Morgunblaðið - 19.03.2009, Side 36
36 Minningar
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. MARS 2009
Raðauglýsingar 569 1100
Fundir/Mannfagnaðir
Kjördæmisráðið í
Suðvesturkjördæmi
Fundur
Boðað er til fundar í Kjördæmisráði Suðvestur-
kjördæmis, miðvikudaginn 25. mars næst-
komandi kl. 20.00 í Valhöll.
Dagskrá:
1. Ákvörðun um framboðslista Sjálfstæðis-
flokksins í SV-kjördæmi í komandi
alþingiskosningum.
2. Önnur mál.
Stjórnin
Nauðungarsala
Uppboð
Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim
sjálfum, sem hér segir:
Njálsgata 52b, 200-8160, Reykjavík, þingl. eig. Júlía Margrét Sveins-
dóttir, gerðarbeiðendur Frjálsi fjárfestingarbankinn hf. og Landsbanki
Íslands hf., aðalstöðv., mánudaginn 23. mars 2009 kl. 13:30.
Stóragerði 4, 203-3296, Reykjavík, þingl. eig. þb. Júníusar Ólafssonar,
gerðarbeiðendur Nýi Kaupþing banki hf. og Reykjavíkurborg,
mánudaginn 23. mars 2009 kl. 14:00.
Sýslumaðurinn í Reykjavík,
18. mars 2009.
Tilkynningar
Tillaga að deiliskipulagi
frístundabyggðar í landi Mógils,
Svalbarðsstrandarhreppi
Sveitarstjórn Svalbarðsstrandarhrepps auglýsir
hér með tillögu að deiliskipulagi frístunda-
byggðar í landi Mógils, Svalbarðsstrandar-
hreppi samkvæmt 25. gr. skipulags- og
byggingarlaga nr. 73/1997 með síðari
breytingum.
Deiliskipulagstillagan gerir ráð fyrir 4 frístunda-
húsalóðum neðan þjóðvegar 1 og norðan
heimreiðarinnar í Mógil. Vegtenging að
svæðinu er frá heimreiðinni í Mógil.
Í aðalskipulagi er svæðið merkt ”F 8” 2,5 ha að
stærð, þar af sameiginlegt svæði um 1,1 ha.
Deiliskipulagstillagan verður til sýnis á skrif-
stofu Svalbarðsstrandarhrepps í Ráðhúsinu á
Svalbarðseyri frá og með fimmtudeginum
19. mars 2009 til og með fimmtudagsins
16. apríl 2009. Á sama stað skal skila athuga-
semdum við tillöguna í síðasta lagi kl. 12:00
föstudaginn 1. maí 2009. Hver sá sem ekki gerir
athugasemd við tillöguna innan ofangreinds
frests telst samþykkur henni.
Sveitarstjórinn í Svalbarðs-
strandarhreppi.
Ýmislegt
Norskt-franskt ,,samsæri”?
Ljóst er að í fyrstu var ekki lögð áhersla á að
upplýsa um refsiverða þætti í bankahruninu í
okt. 2008. Enn er ekki vitað um nokkra
handtöku, rannsóknarskýrslu, næturheimsókn
eða aðrar sakargerðir nokkurs saksóknara sem
þó er skylt að rannsaka öll meint refsiverð brot,
þ.m.t. brot tengd hruninu. Svo leiftraði norsk-
franskur rannsakandi efnahagsbrota, Eva Joly,
í Silfri Egils í sjónvarpi RÚV, 7. 3. 2009. Hún
varð fáum dögum síðar ráðgjafi nýrrar
ríkisstjórnar. Og virtist í NRK sjónvarpinu 12. 3.
2009 til alls vís, hvorki bundin af tungu- né
,,nornaveiði”- höftum ísl. embætta.
Tómas Gunnarsson, áhugamaður um opinbera stjórnarhætti.
Aðalfundur
Aðalfundur Lífeyrissjóðs verkfræðinga verður
haldinn á Grand Hótel Reykjavík, Sigtúni 38,
þriðjudaginn 8. apríl 2008 kl. 17:15.
Fundarefni:
1. Skýrsla stjórnar.
2. Reikningsskil.
3. Fjárfestingarstefna.
4. Lífeyrisuppgjör pr. 31.12.2007
- skýrsla tryggingafræðings sjóðsins.
