Morgunblaðið - 19.03.2009, Blaðsíða 48

Morgunblaðið - 19.03.2009, Blaðsíða 48
FIMMTUDAGUR 19. MARS 78. DAGUR ÁRSINS 2009 »VEÐUR mbl.is 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 250 ÁSKRIFT 2950 HELGARÁSKRIFT 1800 PDF Á MBL.IS 1700 SPARIÐ MEIRA EN HELMING MEÐ ÁSKRIFT Morgunblaðið bíður eftir þér þegar þú vaknar á morgnana SKOÐANIR» Staksteinar: Nógu róttækt? Forystugreinar: Tengsl og traust Drengir, stúlkur og lyf Pistill: Loftið út, Þorgerður K. og Illugi! Ljósvakinn: Betra líf án Útsvars 4  5($ / (,  67889:; $<=:8;>?$@A>6 B9>96967889:; 6C>$B(B:D>9 >7:$B(B:D>9 $E>$B(B:D>9 $3;$$>!(F:9>B; G9@9>$B<(G=> $6: =3:9 .=H98?=>?;-3;H$B;@<937?(I:C>? #J J J# J" J# J  J #J ?  %  (("!( ( #J J J J## J J J J" J #J"" . B)2 $  J J J J# J# "J J J J Heitast 13°C | Kaldast 5°C Suðlæg átt, víða 8-15 m/s. Þurrt að mestu NA- og A-lands. Rign- ing S- og V-til en úr- komulítið eftir hádegi. »10 Á sýningunni Hver er hræddur við hvern er litið yfir svið ímyndaðs sam- bræðings menning- arheima. »40 MYNDLIST» Jeannette Castioni KVIKMYNDIR» Fáránleikinn víkur aldrei langt frá í Elegy. »45 Skjól eftir Kristin G. Harðarson er ein- föld línuteikning, augsýnilega af manni með jakka yf- ir höfðinu. »41 MYNDVERKIл Ögrar áhorf- andanum TÍSKA» Norræn tíska verður í brennidepli. »42 TÓNLIST» Bono og vinir hans í U2 selja vel. »43 Menning VEÐUR» 1. Richardson við dauðans dyr 2. Átta ára grunaðir um nauðgun 3. Eva Joly hreinsar út á Íslandi 4. Fritzl: „Mér þykir þetta leitt“  Íslenska krónan veiktist um 0,8% »MEST LESIÐ Á mbl.is Eftir Helga Bjarnason helgi@mbl.is NOKKUÐ hefur dregið úr ferðum grunnskólanemenda í skólabúðir á Reykjum í Hrútafirði og Laugum í Sælingsdal nú í vetur. Pantanir fyrir næsta vetur benda til mikils sam- dráttar vegna sparnaðar í rekstri grunnskólanna. Vegna reglna um að ekki megi innheimta ferðakostnað af foreldrum og sparnaðar í rekstri grunnskóla hafa skólabúðirnar sums staðar lent undir niðurskurðar- hnífnum. Þannig hafa fjórir skólar hætt við að senda börn að Reykjum og samdráttur er einnig á Laugum. Ef fer sem horfir verður enn meiri samdráttur á næsta ári. „Við erum uggandi fyrir næsta vetur. Búið er að panta fyrir 1.500 börn og við þurfum að spýta í lófana til að þetta haldi áfram,“ segir Karl B. Örvarsson, rekstrarstjóri skólabúðanna á Reykj- um. Sæmundur Runólfsson, fram- kvæmdastjóri UMFÍ, segir útlit fyrir helmingsfækkun á Laugum næsta vetur, miðað við stöðuna nú. „Það hefur aldrei verið meiri þörf fyrir skólabúðir en einmitt nú, á þessum tímum. Hér eru börnin í nýju umhverfi þar sem ekki er minnst á kreppu,“ segir Karl. Dæmi eru um að foreldrar í ein- stökum bekkjum eða foreldrafélög séu að ræða saman um að safna fyrir skólabúðaferðinni þar sem þeir geti ekki hugsað sér að sleppa þessum hluta skólastarfsins úr. Biðla til ríkisins Skólabúðirnar eru mikilvægir vinnustaðir í Húnaþingi vestra og Dalabyggð. Hafa forystumenn sveit- arfélaganna og félaganna sem reka búðirnar rætt við þingmenn og ráð- herra um aðstoð við að halda starfinu áfram. Í mörg horn