Morgunblaðið - 19.03.2009, Page 30

Morgunblaðið - 19.03.2009, Page 30
Fáðu þér áskrift að Morgunblaðinu ámbl.is/askrift – fylgist með Morgunblaðið gefur út sérblað í samvinnu við Hönnunarmiðstöð Íslands tileinkað vordögum íslenskrar hönnunar miðvikudaginn 25. mars 2009. Tilgangurinn er að vekja athygli á íslenskri hönnun hvers konar, stórri sem smárri. Opin hús verða víðs vegar um borgina, kynningar, fyrirles- trar, málþing, innsetningar, sýningar; yfir 130 viðburðir verða á tímabilinu. Meðal efnis: - Hvað er HönnunarMars - Íslensk hönnun - Viðtal við arkitekta - Skemmtileg hönnunarverkefni - Hönnunarnám - Viðskiptastefnumót hönnuða - Íslensk hönnun í áranna rás Auglýsendur Tekið er við auglýsingapöntunum til kl 16:00 föstudaginn 20. mars Allar nánari upplýsingar veita Katrín L. Rúnars- dóttir í síma 510 37 27 eða katalaufey@mbl.is, og Kolbrún Dröfn Ragnarsdóttir í síma 510 37 22 eða kolla@mbl.is MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. MARS 2009 AÐ UNDAN- FÖRNU hefur því ver- ið haldið mjög á lofti í fjölmiðlum hversu miklu hin einstöku ráðuneyti og stofnanir hafa varið til kaupa á ráðgjöf á undanförnum árum. Umfjöllunin hef- ur haft þann undirtón að það sé hið mesta bruðl með al- mannafé þegar opinberir aðilar kaupa ráðgjöf og aðra þjónustu hjá einkafyrirtækjum. Svo virðist sem til- gangurinn með þessari umfjöllun hafi verið að skapa neikvætt viðhorf hjá almenningi til þessarar starfsemi. Hafa ber í huga að fjölmiðlarnir eru það afl í þjóðfélaginu sem mótar skoðanir almennings og ekki síður þeirra sem með völdin fara. Eins og öllum má vera ljóst eiga mikil viðskipti sér stað milli op- inberra aðila og einkafyrirtækja. Op- inberar stofnanir og fyrirtæki eru mjög stór- ir kaupendur að margs konar vöru og þjónustu. Um innkaup hins op- inbera, á bæði vörum og þjónustu, gilda lögfest- ar reglur sem segja til um hvernig standa skuli að slíkum viðskiptum. Það eru því ekki nein sérstök tíðindi að hið opinbera eigi viðskipti við einkageirann. Það hefur meira að segja verið yfirlýst markmið stjórnvalda á mörgum undanförnum árum að fela einkafyrirtækjum eins mikið af starf- semi hins opinbera og kostur er. Þessi umræða hefur á hinn bóginn vakið athygli á þeirri staðreynd að úr- bóta er þörf við kaup hins opinbera á ráðgjöf og annarri þjónustu. Þær upplýsingar sem fjölmiðlar hafa birt að undanförnu hafa þrátt fyrir allt leitt það í ljós. Það þarf að eiga sér stað viðhorfs- breyting til viðskipta milli opinberra aðila og einkaaðila. Það er mikilvægt að allir geri sér grein fyrir því mikla hagræði sem af því hlýst fyrir op- inber fyrirtæki og stofnanir að fela einkaaðilum margvísleg verkefni. Miklu varðar að við kaup á ráðgjaf- arþjónustu sé tekið tillit til gæða þjónustunnar, reynslu og þekkingar, ekki síður en verðs. Á hinum Norð- urlöndunum hafa viðskipti þessi þeg- ar þróast með jákvæðum hætti, báð- um aðilum til hagsbóta. Þarna getum við mikið lært af frændþjóðum okkar. Þessi viðskipti sem önnur verða að vera hafin yfir tortryggni. Besta leið- in til þess er að hið opinbera fylgi al- mennum útboðsreglum við ákvörðun um kaup á ráðgjöf. Andrés Magnússon skrifar um kostnað ríkisins vegna ráð- gjafar » Það þarf að eiga sér stað viðhorfs- breyting til viðskipta milli opinberra aðila og einkaaðila. Andrés Magnússon Höfundur er framkvæmdastjóri Sam- taka verslunar og þjónustu. Ráðgjafarþjónusta er mikilvæg atvinnugrein NOKKUR umræða hefur verið að und- anförnu um hvort rétt- mætt sé að skrá börn sjálfkrafa í trúfélag móður við fæðingu þess. Dómsmálaráð- herra sér ástæðu til að skoða málið en Sið- mennt hefur um langt árabil gagnrýnt núverandi fyr- irkomulag. Morgunblaðið skrifar um málið og þann 15. mars er þar leiðari sem vert er að gera athugasemd við. Sá sem hann skrifar hefur viljandi misskilið orð sem höfð voru eftir mér við vinnslu blaðsins og skal ég gera grein fyrir því. Ég vil árétta að Sið- mennt hefur í mörg ár bent á að ekki sé rétt að ríkið eigi að hafa milligöngu í því að skrá ómálga börn í lífsskoð- anafélög, hvort sem er trúarleg eða veraldleg, frekar en önnur félög. For- eldrar eiga sjálfir að sjá um að skrá börn sín í