5. Stjórnarlaun.
6. Kosning tveggja manna í stjórn og eins til
vara.
7. Kosning endurskoðanda og tveggja
skoðunarmanna.
8. Önnur mál.
Endurskoðaðir og undirritaðir reikningar
sjóðsins ásamt skýrslu tryggingafræðings
munu liggja frammi á skrifstofu sjóðsins viku
fyrir aðalfund, sjóðfélögum til sýnis. Einnig
verða skjölin birt á vefsíðu sjóðsins,
www.lifsverk.is.
Reykjavík, 25. mars 2008
Stjórnin
Félagslíf
Sálarrannsóknarfélag
Reykjavíkur
Síðumúla 31,
s. 588 6060
Miðlarnir, spámiðlarnir og
huglæknarnir Þórhallur Guð-
mundsson, Ólafur Hraundal
Thorarensen talnaspekingur
og spámiðill, Anna Carla
Ingvadóttir, Símon Bacon
Ragnhildur Filippusdóttir, og
Guðríður Hannesdóttir kris-
talsheilari auk annarra, starfa
hjá félaginu og bjóða
félagsmönnum og öðrum upp á
einkatíma. Upplýsingar um
félagið, starfsemi þess, rann-
sóknir og útgáfur, einkatíma og
tímapantanir eru alla virka daga
ársins frá kl. 13-18. auk þess
oft á kvöldin og um helgar.
SRFR
Landsst. 6009031918 VIII Sth. kl.
18.00
I.O.O.F. 11 1893198 Fl.
Bæn og lofgjörð í dag kl. 20.
Umsjón: Elsabet Daníelsdóttir
og Anne Marie Reinholdtsen.
Dagsetrið á Eyjarslóð 7
er opið alla daga kl. 13-18.
Nytjamarkaður á Eyjarslóð 7
og fatabúð í Garðastræti 6,
opin alla virka daga kl. 13-18.
Einnig laugardaga á Eyjarslóð!
-
Kl. 15.00 samvera eldri
borgara í kaffisal kirkjunnar.
Vörður LevíTraustason verður
með hugvekju.
Allir hjartanlega velkomnir.
✝ Guðrún R. Ein-arsdóttir fæddist
á Eystri-Leir-
árgörðum í Borg-
arfirði 9. september
1923. Hún lést á líkn-
ardeild LSH í Kópa-
vogi 7. mars sl. For-
eldrar Guðrúnar voru
Einar Gíslason bóndi
á Eystri-Leir-
árgörðum, f. 6. febr-
úar 1876, d. 16. júlí
1951, og Málmfríður
Jóhannesdóttir, f. 3.
apríl 1894, d. 1. apríl
1977. Systkini Guðrúnar eru Theo-
dór, f. 9. maí 1908, d. 8. ágúst 1999,
Óskar, f. 10. mars 1912, d. 10. apríl
1995, Guðfinna, f. 13. febrúar 1916,
d. 11. ágúst 2001, Jóhannes, f. 8.
október 1917, d. 7. apríl 1995, Adólf,
f. 20. mars 1920, Hannes, f. 20. mars
1920, d. 1. maí 1999, og Guðríður, f.
13. júní 1929.
Árið 1951 giftist Guðrún Sigurði
Már, f. 10. mars 1977, maki Bryndís
Sigurðardóttir, f. 30. september
1975, barn: Samúel Már, f. 25. ágúst
2000. d) Einar Torfi, f. 10. ágúst
1980, sambýliskona Laura Sophia,
f. 23. apríl 1983. e) Sigurður Steinn,
f. 10. febrúar 1990. 2) Rúnar Geir, f.
14. september 1956, maki Amanda
Jane Scarlett, f. 8. apríl 1965, börn:
a) Edward, f. 4. júlí 1998, d. 4. júlí
1998, b) Oliver Magnus, f. 13. des-
ember 1999, og c) Cordelia Astrid,
f. 13. desember 1999. 3) Sigurður
Örn, f. 11. júlí 1959, maki Ágústína
G. Pálmarsdóttir, f. 10. mars 1959,
börn: a) Kristrún Helga, f. 13. sept-
ember 1983, b) Guðrún Sara, f. 2.
maí 1989, og c) Sigrún Arna, f. 24.
maí 1991.
