir stafræn tækni í brjóstum. „Þessi tækni hefur í för með sér tölvuvæðingu og ýmiss konar teng- ingar samfara henni og við það hefur rekstrarkostnaður aukist. Auka- kostnaðurinn gæti verið um 80 millj- ónir. Við bættum einnig leghálsleit- ina með mælingu á HPV-veirum og móttakan fyrir konur með einkenni var einnig bætt. Kostnaðurinn var yfir 100 milljónir fyrir allan pakkann og þetta lögðum við fyrir heilbrigð- isráðuneytið fyrir bankahrunið. Á þeim tíma var félagið búið að safna 600 milljónum króna fyrir tækjum. Það eru ekki allir sem koma með slíkt fé og afhenda ríkinu. Við ætl- uðumst hins vegar til þess að ríkið legði fram fé á móti til þess að betr- umbæta leitina. Mér finnst það varla ásættanlegt að félagið þurfi að blæða fyrir það því að þetta er hrein og bein heilbrigðisstarfsemi sem hér fer fram. Mögulega stöndum við frammi fyrir því að taka afstöðu til þess hvort vísa þurfi konum frá. Mér finnst það skjóta skökku við að mönnum sé gert að spara í þessari leit á sama tíma og rætt er um að kostnaður vegna stjórnlagaþings verði 2 milljarðar króna.“ Gert að spara í leit  Leitarstöð Krabbameinsfélagsins þarf að draga úr rekstr- arkostnaði  Skoðunarstöðum utan Reykjavíkur fækkað KOMUM kvenna á Leitarstöð Krabbameinsfélags Íslands í hópskoðun hef- ur fækkað um 7-12% frá 1. október til 1. mars miðað við sama tímabil í fyrra. Komugjald vegna skoðunarinnar er nú 3.400 krónur. Líkleg ástæða fyrir færri komum er sú að horft sé í kostnaðinn, að því er Kristján Sig- urðsson, yfirlæknir á leitarstöðinni, segir. Heildarkomutölur fyrir árið í fyrra liggja ekki fyrir en leghálsskoðanir árið 2007 voru tæpar 33.000, þar af á leitarstöðinni í Reykjavík 13.000. Tæpar 1.600 af heildarfjöldanum voru með afbrigðileg frumustrok. Um 550 voru sendar í vefjasýnatöku. Sýnatökurnar leiddu til þess að um 300 konur fóru í keiluskurð. Heildarbrjóstaskoðanir voru um 20 þúsund, allar á leitarstöðinni. Af þeim teljast 17 þúsund hópskoðunarmyndir. Hinar eru taldar vera með ein- kenni eða eitthvað afbrigðilegt út úr hópleit. Færri komur eftir hrunið Morgunblaðið/Ásdís Brjóstaskoðun Hópleit verður takmörkuð við þrjá til fjóra daga í viku í leitarstöðinni vegna hagræðingar. Eftir Bergþóru Njálu Guðmundsdóttur ben@mbl.is ÖGMUNDUR Jónasson heilbrigðis- ráðherra segir erfitt að koma í veg fyrir að þjónusta í heilbrigðiskerfinu verði skert vegna niðurskurðarins sem ákveðinn var í fjárlögum þessa árs. Stjórnvöld séu á endanum ábyrg fyrir því hve naumt sé skammtað. Í síðustu viku var greint frá þeirri ákvörðun Landspítalans að loka ann- arri af tveimur legudeildum endur- hæfingarinnar á Grensási en við það fækkar leguplássum úr 40 í 26. Ög- mundur segist treysta því að stjórn- endur Landspítalans útfæri sínar breytingar þannig að þjónusta við sjúklinga skerðist ekki þótt legurým- um fækki. „Við höfum sett fram ákveðin grundvallaratriði, þ.e. að forðast verði að skerða þjónustu við sjúklinga og að kjör og störf þess starfsfólks sem er með minnstar tekjur verði varin. Einstaka ráðstaf- anir hefur ráðuneytið ekki hlutast til um.“ Gunnar Finnsson, formaður stjórn- ar Hollvina Grensásdeildar, hefur m.a. sagt það alvarlegt ef biðtími eftir endurhæfingu lengist, því hún komi fyrst og fremst að gagni sé henni beitt tímanlega. Þannig geti það leitt til kostnaðarauka fyrir kerfið í heild ef endurhæfing ber ekki fullan árangur og sjúklingur þurfi á bótum að halda. „Ég er alveg sammála þessari hugs- un,“ segir Ögmundur. „Hins vegar verð ég að treysta því að stjórnendur Háskólasjúkrahúss fari fram af gætni, hugi að öðrum úrræðum og máti sínar tillögur inn í langtímahags- muni.