Morgunblaðið - 19.03.2009, Blaðsíða 35
Það er erfitt að trúa því að þú sért
farin, elsku Áslaug. Þú sem varst allt-
af svo brosmild og hress.
Margar góðar minningar koma
upp í hugann þegar ég hugsa til baka.
Það var virkilega gaman að koma til
ykkar Sigga í sumbarbústaðinn þar
sem við sungum öll saman, langt inn í
bjarta sumarnóttina, undir gítarspili
Jóns. Við áttum líka yndislega daga
um sumarið 2005 í sumarbústað við
Apavatn. Þar naustu þín á fallegum
stað umvafin barnabörnunum þínum.
Þú veittir okkur Þurí ómetanlega
hjálp þegar við vorum að flytja síðla
árs 2004. Við höfðum selt ofan af okk-
ur og áttum ekki að fá íbúðina sem við
vorum að kaupa fyrr en nokkrum vik-
um seinna. Þú gerðir þér lítið fyrir og
bauðst okkur, fimm manna fjölskyld-
unni, húsaskjól í Álfaborgum, þar
sem þú bjóst þá. Þú hreinlega lánaðir
okkur húsnæði þitt, því á meðan við
bjuggum hjá þér gistir þú hjá Dóru
sem býr skammt frá. Og ekki nóg
með það, því á þessum tíma varstu
ávallt reiðubúin að lána okkur bílinn
þinn til að létta undir með okkur.
Hjálpseminni voru engin takmörk
sett.
Við höfum verið svo lánsöm að hafa
þig hjá okkur á aðfangadagskvöld
undanfarin ár þar sem stórfjölskyld-
an hefur komið saman og átt saman
dásamlega stund. Það er dapurlegt að
hugsa til þess að á næstu jólum verð-
ur þú ekki hjá okkur.
Því miður voru örlög þín að berjast
við óvæginn sjúkdóm. En þú barðist
hetjulega. Oftar en einu sinni á síðast-
liðnum árum sýndir þú ótrúlegan
kraft og lífsvilja þegar þú glímdir við
veikindin. Þú braust í gegnum erfiðan
dag og tókst að láta þér líða betur á
ný. Þín verður sárt saknað en ég trúi
því að núna sértu komin á góðan og
friðsælan stað og þér líði vel, laus úr
hlekkjum veikinda. Ég er þakklátur
fyrir þann tíma og þær minningar
sem þú gafst mér. Ég er líka þakk-
látur fyrir það að þú fékkst að kynn-
ast öllum börnunum okkar hjóna og
njóta margra góðra stunda með þeim.
Hvíldu í friði.
Ari Friðfinnsson.
Elsku Áslaug mín.
Nú er langri og hetjulegri baráttu
þinni við erfiðan sjúkdóm lokið. Mikið
afskaplega lagðir þú mikið á þig til að
ástvinir þínir og fjölskylda fengju að
njóta fallegrar nærveru þinnar eins
lengi og hægt var. Löngunin til að
umvefja þína nánustu var sterk og
lífsvilji þinn var kraftmikill og aðdá-
unarverður. Aldrei kvartaðir þú,
heldur tókstu öllu með jafnaðargeði,
og lítið þurfti til að gleðja þig og fram-
kalla bros á vör. Þannig er þér rétt
lýst, ávallt að hugsa um hag annarra
og gleðina sástu í öllu og öllum.
Frá fyrstu stundu opnaðir þú
hjarta þitt og heimili fyrir mér og
tókst mér sem einni af fjölskyldunni.
Það þótti mér bæði mikið vænt um
sem og mikill heiður. Alltaf varstu
tilbúin að gefa af þér sem og tíma þín-
um enda mikil félagsvera og er mér
sérstaklega minnistæðar stundirnar í
Ljósuvíkinni þegar við oftar en ekki
sátum inni í stofu yfir góðu spjalli og
súkkulaði. Já, súkkulaði sem var
ómissandi félagi okkar beggja og
gleðigjafi fyrir okkur nammigrísina.
Vildi bara óska að samverustund-
irnar hefðu verið fleiri og hefði maður
vitað hve lífið er hverfult hefði maður
nýtt tímann enn betur.
Þú mátt vita að þú verður ávallt í
hjörtum okkar og huga og eftir situr
mikil sorg og tómarúm. Guð geymi
þig, engillinn okkar.
