Morgunblaðið - 19.03.2009, Síða 18
18
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. MARS 2009
Fasteignabólan
Þrátt fyrir mikla erfiðleika á
fasteignamarkaði mun hann
ná sér á strik, þó síðar verði.
Íslendingum hefur fjölgað ár
frá ári og þeir munu áfram
þurfa þak yfir höfuðið. Það
þarf þó að grípa til róttækra
aðgerða og byrja að afskrifa
skuldir, segir Björn Þorri
Viktorsson, hrl. og fast-
eignasali.
!
"#$
%&
'
(
!
" #
$
%""
&
)
*
Móðir og barn Í Helgafelli hefur verið skipulögð umfangsmikil byggð. Þar er nú unnið hörðum höndum að uppbyggingu. Margar tómar lóðir eru þó á svæðinu.
Þ
ó offjárfestingar í fasteignum séu aug-
ljósar á höfuðborgarsvæðinu er fast-
eignamarkaðurinn ekki dauður. Hann
mun standa af sér hremmingar hvað
sem verðsveiflum og hugsanlegum gjald-
þrotum líður.
Þar ræður mestu sú staðreynd að fólk þarf
þak yfir höfuðið. Eftirspurn eftir húsnæði
verður alltaf fyrir hendi þó aðstæður til fast-
eignaviðskipta séu ekki góðar sem stendur.
Mikil óvissa gerir þeim sem vilja kaupa hús-
næði erfitt fyrir auk þess sem takmarkað að-
gengi að lánsfé gerir stöðuna verri en ella.
Ekkert vegur þó þyngra en almenn óvissa
um stöðu efnahags- og atvinnumála í landinu.
Þessi staða hræðir marga kaupendur frá því að
taka skuldbindandi ákvarðnir um kaup á hús-
næði.
Á meðan Íslendingum fjölgar á hverju ári,
um eitt prósent í fyrra, þá verður eftirspurn
eftir fasteignum fyrir hendi. Björn Þorri Vikt-
orsson, hrl. og einn eigandi fasteignasölunnar
Miðborgar, segir óvissu fæla fólk frá fasteigna-
kaupum. „Það liggur auðvitað fyrir að þau
hverfi sem hafa verið byggð upp á síðustu ár-
um munu að lokum fyllast af fólki. Spurningin
er einungis á hversu löngum tíma það verður.
Ég er hins vegar hræddur um að það geti verið
svolítið langt tímabil, ef til þess kemur að fólk
flytur úr landi vegna efnahagsniðursveifl-
unnar,“ segir Björn Þorri. Hann hefur efa-
semdir um að stjórnvöld átti sig nægilega vel á
þeim vandamálum sem hér kunna að skapast
ef ekki tekst að sporna við auknu atvinnuleysi
og niðursveiflu. „Ég tel að það þurfi að ráðast í
róttækar aðgerðir til að vernda eignir lands-
manna. Afskriftir skulda eru eina mögulega
leiðin að mínu mati. Eftir eignabólu eins og hér
hefur myndast og svo hrun alls bankakerfisins,
þá þarf hugrakkar, róttækar ákvarðanir til að
koma hjólunum af stað á nýjan leik. Staðan er
einfaldlega verri en svo að það dugi að lengja í
lánum og hjálpa fólki yfir næstu afborgun. Ég
finn fyrir því í mínum lögmannsstörfum að það
er verið að ganga hart að fólki í innheimtuað-
gerðum, þó aðstæður í landinu bjóði alls ekki
upp á það. Á meðan það er gert verður hætt-
unni á kerfishruni ekki afstýrt,“ segir Björn
Þorri.
Hálfkláraðar byggingar?
Í versta falli munu byggingafyrirtæki sem
unnið hafa að uppbyggingu fasteigna síðustu
ár lenda í miklum rekstrarvandræðum vegna
niðursveiflunnar í kjölfar bankahrunsins. Þeg-
ar hafa margir minni verktakar þurft að hætta
starfsemi og segja upp starfsfólki, auk þess
sem stór byggingafyrirtæki, eins og BYGG og
Íslenskir aðalverktakar, hafa dregið verulega
úr starfsemi. Íslenskir aðalverktakar hafa átt í
rekstrarerfiðleikum, eins og greint hefur verið
frá í Morgunblaðinu, en Nýi Kaupþing banki
vinnur að fjárhagslegri endurskipulagningu
fyrirtæksins með stjórnendum þessa dagana.
Erfiðleikar stærstu verktakanna geta haft
umtalsverð áhrif á hversu lengi hverfi verða að
Fasteignamarkaðurinn
1,22
milljarðar var heildarvelta
á fasteignamarkaði í síð-
ustu viku.
9,48
milljarðar var heildarvelta
á fasteignamarkaði á viku
um mitt ár 2007, þegar
hún var mest.
5.687
óseldar íbúðir, íbúða-
grunnar og auðar lóðir voru
á höfuðborgarsvæðinu um
mitt síðasta ár.
588
auðar lóðir voru í Helgafelli
í landi Mosfellsbæjar um
mitt ár í fyrra.
337,6
er staða vísitölu íbúð-
arverðs nú.
357,3
var staða vísitölunnar þeg-
ar hún var hæst, í byrjun
síðasta árs.
0,27
milljarðar er minnsta heild-
arvelta sem verið hefur á
fasteignamarkaði, milli jóla
og nýárs í fyrra.