Morgunblaðið - 19.03.2009, Blaðsíða 45

Morgunblaðið - 19.03.2009, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. MARS 2009 Elskendurnir í Elegy, pró-fessorinn David Kepeshog nemandinn Consuela(Cruz), eru harla ólík um flest. Hann langsjóaður, víðfrægur lærimeistari og gagnrýnandi í sjón- varpi, kominn á sjötugsaldur. Hún kúbanksættaður Bandaríkjamaður í háskólanámi, undurfögur, fær og helmingi yngri. Þau dragast hvort að öðru og vandalaust að sjá ástæð- urnar fyrir hrifningu Kepesh, menn þurfa ekki að vera orðnir gamlaðir til að hrífast af æskuþokka Consuelu, hún er ómótstæðileg. Hún fellur fyrir frægð hans, gáfum og reynslu. Líkt og nafnið bendir til og að- stæður allar verður samband þeirra þyrnum stráð, þrjátíu ára aldurs- munur hlýtur að verða fjötur um fót. Ást þeirra er tormelt og ótrúverðug og hlýtur að enda á einn veg þrátt fyrir að sá gamli sé sprækari en tán- ingur, ástin og lostinn liggi í loftinu; kynslóðabilið er einfaldlega of breitt á milli þeirra til að draumurinn vari að eilífu. Sektin og efinn naga sálina. Kingsley er heillandi persóna og hárfínn leikari. Hann hefur einnig til að bera óheftan frumkraft sem ligg- ur rétt undir yfirborðinu og naut sín einstaklega vel í Sexy Beast. Cruz skilar sínu vel, hún er ekki aðeins óvenjuglæsileg heldur er hún mögn- uð leikkona, minnir á gengnar drottningar hvíta tjaldsins, eins og Bergman. Fínir skapgerðarleikarar koma við sögu í aukahlutverkum, einkum er ánægjulegt að sjá netta takta Hoppers í hlutverki O’Hearns, starfsbróður og vinar Kepesh, hvar er hann nú, síðhærði hippinn í Easy Rider? Lífið er skrítið og stutt. Sarsgaard sýnir á sér nýja hlið sem sjálfselskur og bitur sonur Kepesh, hlutverk sem hefur reyndar lítið að segja fyrir framvinduna. Clarkson sleppir ekki tökum á manni sem við- hald Kepesh til margra ára. Elegy er á köflum vel skrifuð og vitsmunaleg, einkum er þeir ræða málin sín á milli, vinirnir Kepesh og O’Hearn, en þrátt fyrir fimlegar rök- ræður víkur fáránleikinn aldrei langt frá aðalpersónunum og þvílíkar björgunaraðgerðir sem þarf að grípa til í lokin, þær stórskaða að mörgu leyti áhugaverða mynd. Það liggur ekki í augum uppi hverjum Elegy er ætluð, kannski vistmönnum á öldr- unarstofnunum? Óvenjuleg ástarsaga Sambíóin Elegy bbmnn Leikstjóri: Isabel Coixet. Aðalleikarar: Penélope Cruz, Ben Kingsley, Dennis Hopper, Patricia Clarkson, Peter Sarsgaard, Deborah Harry. 108 mín. Bandaríkin. 2008. SÆBJÖRN VALDIMARSSON KVIKMYND Elegy Kingsley er heillandi persóna og hárfínn leikari, Cruz skilar sínu vel og minnir á gengnar drottningar hvíta tjaldsins. Deboruh Harry bregður fyrir í hlut- verki eiginkonu Dennis Hoppers, lit- lausu hlutverki fyrir þessa goðsögn úr poppheiminum frá því á áttunda og níunda áratugnum. Þá fór Deb- bie með himinskautum sem söng- kona og prímusmótor rokkbandsins Blondie, sem einnig var gælunafn kynþokkafulls fyrirliðans. Hljóm- sveitin leystist upp árið 1984, eftir áratug topplaga, platínuskífna og alheimsdýrkunar söngkonunnar. Þá sneri hún sér að leiklist en hefur gengið upp og ofan. Debbie