Morgunblaðið - 19.03.2009, Blaðsíða 42
42 MenningFÓLK
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. MARS 2009
Eftir Jóhann Bjarna Kolbeinsson
jbk@mbl.is
„VIÐ leituðum lengi að Range Ro-
ver en enduðum með Porsche Ca-
yenne. Okkur fannst hann bara vera
flottari,“ segir Jón Páll Eyjólfsson,
einn þriggja aðstandenda leiksýn-
ingarinnar Þú ert hér sem verður
frumsýnd í Borgarleikhúsinu hinn
26. mars. Um er að ræða nýtt verk
eftir Mindgroup-leikhópinn sem
fjallar öðru fremur um ástandið í
þjóðfélaginu í kjölfar bankahruns-
ins. Í ljósi þess auglýsti Borgarleik-
húsið eftir hinum ýmsu munum
tengdum bankahruninu sem notaðir
verða í sýningunni, auk þess sem
leikhópurinn varð sér úti um áð-
urnefndan jeppa sem verður hluti af
leikmyndinni.
„Allir þessir bílar hafa fengið allt
aðra merkingu en áður, þetta sem
var merki um „dugnað“ er orðið
merki um eitthvað allt annað, eins
og blys um Nígeríu-svindl eða eitt-
hvað álíka,“ segir Jón Páll um til-
gang jeppans á sviðinu en Borg-
arleikhúsið greiðir afborganir af
honum á meðan á leiksýningum
stendur.
„Okkur fannst jákvæðara að þetta
nýttist einstaklingi sem er að glíma
við mjög fjandsamlegt bílalán frekar
en að leita til umboðanna,“ útskýrir
Jón Páll.
Rannsóknarstofa
Auk Jóns Páls mynda þeir Jón
Atli Jónasson og Hallur Ingólfsson
Mindgroup-tríóið, en þeir félagar sjá
um nánast alla þætti sýningarinnar,
svo sem leikstjórn, leikmynd, bún-
inga, tónlist og leik. Hvað leikmynd-
ina varðar segir Jón Páll að þeim
hafi ekki þótt við hæfi að eyða mikl-
um peningum – það hefði verið í
ákveðinni mótsögn við inntak verks-
ins. „Við vildum ekki láta smíða leik-
mynd fyrir einhverja milljón heldur
er hugmyndin sú að nota hluti sem
eru til í leikhúsinu eða fengnir að
láni,“ segir hann og því var gripið til
þess ráðs að auglýsa eftir hinum
ýmsum munum um miðjan janúar.
„Við fengum helling út úr þessu,
bæði muni og frásagnir. Fólk kom
með gjafir sem það hafði fengið frá
bönkunum sínum og lánastofnunum
og því fylgdi gjarnan sögur. Þannig
að þarna gafst tækifæri til að hitta
fólk sem var í miklum ham til að
ræða hlutina á þessum tímapunkti.“
Munirnir sem bárust verða not-
aðir sem leikmunir, auk þess sem
frásagnirnar fara óbeint inn í verkið
sjálft. „Þær urðu að efnivið sem fóru
kannski ekki beint inn í sýninguna,
heldur meira eins og innblástur fyrir
þessar handritsvélar sem við bjugg-
um til. Þessi hópur vinnur þannig
með leikhúsformið að við notum leik-
sviðið sem rannsóknarstofu og rann-
sökum ákveðnar kringumstæður.
Núna erum við til dæmis að rann-
saka þær kringumstæður að vera í
rústunum, í heimi þar sem allt hefur
breyst, og allt hefur aðra merkingu
hvort sem það er flatskjárinn, mat-
reiðslubókin sem þú fékkst frá
Landsbankanum eða bíllinn í inn-
keyrslunni hjá þér. Upp úr þessu
sprettur svo texti, búningar eða
jafnvel sviðsetningin sjálf,“ segir
Jón Páll að lokum.