Guðrún útskrifaðist frá Hús-
mæðraskólanum Staðarfelli í Döl-
um 1943. Hún var húsmóðir og
starfaði við verslunarstörf, síðast í
Bókabúð Máls og menningar. Guð-
rún bjó lengst af með fjölskyldu
sinni í Háagerði 20 en síðustu árin
var heimili hennar í Efstaleiti 14.
Útför Guðrúnar fer fram frá
Grensáskirkju í dag, 19. mars, og
hefst athöfnin klukkan 15.
Guðgeirssyni prent-
ara, f. 30. maí 1926, d.
6. júlí 1983. Foreldrar
Sigurðar voru Guð-
geir Jónsson bók-
bindari, f. 23. apríl
1893, d. 7. júní 1987,
og Guðrún Sigurð-
ardóttir, f. 25. sept-
ember 1893, d. 17.
ágúst 1987. Synir
Guðrúnar og Sig-
urðar eru: 1) Einar
Már, f. 29. október
1951, maki Helga M.
Steinsson, f. 22. sept-
ember 1952. Börn: a) Heiðrún
Helga, f. 27. desember 1971, börn:
Magnea Ásta, f. 13. júlí 1998, Ásgeir
Snær, f. 23. janúar 2002, og Jórunn
Ósk, f. 27. nóvember 2005. b) Jó-
hann Már, f. 9. desember 1972, maki
Íris Jensdóttir, f. 15. apríl 1975,
börn: Elmar Jens, f. 9. september
1998, Ívar Örn, f. 24. maí 2000, og
Eydís Eva, f. 1. apríl 2007. c) Karl
Ástkær móðir mín, nú hefur þú
fengið hvíldina eftir erfið veikindi.
Allar góðu minningarnar flæða um
huga minn og fylla mig þakklæti fyr-
ir að hafa átt þig að allan þennan
tíma. Þú varst alltaf á vaktinni til að
hjálpa og aðstoða mig og fjölskyldu
mína. Þakka alla leiðsögn þína, hlýju,
ósérhlífni, innri styrk og allt þitt
orkuflæði. Bros þitt og nærvera öll
sannkristin og æðrulaus. Jafnframt
samverustundirnar og veislurnar
innanlands og utan. Gjafir þínar í öll-
um formum til mín, fjölskyldunnar
og hjálparstofnana. Það litla sem við
réttum þér fannst þér algjör óþarfi
og við alveg brjáluð að gefa þér. Al-
gjör óþarfi var það seinasta sem þú
sagðir við mig, áður en við kvödd-
umst seinast. Minning þín lifir.
Í förum, við öldu og áttar kast,
margt orð þitt mér leið í minni.
– Draumarnir komu. Ég lék og þú last
í lítilli stofu inni.
Hvort logn var á sæ eða bára brast,
þú bjóst mér í hug og sinni.
Við spor hvert um Bifröst, að Heljar
hyl,
til himins, vor tunga bjó vörðu.
Þú last – þetta mál, með unað og yl,
yngdan af stofnunum hörðu. –
Ég skildi, að orð er á Íslandi til
um allt, sem er hugsað á jörðu.
Þú elskaðir stökunnar máttuga mál,
myndsmíð vors þjóðaranda,
þar ættirnar fága eldgamalt stál
í einvistum fjalla og stranda –
við öræfamorgunsins brúnabál,
við brimþunga mannauðra sanda.
En bæri ég heim mín brot og minn
harm,
Þú brostir af djúpum sefa. –
Þú vógst upp björg á þinn veika arm;
þú vissir ei hik eða efa.
Í alheim ég þekkti einn einasta barm,
sem allt kunni að fyrirgefa.
Og þegar ég leiddi í langför mitt skip
og leitaði fjarlægra voga
ég mundi alltaf þinn anda og svip.
– Þú áttir hjarta míns loga.
Og þitt var mitt ljóð og hvert gígjugrip.
Þú gafst mér þinn streng og þinn
boga.
Dagar þíns lífs, þínar sögur, þín svör
voru sjóir með hrynjandi trafi.
Móðir. Nú ber ég þitt mál á vör
og merki þér ljóðastafi.
Til þess tók ég fari, til þess flaut minn
knör.