trúfélög ef þeim finnst eðli- legt að börn séu yfirleitt skráð í slík félög. Siðmennt telur að það sé ákvörðun sjálfráða einstaklinga að skrá sig í lífsskoð- unarfélag rétt eins og stjórnmálasamtök og því á það að vera hverj- um einstaklingi um 16 ára aldur eða eldri í sjálfsvald sett hvar eða hvort viðkomandi skráir sig í lífsskoðunarfélag. Leiðarahöfundur virðist hinsvegar túlka þessa skoðun á þann hátt að þar með séu húmanistar á því að ekki skuli ala börn upp við lífsskoðun. Það er rangt. Þetta virðist vera sama bábiljan og að halda því fram að húmanistar séu siðlausir af því að þeir hafni kristnu eða ísl- ömsku siðgæði! Ég tek undir orð leiðarahöfundar um að siðferðisgrundvöllur ein- staklinga verði til í fjölskyldunni óháð því hvaða lífsskoðun viðkomandi elst upp við. Að koma fram við aðra eins og þú vilt að aðrir komi fram við þig, að myrða ekki fólk, að virða skoðanir annarra, að treysta á lýðræði, að til- einka sér gagnrýna hugsun, að sýna öðrum tillitssemi, heiðarleika, dreng- skap, sannsögli, ábyrgð, að virða mannréttindi allra án tillits til skoð- ana eða kynhneigðar. Þetta eru nokk- ur af þeim gildum sem húmanistar leggja áherslu í uppeldi barna sinna og telja ekki síðri gildi en gildi ann- arra lífsskoðana. Eftir stendur að Siðmennt telur að lögum um sjálfkrafa skráningu barna í lífsskoðunarfélög verði að breyta á þann veg að ríkið, í hvaða formi sem það birtist, hætti skráningu fyrir trú- og lífsskoðunarfélög. Lífsskoð- unarfélög sem sækjast eftir með- limum verði að sjá um slík mál sjálf og getur t.d. skírn sem staðfesting á inngöngu viðkomandi einstaklings verið lausn á þessu. Siðmennt hefur þá reglu að enginn undir 16 ára aldri geti orðið félagsmaður. Bjarni Jónsson ger- ir athugasemdir við leiðara Morg- unblaðsins » Leiðarahöfundur virðist hinsvegar túlka þessa skoðun á þann hátt að þar með séu húmanistar á því að ekki skuli ala börn upp við lífsskoðun. Það er rangt. Bjarni Jónsson Höfundur er varaformaður Siðmenntar. Uppeldi án lífsskoðana? ÁGÆTUR félagi okkar úr Ferða- málaráði, Gunnar Sig- urðsson, birtir hugleið- ingu um sjálfbæra nýtingu í Morg- unblaðinu 16. mars. Við fáum ekki skilið hversvegna hann kýs að tengja hana við samþykkt ráðsins frá 6. þessa mánaðar. Þar var þeim áhyggjum að vísu lýst að sú ákvörðun að leyfa hvalveiðar gerði þeim sem störfuðu að landkynningu erfitt fyrir. Auk þess var áréttað að fyrirtæki sem hefðu lagt í miklar fjárfestingar vegna hvalaskoðunar væru verulega uggandi um afkomu sína. En meg- inefnið fólst í brýningu til stjórnvalda um að gæta hagsmuna ferðaþjónust- unnar og þeirrar nýju útgerðar innan hennar sem felst í hvalaskoðun. Ferðamálaráð telur það grundvall- aratriði fyrir ferðaþjónustuna að lyk- ilsvæðum fyrir hvalaskoðun verði hlíft við veiðum og umferð hval- veiðibáta, sem fyrirsjáanlegt er að fari af stað á vordögum. Ráðið lagði jafnframt ríka áherslu á að fulltrúar ferðaþjónustunnar ættu formlega að- ild að þeim viðræðum um endur- skoðun á ákvörðun um hvalveiðar, sem sjávarútvegsráðherra hefur lýst yfir að séu á döfinni. Ferðamenn hafa flykkst tugþús- undum saman í hvalaskoðun á síð- ustu árum og það væri mikil skamm- sýni að taka ekki tillit til heildarhagsmuna þegar hvalveiðar og útfærsla þeirra eru á dagskrá. Og ekki er heldur sérstök ástæða til þess að efna til deilna út af hvalveiðum við þær þjóðir sem helst vilja sækja Ís- land heim. Í ferðamálaráði sitja fulltrúar iðnaðarráðuneytisins, Sam- taka ferðaþjónustunnar, Ferðamála- samtaka Íslands, Útflutningsráðs og Samtaka sveitarfélaga og hvöttu allir fulltrúar í ráðinu, að undanskildum Gunnari Sigurðssyni, til ýtrustu var- færni í þessum efnum með hag ferða- þjónustunnar og landsmanna að leið- arljósi. Svanhildur Kon- ráðsdóttir og Einar Karl Haraldsson gera athugasemd við skrif Gunnars Sigurðssonar » Ferðamálaráð telur það grundvall- aratriði fyrir ferðaþjón- ustuna að lykilsvæðum fyrir hvalaskoðun verði hlíft við veiðum og um- ferð hvalveiðibáta... Svanhildur Konráðsdóttir Höfundar eru formaður og varaformaður Ferðamálaráðs. Einar Karl Haraldsson Hvalaskoðun fái frið

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.