Morgunblaðið - 19.03.2009, Síða 34

Morgunblaðið - 19.03.2009, Síða 34
✝ Áslaug Guð-mundsdóttir fæddist í Reykjavík 15. apríl 1958. Hún lést á hjúkr- unarheimilinu Skóg- arbæ 11. mars sl. Foreldrar hennar voru Guðmundur Steindórsson, f. 6. ágúst 1911, d. 14. apríl 1992, og Þur- íður Kristín Hjálm- týsdóttir, f. 5. októ- ber 1920, d. 22. ágúst 2001. Systkini Áslaugar eru Guðmundur, f. 9. júlí 1955, Guðbjörg, f. 15. janúar 1957, Elín, f. 22. október 1959, og Ólöf, f. 18. október 1961. Hálf- systkini hennar samfeðra eru Anna, f. 16. janúar 1948, Stein- dór, f. 21. mars 1949, og Guðrún, f. 5. júlí 1950. Hinn 15. október 1977 giftist Áslaug Sigurði Halldóri Ein- arssyni, f. 10. maí 1956. Þau skildu. Foreldrar Sigurðar eru Einar Þorbjörn Jónsson, f. 3. des- ember 1928, og Hall- dóra Halldórsdóttir, f. 25. október 1925, d. 14. apríl 2005. Börn Áslaugar og Sigurðar eru: 1) Þuríður Kristín, f. 6. ágúst 1974, gift Ara Friðfinnssyni, f. 14. júní 1975, börn þeirra eru Helga Sóley, f. 13. júní 1996, Karen Birna, f. 23. apríl 1998, og Einar Bjarki, f. 15. janúar 2004. 2) Jón, f. 3. ágúst 1977, kvæntur Evu Dögg Júlíusdóttur, f. 8. maí 1975, dóttir þeirra er Maren Karitas, f. 13. desember 2003. 3) Halldóra Sigrún, f. 29. júní 1981, í sambúð með Robert Vincent Ryan, f. 28. mars 1973, dóttir þeirra er Ás- laug Emma, f. 21. ágúst 2007. Lengst af vann Áslaug sem matráður og við ræstingar. Útför Áslaugar verður gerð frá Langholtskirkju í dag, 19. mars, og hefst athöfnin kl. 13. Elsku mamma mín, ég trúi ekki að þú sért farin frá okkur. Mér finnst þetta allt svo óraunverulegt. Finnst eins og þú sért hér enn og bíðir eftir að við komum í heimsókn. Þú varst alltaf svo mikil félagsvera, naust þín best innan um margt fólk, eins og þær fjölmörgu stundir sem við áttum saman uppi í bústað sýna fram á. Þar varstu í essinu þínu. Fullt af gestum, Nonni glamrandi á gítarinn, allir syngjandi hver í kapp við annan og þú, húsfreyjan, sást til þess að allir hefðu nóg af öllu. Þú hafðir svo margt til að bera, varst svo falleg og góð kona. Algjör gersemi. Ég man að sem lítil dama fannst mér mamma mín vera fallegasta kona í heimi, starði á þig með stórum augum og miklu stolti í brjósti. Þú varst það svo sann- arlega mamma mín og ert enn. Þú hefur alltaf verið stórglæsileg kona með stórt hjarta. Fljót að rétta fram hjálparhönd ef einhver þurfti þess með. Það var alltaf hægt að treysta á þig. En elsku mamma mín, þetta er svo erfitt, það er svo margt sem við áttum eftir að upplifa saman. Ég sakna þín svo mikið, sakna þess að sjá þig brosa þegar við komum í heimsókn eða ánægjuna sem skein úr augum þínum þegar við færðum þér góðgæti, hvað einn konfektmoli gat glatt þig mikið. Börnunum fannst það mjög mikil- vægt að gefa ömmu sinni góðgæti líkt og hún gaf þeim þegar þau voru yngri. Ég er svo ánægð og þakklát fyrir að þau fengu að kynnast þér. Fengu að upplifa þinn yndislega húmor og góðvild. Nú eru mikil og erfið veikindi að baki og það eina sem huggar mann á þessari stund er sú vitneskja að þú sért laus úr hlekkjum veikindanna. Elsku mamma mín, ég kveð með tár í augum og miklum söknuði og vona að þú sért komin á betri stað. Ég veit að þú vakir yfir okkur og verndar. Minn- ing þín lifir áfram, minning um bestu mömmu í heimi. Takk fyrir allt elsku mamma mín. Þín Þuríður Kristín. Heimsins besta mamma. Jæja, elsku mamma, núna er fjög- urra ára hetjulegri en jafnframt erf- iðri baráttu þinni við þennan illvíga vágest lokið. Þú tókst þessum veik- indum af miklu æðruleysi, kvartaðir ekki eða lést þetta áfall slá þig út af laginu, heldur tókstu þessu með stó- ískri ró og yfirvegun. Þú varst