Morgunblaðið - 19.03.2009, Blaðsíða 41

Morgunblaðið - 19.03.2009, Blaðsíða 41
Menning 41 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. MARS 2009 Eftir Einar Fal Ingólfsson efi@mbl.is Ífyrirlestri sem nemendur ílistfræði við Háskóla Íslandsfluttu við opnun Skjóls, sýn-ingar Kristins G. Harð- arsonar í Kubbnum á dögunum, kom réttilega fram að Kristinn er sífellt að kanna mörk listarinnar. Hann var sagður ögra áhorfandanum „með því að dansa á línu hins menntaða lista- manns og áhugalistamannsins.“ Þarna er listsköpun Kristins ágætlega lýst. Listamaðurinn, sem nam við MHÍ og akademíið í Haag á áttunda áratugnum, leyfir ýmsum áhrifum að flæða inn í sköpun sína, það glittir í ýmsar stefnur en fyrst og fremst er það þó hverdagsleikinn í margbreytilegri mynd sem inn- blásturinn og efnið er sótt í. Í sköpuninni úr efniviði hvers- dagsleikans sækir Kristinn sífellt inn á nýjar lendur og virðist gæta þess að festast hvergi; hann málar með olíu og vatnslitum, saumar út, skrifar texta, skapar bókverk, mynd- bönd, ferðasögur í ljósmyndum og setur saman vefverk. Þrátt fyrir fjöl- breytilegt efnisvalið er hugurinn að baki persónulegur og heill – um langt árabil hefur Kristinn verið einn okkar áhugaverðustu list- armanna. Áuppákomunni Dalir og hólar ífyrrasumar sýndi Kristinnstór málverk í malarnámu á Skarðsströnd. Þau voru máluð eftir ljósmyndum sem voru teknar í bíl- ferð um svæðið. Fyrir ári sýndi hann í Suðsuðvestur verk sem hann kall- aði Ferðir en þau byggðust á ljós- myndum og textum um ferðalög heima og erlendis. Hluti sýning- arinnar var verk á vefnum. Sýningar þessar voru jafn forvitnilegar og þær voru ólíkar. Og í Kubbnum birtist enn ein birtingarmyndin á list Krist- ins sem hefur ekki hikað við að taka tölvutæknina í sína þjónustu. Hon- um hefur auðnast að nota hana eins og hvert annað tól; tæknin fær ekki að taka völdin heldur er lágvær listin sterkari en maður gæti haldið við fyrstu skoðun. Verkið Skjól er eitt af 45 litlum tölvuteikningum á sýningunni en þær eru prentaðar á mitt A4-blað. Myndirnar virðast vísa í hitt og þetta úr samtímanum og umræðunni; eins og oft áður notar Kristinn sér áreiti úr umhverfinu, til að mynda úr fjöl- miðlum, og sitthvað sem hann heyrir og sér sem efnivið. Myndirnar verða í senn eins og viðbrögð og komment á ástand; írónískar en þó meinleys- islegar, jafnvel banal í einfaldleika sínum og yfirlýsingum textanna. „Skúrkurinn“ stendur við bleikt form sem minnir á skúlptúr eftir Jean Arp, orðið „sviðabrækjan“ má lesa út úr stöfum sem raðast kring- um hvítt og gult ský, fjórir pixlaðir opnir munnar eru á mynd sem á stendur: „til sigurs“ og „Valdið“ stendur á rauðu pylsulaga formi. Kæruleysislegar og risskenndar teikningarnar vinna gegn þeirri kaldhömruðu útkomu sem fólk á oft að venjast í list sem verður til innan tölvunnar. Skjól er ein þessara mynda. Eins og sést er þetta einföld línuteikning, augsýnilega af manni með jakka yfir höfðinu. Orðið SKJÓL er eins og krassað inn á myndina og maðurinn snýr að dyrum sem væntanlega veita aðgang að fyrirheitnum griða- staðnum. Myndin vísar greinilega til frétta- mynda af sakborningum sem snar- ast inn í dómsal og reyna að skýla sér fyrir ágengu tilliti myndavél- anna. Skjólið er þannig dómsalurinn en líka jakkinn sem rétt eins og blæja múslimakvenna veitir vörn gegn forvitnum augum í