Lúxusjeppi á leiksviðinu
Borgarleikhúsið auglýsti eftir munum tengdum bankahruninu og fékk meðal
annars Porsche Cayenne-jeppa Er hluti leikmyndar sýningarinnar Þú ert hér
Morgunblaðið/Kristinn
Táknrænt Mindgroup-hópurinn ásamt Porsche Cayenne jeppanum á Nýja sviði Borgarleikhússins.
Eftir Ingveldi Geirsdóttur
ingveldur@mbl.is
ÞEIR eru ófeimnir leikmennirnir í
meistaraflokki íshokkídeildar
Skautafélags Reykjavíkur en ný-
verið sendu þeir frá sér sjóðheitt
dagatal til fjáröflunar.
„Við fengum þessa hugmynd
fyrir meira en tveimur árum en
það myndaðist aldrei almennileg
stemning til að gera þetta innan
hópsins fyrr en núna. Við
ákváðum svo að kýla á þetta í des-
ember því það er ekki hlaupið að
því í dag að ná í styrktaraðila,“
segir Helgi Páll Þórisson, formað-
ur íshokkídeildarinnar.
Á dagatalinu má sjá tólf myndir
af stinnum skrokkum sem leynast
vanalega undir þungum keppnis-
búningum á íshokkívellinum.
„Hugmyndin var að fara eins
nálægt strikinu og við gátum án
þess að fara yfir það. Þetta er list-
ræn nekt, ekki ljót eða klámfeng-
in, enda myndirnar teknar af
miklum fagmanni, Kristjáni Ma-
ack.“
Hreint og beint ógeðslegt
Þótt nektardagatöl séu ekki ný
af nálinni sem fjáröflunarleið seg-
ist Helgi hafa fengið margvísleg
viðbrögð. „Við erum búnir að fá
ýmsar athugasemdir við dagatal-
inu, frá því að það sé rosalega
flott, glæsilegt og gott, yfir í að
þetta sé hreint og beint ógeðslegt.
Svona dagatöl eru ekki óalgeng
fjáröflunarleið, slökkviliðið og
gámaþjónustan gerðu þetta t.d.
bæði nýlega. Dagatalið okkar er
reyndar kannski aðeins djarfara
en þeirra, opinberar meira,“ segir
Helgi kíminn. Hann viðurkennir
að menn hafi verið pínulítir
smeykir við það hvernig þetta
kæmi út og ekki hefðu konur allra
verið sáttar en þegar dagatalið
kom úr prentun jókst tiltrú allra á
verkinu.
Prentuð voru þúsund dagatöl og
að sögn Helga gengur vel að selja.
Hægt er að nálgast eintak á skrif-
stofu SR í Skautahöll Reykjavíkur
og kostar eitt 1.000 kr.
Nánast naktir skautagarpar
Íshokkí Vanalega hylja leikmennirnir sig meira á skautasvellinu en þetta.
Íshokkíleikmenn fækkuðu fötum til fjáröflunar
Á heimasíðu Borgarleikhússins
má finna eftirfarandi texta um
söguþráðinn í Þú ert hér:
„Þrír menn eru staddir í rúst-
um. Þeir uppgötva að veröld
þeirra er liðin undir lok og að
þeir verða að læra að fóta sig að
nýju. Úr rústunum í kringum sig
raða þeir saman bútum úr fyrra
lífi og reyna að átta sig á því
hvar þeir eru staddir, hvað hafi
gerst og hvert skuli stefna.“
Þú ert hér
Fólk
NORRÆNN tískutvíæringur hefst í Norræna
húsinu í dag og stendur til 4. apríl.
„Það er Norræna húsið sem stendur fyrir
þessum viðburði, Nordic Fashion Biennale, í
samstarfi við menntamálaráðuneyti Grænlands,
Færeyja og Íslands,“ segir Ilmur Dögg Gísla-
dóttir, verkefnastjóri viðburðarins.