Til þess er ég kominn af hafi.
(Einar Benediktsson.)
Þinn sonur
Sigurður Örn.
Elsku Guðrún mín, það eru svo
margar góðar minningar sem flæða
um huga minn þegar ég sest niður og
lít yfir farinn veg. Ég vil þakka þér
samveruna í þau 20 ár sem við höfum
verið saman og hve vel þú tókst á
móti okkur Kristrúnu þegar við kom-
um í fjölskylduna. Við bundumst
strax vináttuböndum sem aldrei
slitnuðu og treystust eftir því sem
árin liðu. Fljótlega fæddust dætur
okkar Sigga og þú fékkst nöfnu, Guð-
rúnu Söru, og svo kom Sigrún Arna.
Þær urðu báðar mjög hændar að
ömmu sinni og naust þú þín í hví-
vetna við kaup á kjólum og bleiku fí-
neríi. Marga sunnudagana komum
við í sunnudagssteik í Háagerðið og
nutum samverustundanna, síðar
komst þú svo til okkar.
Guðrún vann í mörg ár í bókabúð
Máls og menningar og það var nú
ekki amalegt fyrir barnabörnin að
kíkja við hjá ömmu sinni og fletta
barnabókum. Guðrún var lítil og nett
og svo ótrúlega snaggaraleg í hreyf-
ingum. Að sjá Guðrúnu á göngu var
eins og að horfa á eftir unglingi, svo
létt og lipur. Hún var ákveðin kona
og stóð fast á sínu ef svo bar undir en
alltaf var stutt í dillandi hlátur. Hún
reyndist mér og fjölskyldu minni
stoð og stytta í veikindum nöfnu
sinnar og gaf ekkert eftir í þeim efn-
um. Síðustu árin vorum við nágrann-
ar og oftar en ekki birtist Guðrún
með nýbakaðar pönnukökur á tröpp-
unum. Það er mikill missir að góðum
vini og tengdamóður sem var svo
stór hluti af lífi okkar allra.
Guðrún mín, takk fyrir allar góðu
stundirnar okkar saman og megi
góður Guð blessa minningu þína.
Ágústína G. Pálmarsdóttir.
Elsku amma mín, þá er samferð
okkar lokið.
Það er erfitt að hugsa til þess að ég
muni ekki hitta þig aftur en á sama
tíma sæki ég styrk í þær ánægjulegu
stundir sem við höfum átt saman.
Það var alltaf tilhlökkun hjá mér og
Einari Torfa að koma í Háagerðið
þegar við vorum í Reykjavík og sér-
staklega þótti okkur gaman að leika
okkur í kúluleik á ganginum. Ég man
vel eftir því þegar við vorum búnir að
raða öllu upp til að hefja leikinn, þá
var kallað á ömmu til að fá kúluna
sem var alltaf geymd á stað sem
amma vissi bara um. Stofuklukkan
þín er líka eftirminnileg, hún sló með
reglulegu millibili og því auðvelt að
átta sig á því hvað tímanum leið
hvort sem maður var á hlaupum yfir
daginn eða vaknaði um nótt. Ég átti
einnig góðar stundir liggjandi í stól
inni í bókaherbergi að lesa eða að
reyna við litateninginn. Í þessu her-
bergi kynntist ég bókmenntum og
þar las ég fyrstu alvöru bókina mína
af áhuga en ekki af skyldurækni.
Þegar ég hugsa til baka er ég
þakklátastur fyrir samverustundirn-
ar sem við áttum þá tvo vetur sem ég
bjó hjá þér meðan ég stundaði nám í
Reykjavík. Á þessum tíma kynntist
ég þér vel og við náðum vel saman.
Þú hugsaðir vel um mig og varst
óþreytandi að útbúa fyrir mig mat og
jafnvel þótt þú værir ekki að fara á
fætur á sama tíma og ég varstu mætt
þegar ég vaknaði í morgunmat til að
tryggja að ég borðaði vel áður en ég
færi í skólann. Ef þú þurftir að fara á
undan mér var búið að setja brauð í
ristina og allt klárt á borðinu þegar
ég kom fram. Kvöld- og helgarmat-
urinn var líka sérstakur þar sem þú
hafðir miklar áhyggjur af því að ég
Guðrún R. Einarsdóttir