umhverfinu. Átölvuteikningunni er myndinvarla 10 cm á breidd en yfirmyndaröðinni á veggnum á móti hefur myndin verið stækkuð upp. Í sama lit, í kórréttum hlut- föllum, og öðlast allt annað vægi. Hér, eins og oft í list Kristins, er hefðum snúið við. Við þekkjum ferlið þar sem listamaður vinnur skissur í höndunum en síðan sjá fagmenn um að stækka verkin upp, í brons til að mynda, með tækjum og tólum. Krist- inn notar hinsvegar tæki til að teikna frummyndina en síðan taka nem- endur Listaháskólans við og mála á vegginn. Annað veggmálverk er af klasturslegum tanngarði en á enda- veggnum er stór mynd af kjúklingi í mannsmynd. Hálfgerð martrað- arstemning er í teikningunni en text- inn vinnur gegn því: „Kjúlli minn“. Aðalsteinn Ingólfsson listfræð- ingur hefur skrifað um þessi vinnu- brögð Kristins; hvernig hann hefur tekið einföldustu „setningar barna- bókanna eða hlutlaus atviksorð og gefið þeim nýtt innihald …“ og hann telur að þótt Kristinn vilji ekki við- urkenna það sé þetta gert „af heim- spekilegri sannfæringu sem gengur út á áréttingu þess að aðeins með að þroska með sér næmi gagnvart hinu smáa geti maðurinn tekist á við hið stóra og mikilfenglega.“ Skúrkur og sviðabrækja MYNDVERKIÐ Skjól er eitt verkanna á samnefndri sýningu Kristins G. Harðarsonar myndlistarmanns í Kubbnum, sýningarrými í Listaháskóla Íslands í Laugarnesi. Á sýningunni eru 45 tölvuprent í stærðinni A4 frá árunum 2006-2009. Verkin munu vera gerð eftir völdum skissum sem Kristinn hefur gert á þessum tíma. Er hvert þeirra prentað í tíu eintök- um. Hanga þessi prent þétt í beinum röðum á hlið- arveggjum salarins, en yfir röðunum og á endavegg eru þrjú stór veggmálverk, sem eru gerð eftir þremur tölvu- prentanna. Kristinn vann sýninguna í samstarfi við nemendur í list- fræði við Háskóla Íslands og myndlistardeild LHÍ. Tveir nemendanna, Helena María Guttesen og Unn Joensen, máluðu veggverkin. Skjól Hart í bak (Stóra sviðið) Þrettándakvöld (Stóra sviðið) Sædýrasafnið (Kassinn) Skoppa og Skrítla í söng-leik (Kúlan) Eterinn (Smíðaverkstæðið) Kardemommubærinn (Stóra sviðið) Mið 18/3 kl. 20:00 U Mið 25/3 kl. 20:00 Ö Fim 19/3 kl. 20:00 2.sýn. Ö Fös 20/3 kl. 20:00 3.sýn. Ö Fim 26/3 kl. 20:00 4.sýn. Þri 24/3 kl. 21:00 fors. Ö Fim 26/3 kl. 21:00 fors. Ö Fös 27/3 kl. 21:00 frums. U Lau 28/3 kl. 21:00 Ö Lau 21/3 kl. 13:00 U Lau 21/3 kl. 14:30 U Fim 19/3 kl. 21:00 fors. Ö Fös 20/3 kl. 21:00 frums. Ö Fim 26/3 kl. 21:00 Mið 1/4 kl. 20:00 Ö Fim 2/4 kl. 20:00 Ö Fös 27/3 kl. 20:00 5.sýn. Fös 3/4 kl. 20:00 6.sýn. Fim 16/4 kl. 20:00 7.sýn. Fös 3/4 kl. 21:00 Ö Sun 5/4 kl. 21:00 Fös 17/4 kl. 21:00 Lau 18/4 kl. 21:00 Lau 28/3 kl. 13:00 U Lau 28/3 kl. 14:30 U Fös 27/3 kl. 21:00 Fim 2/4 kl. 21:00 Fös 3/4 kl. 21:00 Mið 15/4 kl. 20:00 Fim 23/4 kl. 20:00 Ö Fös 17/4 kl. 20:00 8.sýn Fös 24/4 kl. 21:00 Lau 25/4 kl. 21:00. Lau 28/3 kl. 16:00 auka. Ósóttar pantanir seldar þremur dögum fyrir sýningu Ath. snarpt sýningatímabil Í samstarfi við Nemendaleikhús Listaháskóla Íslands Fim 16/4 kl. 21:00 Fös 17/4 kl. 21:00 Lau 4/4 kl. 14:00 U Sun 5/4 kl. 17:00 U Sun 5/4 kl. 17:00 U Lau 18/4 kl. 14:00 U Lau 18/4 kl. 17:00 U Sun 19/4 kl. 14:00 U Sun 19/4 kl. 17:00 U Lau 25/4 kl. 14:00 U Lau 25/4 kl. 17:00 U Lau 21/3 kl. 14:00 U Lau 21/3 kl. 17:00 U Sun 22/3 kl. 14:00 U Sun 22/3 kl. 17:00 U Lau 28/3 kl. 14:00 U Lau 28/3 kl. 17:00 U Sun 