styrkur, þú varst von þú varst ljósið sem lýsti leið ljósið sem aldrei vék mér frá þú af þér gafst og bættir manna raun sýndir styrk og lést ei á þér sjá. Núna ertu laus úr viðjum þessa erfiða sjúkdóms og komin á betri stað með góðu fólki. Ég efa ekki að þú sért nú þegar byrjuð að vekja gífurlega lukku á nýjum stað, enda leiddist þér aldrei að vera fremst á meðal fólks í góðum félagsskap. Þú og Bóbó eruð væntanlega byrjuð að gæða ykkur á Gæðakleinum og þú, Þurí amma og Dóra amma farnar að skiptast á góm- sætum sögum um lífið og tilveruna. Ég horfi til himins og hugsa um þig, verkin þín öll skilj’ eftir sig, hugurinn reikar, sækir á mig, ég horfi til himins og hugsa um þig. Svífðu nú engill himninum á, vefðu nú örmum svo á megi sjá, eins og bjarg í sænum, þú lést ei á þig fá, þú mætir mér móti þegar banka ég á. Höggið er stórt og djúpt sár í hjart- að sem ekki verður fyllt á þessari lífs- leið og sú staðreynd að sjá þig aldrei framar, geta ekki knúsað þig eða bara allt yfir höfuð fyllir mig skelfingu og kallar fram tár. En vegna hlýlegs, sjarmerandi og yndislegs persónu- leika þíns þá eru góðu minningarnar í gegnum árin fjölmargar sem maður getur hugsað um og huggað sig við. Hef misst styrkinn minn og stoð lífið mitt og von. Allt sem áður var, horfið er á braut inn í tímans skaut. Sé öldur bera á land ganga lífsins veg. Minn hugur reikar burt, vantar hlýja hönd á fylgd um ókunn lönd. Ég hef ekki gengið þessa leið sem í fyrstu virtist bein og greið. Ég sé þig birtast í sólinni ég sé þig birtast í sólinni. Með tár í augum sé þig þar reyni að kalla en fæ ekkert svar. Ég sé þig birtast í sólinni. Það er sárt og tekur mikið á það reynist mér um megn. Að sjá á eftir þér, hverfa burt frá mér það sem eftir er. Með þessum fátæklegu orðum kveð ég þig, elskuleg móðir mín, langt fyrir aldur fram og þakka fyrir allt sem þú gerðir fyrir mig og mína fjöl- skyldu á lífsleiðinni. Þú kenndir mér að ganga, kenndir mér að tala og gerðir mig að þeim manni sem ég er í dag og fyrir það er ég þér eilíflega þakklátur. Ég var, er og mun ávallt verða stoltur af að hafa átt þig sem móður. Hvíl í friði og gakktu á Guðs vegi. Þinn sonur Jón Sigurðsson. Elsku besta mamma mín, ég á svo erfitt með að trúa því að ég sé að skrifa minningarorð til þín. Það er rosalega erfitt að sætta sig við þetta allt saman enda mikill missir fyrir okkur fjölskylduna. En maður reynir að hugga sig við allar yndislegu minn- ingarnar sem maður er ríkur af og að þú þjáist ekki lengur af erfiðum sjúk- dómi. Þú varst svo einstök, elsku mamma, þú tókst öllu með svo miklu jafnaðargeði og varst svo lífsglöð. Þú varst mikil félagsvera og leið þér best með fullt hús af fólki. Í þínum miklu veikindum kvartaðir þú aldrei þrátt fyrir að mikið væri á þig lagt, þú barð- ist hetjulega og veit ég að í lokin varstu að berjast fyrir okkur því þú varst orðin svo þreytt. Ég er svo lán- söm að hafa fengið þig sem mömmu því betri mömmu er ekki hægt að óska sér, þú varst líka mín besta vin- kona. Við höfum alltaf verið mjög samrýndar mæðgur og aldrei verið aðskildar lengi. Lengsti tíminn sem við vorum aðskildar var þegar ég bjó erlendis í hálft ár og þá urðum við nú alltaf að tala saman 2-3svar í viku bara til að heyra hvor í annarri. Svo þegar ég loksins flutti að heiman flutti ég nú bara í 5 mínúta fjarlægð frá þér. Þú varst líka þessi skemmti- lega mamma, ég man hvað vinkonum mínum fannst þú alltaf mikil dúlla, enda varstu það. Ég er svo þakklát fyrir að þú náðir að kynnast henni Áslaugu Emmu, nöfnu þinni, aðeins og man ég hvað þú varst stolt að fá nöfnu. Þú lifðir fyrir fjölskylduna þína og gerðir allt fyrir okkur. Elsku