Fókusinn á þessum fyrsta norræna tískutvíær-
ingi er á fatahönnun og skartgripi frá vestnor-
rænu þjóðunum, Íslandi, Grænlandi og Fær-
eyjum. „Sýningunni er skipt í þrjá hluta sem
nefnast: Frammi fyrir sköpunarkraftinum, Til-
raunastofa og Skartgripasýning. Síðan á sýning-
artímabilinu eru margvíslegir viðburðir sem
varpa ljósi á vestnorræna fatahönnun eins og
fyrirlestrar, ráðstefnur, heimildamyndasýning
og tónleikar. Til dæmis er eitt þema á dag-
skránni tískuiðnaðurinn og sjálfbærnin og því
þema fylgjum við eftir með fyrirlestri Karls
Aspelund á morgun og ráðstefnu á þriðjudaginn
sem heitir Meðvituð um tískuna.
Helgina 26.-29. mars er Fatahönnunarfélag Ís-
lands svo með dagskrá í Norræna húsinu. Þar
verður m.a. sýning á íslenskri fatahönnun sem
hefur verið að gera það gott erlendis, sýning á
heimildarmynd sem heitir Möguleikar 2009, ljós-
myndasýning sem sýnir fatahönnuði að störfum
og á sunnudeginum verður tískuveisla þar sem
nýjustu línurnar frá íslenskum fatahönnuðum
verða sýndar,“ segir Ilmur.
Nánir upplýsingar má finna á: www.nordic-
fashionbiennale.com ingveldur@mbl.is
Frammi fyrir vestnorrænum sköpunarkrafti
Tíska Á sýningunni verður m.a. bleikur skáli
fyrir utan húsið með tuttugu gínum í.
Breska tríóið Tiger Lillies er
væntanlegt hingað til lands, en það
mun spila á Listahátíð í Reykjavík í
Íslensku óperunni hinn 29. maí
næstkomandi. Hér á landi er sveitin
trúlega hvað þekktust fyrir að hafa
átt tónlistina í gamanmynd Valdís-
ar Óskarsdóttur, Sveitabrúðkaupi,
sem frumsýnd var í fyrra. Miðasala
á tónleikana hefst í dag og fer hún
fram á listahatid.is og á midi.is.
Í fréttatilkynningu frá Listahátíð
segir meðal annars að Tiger Lillies
hafi aldrei brugðist því hlutverki
sínu að koma áheyrendum og
áhorfendum á óvart með sínum ein-
stöku og allt að því afbrigðilegu
tónlistartilþrifum. Húmorinn sé
alltaf tvíræður og íronían beitt og
þeim sé best lýst sem djöfullegum
en samt dásamlegum. „Tónlist, og
ekki síður tilþrif, Tiger Lillies
skáru sig strax úr. Þótt margir hafi
reynt að feta í fótspor þeirra hefur
engum tekist að komast með tærn-
ar þar sem Tígrisliljurnar hafa hæl-
ana,“ segir meðal annars í tilkynn-
ingunni.
Djöfullegar og dásam-
legar Tígrisliljur
Íslenskar stuttmyndir eru í for-
grunni á stuttmyndahátíðinni Go-
Short sem hófst í fyrradag í hol-
lensku borginni Nijmegen.
Sérstakri dagskrá sem kallast
„Breaking the Ice“ var hleypt af
stokkunum í gær en þar verða alls
þrettán íslenskar stuttmyndir eftir
tólf leikstjóra sýndar auk þess sem
haldnar verða pallborðsumræður
um íslenskar stuttmyndir. Það er
danski kvikmyndafræðimaðurinn
Birgir Thor Möller sem stjórnar
umræðum en meðal þátttakenda
eru leikstjórarnir Grímur Há-
konarson og Gísli Darri Hall-
dórsson, sem báðir eiga myndir á
hátíðinni. Íslensk stuttmyndagerð
hefur verið í gríðarlegri sókn und-
anfarinn áratug og íslenskir stutt-
myndaleikstjórar hafa sýnt og
sannað að þeir eru á heims-
mælikvarða. Nema hvað.
Íslensk stuttmynda-
gerð í forgrunni