29/3 kl. 14:00 U Sun 29/3 kl. 17:00 U Lau 4/4 kl. 14:00 U Sun 26/4 kl. 14:00 U Sun 26/4 kl. 17:00 U Þri 28/4 kl. 18:00 aukas. U Sun 3/5 kl. 14:00 U Sun 3/5 kl. 17:00 U Þri 5/5 kl. 18:00 U Sun 10/5 kl. 14:00 U Sun 10/5 kl. 17:00 U Lau 16/5 kl. 17:00 U ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ Sími 551 1200 / midasala@leikhusid.is / www.leikhusid.is Örfáar aukasýningar með bestu vinkonum barnanna 568 8000 – borgarleikhus.is – midasala@borgarleikhus.is Fló á skinni. “mígandi drepfyndið” G.E.J. RÚV Milljarðamærin snýr aftur (Stóra sviðið) Fim 19/3 kl. 20:00 8.kort Fim 2/4 kl. 20:00 ný aukas Lau 25/4 kl. 19:00 ný aukas Fös 20/3 kl. 20:00 9.kort Fös 3/4 kl. 19:00 ný aukas Sun 26/4 kl. 20:00 ný aukas Fim 26/3 kl. 20:00 10.kort Lau 18/4 kl. 19:00 ný aukas Sun 29/3 kl. 20:00 Sun 19/4 kl. 20:00 Krassandi leikhúsveisla! Fló á skinni (Stóra sviðið) Lau 21/3 kl. 19:00 Lau 28/3 kl. 22:00 Fös 24/4 kl. 19:00 ný aukas Sun 22/3 kl. 19:00 Lau 4/4 kl. 19:00 ný aukas Lau 28/3 kl. 19:00 Fös 17/4 kl. 19:00 ný aukas Yfir 130 uppseldar sýningar. Áhorfendasýning ársins 2008! Einleikjaröð á Litla sviðinu - Óskar og bleikklædda konan (Litla sviðið) Fös 20/3 kl. 19:00 Sun 29/3 kl. 20:00 Lau 18/4 kl. 19:00 ný aukas Fim 26/3 kl. 20:00 Sun 5/4 kl. 20:00 Fös 27/3 kl. 19:00 Fim 16/4 kl. 20:00 ný aukas Umræður að lokinni sýningu 15/3 Einleikjaröð á Litla sviðinu - Sannleikurinn (Litla svið) Lau 21/3 kl. 19:00 Fös 3/4 kl. 19:00 Ný aukas Fös 24/4 kl. 22:00 Lau 21/3 kl. 22:00 Fös 3/4 kl. 22:00 Ný aukas Lau 25/4 kl. 19:00 Fös 27/3 kl. 20:00 Stóra sv. Fös 17/4 kl. 19:00 Lau 25/4 kl. 22:00 Lau 28/3 kl. 19:00 Fös 17/4 kl. 22:00 Fim 30/4 kl. 19:00 Lau 28/3 kl. 22:00 Mið 22/4 kl. 19:00 Fim 30/4 kl. 22:00 Mið 1/4 kl. 20:00 Mið 22/4 kl. 22:00 Fim 2/4 kl. 20:00 Fös 24/4 kl. 19:00 Miðasala í fullum gangi. Tryggðu þér miða núna. Einleikjaröð á Litla sviðinu - Rachel Corrie (Litla sviðið) Fim 19/3 kl. 20:00 frums. Sun 22/3 kl. 16:00 3.kort Lau 28/3 kl. 16:00 5.kort Fös 20/3 kl. 22:00 2.kort Fös 27/3 kl. 22:00 4.kort Lau 4/4 kl. 22:00 Uppsetning Ímagyn í samstarfi við Borgarleikhúsið Leikfélag Akureyrar Miðasölusími: 4 600 200, netfang: midasala@leikfelag.is Fúlar á móti (Samkomuhúsið) Fim 19/3 kl. 20:00 Sýning Fös 27/3 kl. 20:00 Sýning Lau 4/4 kl. 21:30 Aukas Fös 20/3 kl. 19:00 Sýning Lau 28/3 kl. 19:00 Sýning Mið 8/4 kl. 19:00 Sýning Lau 21/3 kl. 19:00 Sýning Lau 28/3 kl. 21:30 Aukas Fim 9/4 kl. 19:00 Sýning Lau 21/3 kl. 21:30 Aukas Fös 3/4 kl. 20:00 Sýning Lau 11/4 kl. 19:00 Sýning Fim 26/3 kl. 20:00 Sýning Lau 4/4 kl. 19:00 Sýning Lau 11/4 kl. 21:30 Aukas Skoppa og skrítla í söng og leik (Rýmið) Fim 9/4 kl. 13:00 1.sýn. Lau 11/4 kl. 13:00 3.sýn. Fim 9/4 kl. 14:30 2.sýn. Lau 11/4 kl. 14:30 4.sýn. Miðasala S. 545 2500 www.sinfonia.is ■ Í kvöld kl. 19.30 Atli Heimir sjötugur - afmælistónleikar Stjórnandi: Baldur Brönnimann Einleikari: Melkorka Ólafsdóttir Atli Heimir Sveinsson: Hreinn Gallerí SÚM Atli Heimir Sveinsson: Flautukonsert Atli Heimir Sveissnon: Sinfonia nr. 6 (frumflutningur) ■ Laugardagur 21. mars kl. 14.00 Pétur og úlfurinn og Stúlkan í turninum Sergei Prokofieff: Pétur og úlfurinn Tryggvi M. Baldvinsson: Stúlkan í turninum Stjórnandi: Kurt Kopecky Sögumaður: Halldór Gylfason Örfá sæti laus Fáðu fréttirnar sendar í símann þinn

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.