mamma, þú varst svo sannarlega kletturinn í lífi mínu og lærði ég margt af þér. Ég vona að ég verði eins góð mamma og þú varst mér, þá verða börnin mín heppin. Ég er svo þakklát að hafa getað verið til staðar fyrir þig í veikindum þínum, þú sýndir svo sannarlega styrkinn þinn í þeim og ert hetjan mín. Þú átt stóran stað í mínu hjarta og minning þín mun aldrei gleymast, ég verð dugleg að segja barnabörnunum þínum frá þér enda er missir þeirra einnig mikill. Vona að þér líði vel núna, fallegust, ég veit að fullt af góðu fólki tekur vel á móti þér. Guð gefi mér æðruleysi til að sætta mig við það sem ég fæ ekki breytt, kjark til að breyta því sem ég get breytt og vit til að greina þar á milli. (Reinhold Niebuhr.) Hvíl í friði, elsku mamma mín, þangað til við hittumst síðar. Þín Halldóra Sigrún. Áslaug Guðmundsdóttir 34 Minningar MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. MARS 2009 Elsku amma mín, þú hefur allt- af verið besta amma í heimi. Það var svo gaman að koma til þín í Álfaborgir og gista hjá þér. Þú varst svo góð, þú gafst okkur alltaf uppáhaldið okkar, ristað brauð og kakó og svo ís í eft- irrétt. Þú hefur alltaf verið góð kona elsku amma mín. Takk fyrir allt sem þú gerðir fyrir okkur. Guð geymi þig. Þín Helga Sóley. HINSTA KVEÐJA Starmýri 2 108 Reykjavík 553 3032 ÍSLENSKAR LÍKKISTUR     ✝ Hjartkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, GÍSLI ÓSKARSSON vélstjóri, Sóleyjargötu 3, Vestmannaeyjum, sem andaðist á Heilbrigðisstofnun Vestmannaeyja fimmtudaginn 12. mars, verður jarðsunginn frá Landakirkju laugardaginn 21. mars kl. 14.00. Blóm og kransar eru vinsamlegast afþakkaðir en þeir sem vilja minnast hans eru beðnir um að láta Krabbameinsfélagið njóta þess. Kristín Haraldsdóttir, Guðný Svava Gísladóttir, Sigurður Einarsson, Sigrún Olga Gísladóttir, Styrmir Gíslason, Hólmfríður Ása Sigurpálsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, KARÓLÍNA S. HALLDÓRSDÓTTIR, áður til heimilis að Ásvallagötu 16 og Fjölnisvegi 6, andaðist að hjúkrunarheimilinu Skjóli þriðjudaginn 10. mars. Jarðarförin fer fram frá Dómkirkjunni í Reykjavík mánudaginn 23. mars kl. 15.00. Sigrún Guðmundsdóttir, Guðrún Guðmundsdóttir, Einar B. Kristjánsson, Gestur Guðmundsson, Kristín Ólafsdóttir, ömmubörn og langömmubörn. ✝ Yndislegur eiginmaður minn, faðir, sonur og bróðir, RÓBERT BJARNASON, Kríuási 43, Hafnarfirði, sem lést á gjörgæsludeild Landspítalans í Fossvogi fimmtudaginn 12. mars, verður jarðsunginn frá Hafnarfjarðarkirkju mánudaginn 23. mars kl. 13.00. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hans er bent á framtíðarsjóð barna hans, banki 0537-14- 403110, kt. 110295-2359. Anna Sigríður Þorkelsdóttir, Lilja Guðrún Róbertsdóttir, Arnar Róbertsson, Daði Róbertsson, Bryndís Róbertsdóttir, Nanna Guðrún Ásmundsdóttir, Bjarni Sævar Róbertsson, Guðrún, Þórlaug, Kristín, Lísa og þeirra fjölskyldur. ✝ Elskuleg systir okkar og móðursystir, GUÐBORG KRISTJÁNSDÓTTIR frá Dalsmynni, Hringbraut 99, Reykjavík, sem lést á Landspítalanum við Hringbraut laugar- daginn 14. mars, verður jarðsungin frá Dómkirkjunni í Reykjavík mánudaginn 23. mars kl. 13.00. Anna S. Kristjánsdóttir, Ella Kristjánsdóttir, systrabörn og fjölskyldur þeirra. ✝ Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang- amma, GUÐBJÖRG JÓNSDÓTTIR, dvalarheimilinu Hjallatúni, áður Víkurbraut 9, Vík í Mýrdal, lést mánudaginn 16. mars. Útför hennar fer fram frá Víkurkirkju laugardaginn 28. mars og hefst athöfnin kl. 14.00. Sigurjón Rútsson, Kristín Einarsdóttir, Kristín Rútsdóttir, Eysteinn Helgason, Heiðrún Rútsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.