Ömmustelpan þín, hún Maren Kar-
itas fangaði tilfinningar okkar allra
þegar hún sagði:„Það er ekki gott að
amma Lauga er farin til englanna, en
það er gott að henni líður betur“. Allir
vilja hafa ástvini sína sem lengst hjá
sér og enginn vill þurfa sjá á bak þeim
en það eina sem veitir huggun núna
er að nú líður þér betur.
Þín tengdadóttir og ömmustelpa,
Eva Dögg Júlíusdóttir og
Maren Karitas.
Mín elskulega tengdamóðir Áslaug
er nú komin á æðri stað. Ég kynntist
Áslaugu fyrst fyrir sjö árum þegar ég
og Dóra dóttir hennar fórum að vera
saman, ég fann strax hvað þetta var
vinaleg og góðhjörtuð kona. Hún tók
mér strax sem einum af fjölskyldunni
og kom fram við mig eins og eitt af
sínum börnum. Hún hafði þennan
einstaka persónuleika að manni leið
alltaf vel í nærveru hennar, manni
fannst eins og maður hafði alltaf
þekkt hana. Að eiga gott spjall við Ás-
laugu var alltaf jafn yndislegt enda
var hún alltaf í góðu skapi og talaði
aldrei illa um neinn. Hún var krúttleg
kona sem var góð við alla og mikil fé-
lagsvera. Líf hennar breyttist mikið
fyrir fjórum árum þegar erfiður sjúk-
dómur herjaði á en hún tók á þeirri
þrekraun með mikilli reisn og sýndi
mikið hugrekki í baráttu sinni. Hún
átti góða að sem voru alltaf til staðar
fyrir hana og það hjálpaði henni mik-
ið í baráttu sinni. Veikindin tóku samt
mikið á hana en þrátt fyrir það var
hún alltaf jafn jákvæð.
Áslaug hefur alltaf verið dugleg
kona, hún varð ung móðir og eigin-
kona og hugsaði hún vel um sitt fólk.
Hún var líka yndisleg amma og sá
maður hvað barnabörnin gáfu henni
mikið. Það er höggvið stórt skarð í
okkar fjölskyldu en minning hennar
lifir að eilífu.
Kærar þakkir fyrir allt, elsku Ás-
laug, ég er lánsamur að hafa átt svona
góða tengdamömmu eins og þig.
Hvíl í friði. Þinn tengdasonur
Robert.
Elsku Áslaug, mig langaði að
þakka þér fyrir ævilangt ferðalag
okkar á þessari lífsleið.
Ég sendi þér kæra kveðju
nú komin er lífsins nótt,
þig umvefji blessun og bænir
ég bið að þú sofir rótt.
Þó svíði sorg mitt hjarta
þá sælt er að vita af því,
þú laus ert úr veikinda viðjum
þín veröld er björt á ný.
Ég þakka þau ár sem ég átti
þá auðnu að hafa þig hér,
og það er svo margs að minnast
svo margt sem um hug minn fer,
þó þú sért horfinn úr heimi
ég hitti þig ekki um hríð,
þín minning er ljós sem lifir
og lýsir um ókomna tíð.
(Þórunn Sigurðardóttir)
Megi góður Guð varðveita þig, Ás-
laug mín, að eilífu.
Sigurður H. Einarsson.
Minningar 35
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. MARS 2009
Fleiri minningargreinar um Ás-
laugu Guðmundsdóttur bíða birting-
ar og munu birtast í blaðinu næstu
daga.
✝
Hjartans þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur
samhug og hlýhug við andlát og útför ástkærs
eiginmanns, föður, tengdaföður, afa og langafa,
ÓLAFS SÆMUNDSSONAR
frá Stóru-Mörk,
Vestur-Eyjafjallahreppi,
Stífluseli 16.
Guðmunda S. Sveinsdóttir,
Ólöf Ólafsdóttir, Grétar Karlsson,
Guðbjörg M. Ólafsdóttir, Jón Haukur Valsson,
Svanhildur Ólafsdóttir, Þorleifur Kjartan Kristmundsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang-
amma,
ÁSTA MARGRÉT SIGURÐARDÓTTIR,
Sæunnargötu 12,
Borgarnesi,
verður jarðsungin frá Borgarneskirkju laugardaginn
21. mars kl. 14.00.
Þeim sem vilja minnast hennar er bent á Dvalar-
heimili aldraðra, Borgarnesi.