Harry hefur komið fram af og til allt fram á þennan dag, bæði ein og með nokkrum gömlum félögum úr hljómsveitinni góðu. Í Elegy er ljósa hárið tekið að missa skerpuna, það skiptir hana greinilega engu máli. Hún kemur til dyranna eins og hún er klædd, líkt og jafnan áður, hún Debbie Harry, og gamli kynþokkinn er enn á sínum stað. Debbie Harry fellir gervið Sími 564 0000 Þú færð 5 % endurgreitt í Smárabíó 600 kr. fyrir b örn 750 kr. fyrir f ullorðna The Pink Panther 2 kl. 4 - 6 LEYFÐ Viltu vinna milljarð kl. 5:30 - 8 B.i. 12 ára Skógarstríð 2 kl.3:45600 kr. f. börn, 750 kr. f. fullor. LEYFÐ Watchmen kl. 5 - 8 - 10:30 DIGITAL B.i. 16 ára Watchmen kl. 5 - 8 DIGITAL LÚXUS Marley & Me kl. 5:30 - 8 - 10:30 LEYFÐ The International kl. 8 - 10:30 B.i. 16 ára Ævintýri Despereaux ísl. tal kl. 3:40 LEYFÐ SÝND Í SMÁRABÍÓI 50 kr. afsláttur ef þú kaupir bíómiðann á Tvær vikur á toppnum í U.S.A.! Þau voru í fullkomnu sambandi þangað til einn lítill hlutur komst upp á milli þeirra Frábær gamanmynd með Jennifer Aniston og Owen Wilson ... og hundinum Marley SÝND Í SMÁRABÍÓI, HÁSKÓLABÍÓI OG BORGARBÍÓI “Marley & Me er skemmtileg kvikmynd sem lætur engan ósnortinn.” - M.M.J., Kvikmyndir.com “...vönduð og ómissandi fjöl- skyldumynd öllum þeim sem unna lífinu í kringum okkur.” - S.V., MBL “ Ljúfsárt fjölskyldudrama” - H.E., DV HÁSKÓLABÍÓI OG BORGARBÍÓI LÍTIL MÚS, STÓRIR DRAUMAR - S.V., MBL SÝND MEÐ ÍSLE NSKU TALI SÝND Í SMÁRABÍÓI SÝND Í SMÁRABÍÓI, borgar bíómiðann með Kreditkorti tengdu Aukakrónum! - S.V., MBL - L.I.L.,TOPP5.-FBL.IS 8ÓSKARSVERÐLAUN Þ A R Á M E Ð A L BESTA MYNDIN OG BESTI LEIKSTJÓRINN Bráðfyndin rómantísk gamanmynd sem sviptir hulunni af samskiptum kynjanna Sýnd kl. 5:45, 8 og 10:15 Sýnd kl. 8 og 10:30 Þú færð 5 % endurgreitt í Laugarásbíó ef þú greiðir með kreditkorti tengdu Aukakrónumwww.laugarasbio.is -bara lúxus Sími 553 2075 STÆRSTA OPNUN Í USA Á ÞESSU ÁRI! FRÁ LEIKSTJÓRA 300 KEMUR FYRSTA STÓRMYND ÁRSINS 2009! MYNDIN ER BYGGÐ Á SÖGU SEM TIMES HEFUR M.A. VALIÐ SEM EINA AF BESTU ENSKU SKÁLDSÖGUM SÍÐUSTU ALDAR POWERSÝNING KL. 10 Á STÆRSTA TJALDI LANDSINS MEÐ DIGITAL MYND OG HLJÓÐI “BRILLIANT AÐLÖGUN Á EINNI VIRTUSTU MYNDASÖGU ALLRA TÍMA. GEFUR MYNDUM EINS OG DARK KNIGHT LÍTIÐ EFTIR.” TOMMI - KVIKMYNDIR.IS Sýnd kl. 7 og 10 POWERSÝNING Sýnd kl. 6 með íslensku tali - S.V., MBL SÝND MEÐ ÍSLENSKU TALI “WATCHMEN ER AUGNA- KONFEKT, VEL KLIPPT OG TEKIN... PUNTUÐ MEÐ TÓNLIST SNILLINGA...“ - S.V. MBL AÐSÓKNAMESTA MYND ÁRSINS - 35.000 MANNS. MYND SEM ÞÚ MÁTT EKKI MISSA AF! www.veggfodur.is Fullkomin öryggiskerfi með miklum möguleikum og þráðlausum skynjurum. Henta vel fyrir heimili, sumarhús og fyrirtæki og fást í mörgum útfærslum. Uppsetning í boði ef óskað er. TILVERAN getur verið streitulaus ... ÖRYGGI ÁN MÁNAÐARGJALDA RAFTÆKJAVERSLUN • SÍÐUMÚLA 2 • SÍMI 568 9090 • www.sm.is UMBOÐSMENN UM LAND ALLT MEÐ ÍSLENSKU TALI OG TEXTA MEÐAL MÖGULEIKA: • REYKSKYNJARI • VATNSSKYNJARI • HITASKYNJARI • GASSKYNJARI • ÖRYGGISHNAPPUR 1971 • 2009 EINKA ÖRYGGISKERFI

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.