er að líta hjá rík- inu en Sæmundur er bjartsýnn á að það gangi. „Það er ekki svo há upp- hæð sem bæta þyrfti við til að dvölin yrði nemendunum að kostnaðar- lausu,“ segir Sæmundur. Skólarnir þyrftu eigi að síður að leggja út fyrir ferðum og launum kennara. Skólabúðir undir hnífinn  Fimm þúsund nemendur fara árlega í skólabúðir á Reykjum og Laugum  Heimsóknum fækkar og útlit fyrir að helmingi færri nemendur verði næsta ár Morgunblaðið/Atli Sigfússon Í fjósi Nemandi í skólabúðum í Bárðardal reynir sig við mjaltir. Skólabúðirnar á Reykjum í Hrútafirði taka börn úr 7. bekk og þangað hafa komið 3.000 börn á ári. Skólabúðir UMFÍ á Laugum í Sælingsdal taka við börnum úr 9. bekk og þær sóttu um 2.000 börn sl. vetur. Dvöl í báðum þessum búðum stendur yfir í fimm daga og er dagskrá frá morgni og fram á kvöld. Litið er á búðirnar sem uppbrot á skólastarfinu og æv- intýri fyrir börnin. Þau kynnast nýjum verkefnum í nýju um- hverfi. Skólarnir eða foreldrar barnanna þurfa að greiða ferðir og námskeiðsgjöld og skólarnir greiða kennurum laun. 5.000 börn í búðum LEIKVERKIÐ Þú ert hér, sem fjallar meðal annars um ástandið í þjóðfélaginu í kjölfar bankahruns- ins, verður frumsýnt í Borgarleik- húsinu í næstu viku. Í tilefni af því fékk leikhúsið Porsche Cayenne- jeppa að láni, en hann verður hluti af leikmyndinni sem táknmynd þess sem átt hefur sér stað hér á landi. Á meðan á sýningum stendur greiðir leikhúsið afborganir af bílnum fyrir eiganda hans, en að sögn Jóns Páls Eyjólfssonar, eins af aðstandendum sýningarinnar, þótti betur við hæfi að fara þá leið en að leita til bílaum- boðanna. Á myndinni má sjá leik- arana Jón Pál, Jón Atla Jónasson og Hall Ingólfsson við hlið jeppans. | 42 Porsche í leiksýningu Borgarleikhúsið hleypur undir bagga og borgar af lúxusjeppa í kreppunni Morgunblaðið/Kristinn Skoðanir fólksins ’Hópur starfsmanna í gömlu bönk-unum hafði tilkynnt um fæðing-arorlof eða var í fæðingarorlofi þegarbankahrunið varð sl. haust. Hlutiþessa hóps fékk ekki endurráðningu í nýjum banka, þótt störfin hefðu haldið áfram þar. » 27 LÁRA V. JÚLÍUSDÓTTIR ’Börn og ungmenni eru við-kvæmur þjóðfélagshópur semþarfnast sérstakrar verndar ogumönnunar umfram aðra þjóðfélags-þegna. Við þurfum sterkt velferðarnet um börn og ungmenni þegar atvinnu- leysi og veruleg tekjuskerðing er hjá mörgum fjölskyldum. » 27 MARGRÉT M. SIGURÐARDÓTTIR ’Mansal er eitthvert andstyggileg-asta form skipulagðrar, alþjóð-legrar glæpastarfsemi sem virðir eng-in landamæri. Áætlunin eflirmöguleika stjórnvalda á að koma lög- um yfir gerendur mansals þannig að þeim verði refsað og tryggja fórn- arlömbunum skjól og vernd. Við vitum að mansal þrífst á Íslandi líkt og víða annars staðar. » 28 ÁSTA R. JÓHANNESDÓTTIR ’Ferðamálaráð telur það grund-vallaratriði fyrir ferðaþjónustunaað lykilsvæðum fyrir hvalaskoðunverði hlíft við veiðum og umferð hval-veiðibáta, sem fyrirsjáanlegt er að fari af stað á vordögum. » 30 SVANHILDUR KONRÁÐSDÓTTIR EINAR KARL HARALDSSON

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.