Svandís Anna Jónsdóttir, Birgir Vigfússon,
Björn Rúnar Jónsson, Anna Ólafsdóttir,
Árni Rafn Jónsson, Steinunn Jónsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Kærar þakkir til allra sem sýndu okkur hlýhug
vegna andláts móður okkar, tengdamóður, ömmu
og langömmu,
KRISTJÖNU S. MARKÚSDÓTTUR
frá Súðavík.
Ásdís Magnúsdóttir,
Markús K. Magnússon,
Karl G. Karlsson,
tengdabörn, barnabörn
og langömmubörn.
✝
Elskulegur eiginmaður minn, faðir, sonur og bróðir
okkar,
SINDRI ÞÓR GUÐNASON
frá Siglufirði,
verður jarðsunginn frá Siglufjarðarkirkju laugar-
daginn 21. mars kl. 14.00.
Blóm og kransar vinsamlega afþakkaðir en þeim
sem vilja minnast hans er bent á söfnunarreikning
í Sparisjóði Siglufjarðar.
Rut Hilmarsdóttir,
Jakob Auðun Sindrason,
Halldóra Helga Sindradóttir,
Guðni Þór Sveinsson, Helga Sigurbjörnsdóttir,
Rakel Guðnadóttir,
Ragnheiður Birna Guðnadóttir,
Guðni Brynjar Guðnason.
✝
Okkar ástkæri
JÓN ÓSKAR GUÐMUNDSSON,
Hrafntóftum,
áður Langholtsvegi 44,
andaðist á hjúkrunarheimilinu Lundi Hellu þriðju-
daginn 17. mars.
Jarðarförin verður auglýst síðar.
Fyrir hönd fjölskyldunnar,
Sigurbjörg Ingvarsdóttir.
✝
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
SIGRÍÐUR KAMILLA GÍSLADÓTTIR,
Sléttuvegi 13,
Reykjavík,
sem lést á Vífilsstöðum 14. mars, verður jarðsungin
frá Bústaðakirkju föstudaginn 20. mars kl. 13.00.
Þeim sem vilja minnast hennar er bent á Kvenfélagið Heimaey,
reikningsnúmer 537-26-508050, kt. 591191-1019.
Jón Páls Guðmundsson,
Valgerður Jónsdóttir,
Ágúst Ingi Jónsson,
Gísli Hafþór Jónsson, Jóhanna Úlfarsdóttir,
Ásrún Jónsdóttir, Árni Már Björnsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð og
hlýju við andlát og útför elskulegs eiginmanns
míns, föður, tengdaföður, afa og langafa,
HALLDÓRS B. STEFÁNSSONAR,
Lautasmára 3,
Kópavogi.
Sérstakar þakkir til alls starfsfólks hjúkrunar-
heimilisins Skógarbæjar sem veitti honum góða
umönnun og hlýlegt viðmót.
Hallgerður Pálsdóttir,
Ólafur Halldórsson, Auður Sigurðardóttir,
Páll Halldórsson, Sólveig Ásgrímsdóttir,
Ásta Halldórsdóttir, Einar Erlendsson,
Elín Ýrr Halldórsdóttir, Kristján M. Baldursson,
Ólöf Eir Halldórsdóttir, Jenni Guðjón Clausen,
barnabörn og barnabarnabörn.
INDRIÐI GÍSLASON
frá Skógargerði,
lést á Landspítalanum sunnudaginn 15. mars.
Útförin verður gerð frá Háteigskirkju mánudaginn
23. mars kl. 13.00.
Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir en þeim
sem vildu minnast hans er bent á Blindrafélagið.
Ingibjörg Ýr Pálmadóttir,
Erna Indriðadóttir,
Ragnhildur Rós Indriðadóttir, Skarphéðinn G. Þórisson,
Pálmi Indriðason, Anna Guðný Halldórsdóttir,
Helgi Indriðason, Signý Jónsdóttir,
Ólafur Skúli Indriðason, Helga Ágústsdóttir,
Jón Skúli Indriðason, Sigríður Jóhannsdóttir,
Dagný Bergþóra Indriðadóttir,
Ásmundur Indriðason,
Frosti, Reimar, Valva, Ingibjörg Ýr,
Jóhann Skúli, Indriði, Þuríður, Katrín Helga,
Jón Freyr, Kristín Ýr, Björn Þór,
Birta Líf og barnabarnabörn.