Morgunblaðið - 19.03.2009, Page 15

Morgunblaðið - 19.03.2009, Page 15
Fréttir 15INNLENT MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. MARS 2009 Laugavegi 13, 101 Reykjavík sími 515 5800, rannis@rannis.is www.rannis.is Hlutverk Rannís er að veita faglega aðstoð og þjónustu við undirbúning og framkvæmd vísinda- og tæknistefnu Vísinda- og tækniráðs. Rannís er miðstöð stuðningskerfis vísinda- og tæknisamfélagsins. Í vörslu Rannís eru opinberir samkeppnissjóðir s.s. Rannsóknasjóður og Tækniþróunarsjóður. Rannís sér um greiningu á rannsóknum og nýsköpun á Íslandi og gerir áhrif rannsókna og nýsköpunar á þjóðarhag og hagvöxt sýnilegan. Rannís er miðstöð upplýsinga og miðlunar alþjóðasamstarfs vísinda- og tæknisamfélagsins. Í tilefni af nýrri úthlutun Rannsóknasjóðs fyrir styrkárið 2009 verður dagskrá í Ráðhúsi Reykjavíkur föstudaginn 20. mars frá kl. 15 - 18. Kynntar verða áherslur í starfsemi sjóðsins auk þess sem haldin verður sýning á nokkrum verkefnum sem hlotið hafa styrk úr sjóðnum. Ný úthlutun 2009 Kynning í Ráðhúsi Reykjavíkur 20. mars Dagskrá 15:00 Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra setur dagskrána 15:10 Guðrún Nordal, prófessor og formaður stjórnar Rannsóknasjóðs, kynnir nýja úthlutun fyrir styrkárið 2009 og áherslur í starfsemi sjóðsins 15:30 Hannes Jónsson, prófessor, Reiknisetur fyrir hönnun efna og íhluta (nýtt öndvegisverkefni 2009) 15:45 Vilmundur Guðnason, prófessor, Breytingar í stærð og samsetningu skella í hálsæðavegg og tengsl orsakaþátta - Langsniðsrannsókn (nýtt öndvegisverkefni 2009) 16:00 Sýning á nokkrum verkefnum sem njóta stuðning Rannsóknasjóðs (opin til kl. 18:00) Almenningur er hvattur til að kynna sér starfsemi Rannsóknasjóðs og opinberan stuðning við rannsóknir. Rannsóknasjóður FRÉTTASKÝRING Eftir Björn Jóhann Björnsson bjb@mbl.is YFIRLÝSINGAR er að vænta í dag eða á morgun frá Jóhönnu Sigurð- ardóttur forsætisráðherra um hvort hún gefur kost á sér sem formaður Samfylkingarinnar í stað Ingibjarg- ar Sólrúnar. Rúm vika er þar til landsfundur fer fram og margir flokksmenn orðnir óþreyjufullir eftir svari frá Jóhönnu. „Biðin er orðin óbærileg,“ sagði einn flokksbundinn samfylkingarmaður við blaðið í gær. Varla er sá flokksmaður til sem með einum eða öðrum hætti hefur ekki biðlað til Jóhönnu að taka formanns- embættið að sér; með bænaskjali, samtölum, símhringingum, tölvu- póstum og skoðanakönnunum. Sem kunnugt er fékk Jóhanna yf- irburðakosningu í fyrsta sæti Sam- fylkingarinnar í Reykjavík í próf- kjöri síðustu helgar, eða 78% greiddra atkvæða. Margir reiknuðu með að strax í kjöl- far svo afgerandi niðurstöðu kæmi yfirlýsing frá Jóhönnu. Sterkur orð- rómur þess efnis var innan flokksins fram á sunnudagskvöld. Fjórum dög- um síðar er slík yfirlýsing ekki enn komin og viðmælendum blaðsins ber ekki alveg saman um hvað veldur. Prófkjörið ýtti við henni Flestir þeirra sem rætt var við í gær telja að niðurstaða prófkjörsins hafi ýtt við Jóhönnu og hún muni á endanum gefa sig, eins og það var orðað. Fyrir prófkjörið hafði hún sagt opinberlega að hún væri að íhuga málið en hún hefði aldrei ætlað sér að verða formaður Samfylking- arinnar. Eftir prófkjörið hafa lík- urnar því aukist verulega á að hún gefi kost á sér. Hún líti svo á að ekk- ert liggi á þó að stutt sé til lands- fundar. Engir aðrir séu um hituna. Á móti er bent á að með því að draga að tilkynna ákvörðun minnki hún svig- rúm annarra líklegra formanns- og varaformannsefna til að vekja á sér athygli og kynna sig. Varaformannsefnin bíða Einn samstarfsmanna Jóhönnu sagði það stórmál fyrir hana að breyta um afstöðu til formannsins. Hún tæki þá stöðu alvarlega og hugnaðist ekki að taka við embætt- inu tímabundið til einhverra mála- mynda. Það væri ekki til í hennar orðabók. Annaðhvort tæki hún að sér verkefnin af fullri alvöru, eða alls ekki. Meðal þeirra sem enn bíða eftir ákvörðun Jóhönnu eru Dagur B. Eggertsson og Árni Páll Árnason. Báðir höfðu þeir lýst yfir áhuga á varaformannsembættinu. Eftir próf- kjörssigur í Suðvesturkjördæmi hef- ur Árni Páll styrkt stöðu sína og spurning hvaða áhrif það hefur á