“ Kerfið tálgað inn að beini Þá hefur kvennadeild Landspítal- ans leitað til líknar- og kvenfélaga um fjárstuðning svo hægt sé að ráðast í endurbætur á deildinni. Ögmundur segir framlög líknarfélaga til heil- brigðisþjónustunnar ekki ný af nál- inni. „Við verðum hins vegar sem samfélag að tryggja fjármuni til end- urbóta og uppbyggingar af því tagi sem hér er talað um. Sjálfur tók ég við í heilbrigðisráðuneytinu 1. febrúar og hendur mínar eru talsvert bundnar. Landspítalinn hefur gert sínar áætl- anir og fjárlög hafa verið samþykkt. Þannig að ríkið leggur ekki á þessu ári meira fé til framkvæmdanna en þegar hefur verið gert ráð fyrir.“ Mikil óvissa ríkir um stöðu dag- deildar geðsviðs Fjórðungssjúkra- hússins á Akureyri sem til stendur að sameina göngudeild. „Við höfum tek- ið þetta mál upp við stjórnendur FSA og lagt ríka áherslu á að fundnar verði lausnir fyrir viðkomandi einstak- linga,“ segir Ögmundur en tekur und- ir að það sé erfitt fyrir stjórnendur spítalanna að finna þessar lausnir þegar ekki fæst fjármagn til þeirra. „Þetta er kjarninn í þeim vanda sem við stöndum frammi fyrir,“ segir hann. „Það segir sig sjálft að þegar skorið er niður um 6.700 milljónir í heilbrigðiskerfi sem víða hefur verið tálgað inn að beini hefur það áhrif á þjónustuna.“ Stjórnendur verði að finna lausnir innan ramma niður- skurðarins sem ákveðinn hefur verið. „Þeirra hlutskipti er ekki auðvelt og á endanum erum það við, stjórnvöld, sem erum ábyrg fyrir því hve naumt þeim er skammtað. Ég er ekkert að hlaupast undan ábyrgð í því efni, nema síður sé. Ég legg hins vegar áherslu á að í lengstu lög verði reynt að vernda hag tiltekinna hópa og þeir sem eiga við geðræn vandamál að stríða eru slíkur hópur.“ Erfitt að hindra skerðingu heil- brigðisþjónustu Ráðherra segir naumt skammtað Morgunblaðið/Júlíus Niðurskurður Stjórnendur þurfa að taka erfiðar ákvarðanir um sparnað. Í HNOTSKURN » Sparnaður vegna lokunarlegudeildarinnar á Grens- ás er um 130 milljónir á ári. » Kvennadeildin þarf aðsafna 100 milljónum til við- bótar við framkvæmdaféð sem kemur frá spítalanum. » Um 60 sjúklingar eru íóvissu vegna lokunar dag- deildar geðsviðs FSA. Eftir Sigtrygg Sigtryggsson sisi@mbl.is SKIPULAGSSTOFNUN hefur fallist á tillögu Vega- gerðarinnar að matsáætlun fyrir Suðurlandsveg frá Hveragerði austur fyrir Selfoss. Skipulagsstofnun gerir nokkrar athugasemdir við matsskýrsluna, sem hún vill að teknar verði upp í frum- matsskýrslu. Meðal annars tekur stofnunin undir með sveitarfé- laginu Árborg og telur brýnt að í frummatsskýrslu verði gerð grein fyrir flóðahættu, einkum með hliðsjón af klakastíflum, sem geta myndast fyrir ofan brú og metið verði hvaða áhrif slíkar hamfarir geta haft á nýja brú yfir Ölfusá við Selfoss. Einnig verði metið hvaða áhrif hugsanlegar aðgerðir til varnar flóðum við fyrirhugað nýtt brúarstæði geti haft ofan og neðan nýrrar brúar yfir Ölfusá, einkum áhrif á umfang og útbreiðslu flóða vegna nýrra vega að ánni. Jafnframt telur Skipulagsstofnun brýnt að sýnd verði á loftmynd eða korti afstaða nýrrar brúar til nálægustu þekktra jarðskjálftasprungna á svæðinu. Þá tekur Skipu- lagsstofnun undir með Fornleifavernd ríkisins og bendir á nauðsyn þess að í frummatsskýrslu verði nákvæm stað- setning fornleifa sýnd á korti eða loftmynd ásamt fyr- irhuguðu áhrifasvæði framkvæmdarinnar svo að auðvelt sé að gera sér grein fyrir áhrifum framkvæmdar á ein- stakar fornleifar. Loks telur stofnunin brýnt að við samanburð vega- kosta skuli gera grein fyrir því hverju munar á áhrifum þeirra á umferðaröryggi, hvort sem kostirnir lúta að staðsetningu vegar, akreinafjölda (2+1, 2+2 eða 2+2 í þröngu sniði) eða útfærslu gatnamóta. Flóðahætta við nýja brú yfir Ölfusá verði metin

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.