stöðu Dags að vera ekki í framboði til þings. Hann hefur farið víða um land að undanförnu og er greinilega að undirbúa sig fyrir landsfundinn. Lúðvík Geirsson var lengi vel orð- aður við formannsframboð en vænt- anlega er sá möguleiki úr sögunni eftir að hann hafnaði í 3. sæti í Suð- vesturkjördæmi. Verði samfylking- arfólki ekki að ósk sinni með Jó- hönnu gætu fleiri nöfn skotið upp kollinum en svo skammur tími er til stefnu að erfitt verður fyrir aðra að sanna sig. Biðin eftir Jóhönnu á enda Morgunblaðið/Kristinn Jóhanna Verður hún næsti formaður Samfylkingarinnar? Það gæti skýrst í dag en hún hefur legið undir feldi.  Samfylkingarfólk vonast enn til þess að Jóhanna Sigurðardóttir láti undan þrýstingi um að verða for- maður  Afgerandi niðurstöður prófkjörsins hreyfðu við henni  Svars að vænta í dag eða á morgun Eftir er að ganga endanlega frá lista Samfylkingarinnar í Reykjavík vegna þingkosninga. Jóhanna Sigurðardóttir var sú eina sem hlaut bindandi kosn- ingu í efstu sæti í prófkjörinu og því gæti röð frambjóðenda átt eftir að breytast. Hún breyt- ist a.m.k. í neðri sætum þar sem Jón Baldvin Hannibalsson hefur lýst því yfir að hann taki ekki sæti á listanum en hann endaði í 13. sæti í prófkjörinu. Að sögn Þorbjörns Guðmundssonar, for- manns fulltrúaráðs Samfylking- arinnar í Reykjavík, verður gengið frá listanum öðru hvoru megin við landsfund, sem hald- inn verður í Smáranum í Kópa- vogi 27.-29. mars nk. Meðal þess sem fulltrúaráðið bíður eftir er ákvörðun Jóhönnu. Röðin gæti breyst VÍSINDATÍMARITIÐ Science hef- ur birt grein eftir fjóra vís- indamenn þar sem þeir komast að þeirri niðurstöðu að fulltrúar þró- unarlanda kunni í reynd að vinna gegn hagsmunum landa sinna með því að styðja þá afstöðu hval- veiðiþjóða að endurheimta megi of- veidda fiskistofna og auka þannig afla með því að grisja hvalastofna. „Hvalveiðar gagnast ekki á bein- an hátt fiskveiðum, sem þessar þjóðir eru mjög háðar, en gætu stuðlað að eyðingu stofna sem skipta máli fyrir heildarjafnvægið í vistkerfum á fiskimiðum þeirra,“ segir meðal annars í greininni. Vísindamennirnir þróuðu líkön af vistkerfum til að kanna hugs- anlega aukningu, sem fást myndi á lífmassa verðmætra matfiska við Norðvestur-Afríku og í Karíbahafi ef hvölum yrði fækkað þar. Ofveiði rót vandans „Margvíslegar forsendur, sem varða fjölda hvala, fæðumagn þeirra og lífmassa fiskistofna á þessum hitabeltissvæðum, benda til þess að jafnvel þótt skíðishvölum væri með öllu útrýmt þar myndi líf- massi þeirra nytjafiska, sem þar eru veiddir, ekki aukast svo nokkru næmi. Á hinn bóginn gæti jafnvel óverulegur samdráttur í sókn fiski- skipa í þessa stofna aukið lífmassa fiskanna verulega. Athuganir okk- ar leiddu í ljós að hvalir sækja ekki svo neinu næmi í sömu fiskistofna og fiskimenn, auk þess sem útgerð- in sækir í sjó mun meiri lífmassa af fiski en hvalirnir éta. Við þetta bæt- ist að sumir fiskar, sem hvalir éta, eru í samkeppni við nytjafiska um átu og aðra bráð neðarlega í fæðu- keðjunum. Fækkun hvala í vistkerf- unum gæti því orðið til þess að minni afli yrði eftir handa útgerð- inni.“ Vísindamennirnir segja að flestir stofnar fiska og margir hvalastofn- ar hafi dregist verulega saman og megnið af þeirri vitneskju, sem fyr- ir liggi, bendi til þess að ofveiði af manna völdum sé rót vandans. „Þegar yfirvöld þróunarlanda í hitabelti eru hvött til að beina spjót- um sínum að „hvalur-étur-fisk“- vandanum er hætt við að það verði til þess að þau leiði hjá sér mesta vandann, sem útgerð þeirra stend- ur frammi fyrir, fiskiskip frá fjar- lægum löndum sem ofnýta sjáv- arauðlindir þeirra.“ Höfundar greinarinnar eru Leah R. Gerber við Arizona State Uni- versity í Bandaríkjunum, Lyne Morrissette við Institut des Sciences de la Mer de Rimouski í Kanada, Kristin Kaschner við Al- bert-Ludwigs-Universität í Frei- burg í Þýskalandi og Daniel Pauly við University of British Columbia í Vancouver í Kanada. Grisjun hvala yki ekki fiskafla þróunarlanda Morgunblaðið/RAX Afli Vísindamenn segja hvalveiðar geta stuðlað að eyðingu fiskistofna.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.