Morgunblaðið - 19.03.2009, Page 37
Minninar 37
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. MARS 2009
Smáauglýsingar 569 1100 www.mbl.is/smaaugl
Bækur
Kaupi bækur
Kaupi bækur og bókasöfn.
Upplýsingar í síma 898 9475,
Þorvaldur.
Dýrahald
Göngu- og dráttarbeisli
Vinnuhundar.com eru með til sölu
frábær göngu- og dráttarbeisli fyrir
hunda af öllum stærðum og gerðum!
Nánari upplýsingar á
www.vinnuhundar.com eða á
vinnuhundar@vinnuhundar.com
Ferðalög
Fossatún
Einstakt umhverfi
Skemmtileg afþreying og
frábærar veitingar.
www.fossatun.is
sími 433 5800.Hljóðfæri
Dúndurtilboð
Kassagítarar: 1/4 stærð kr.
10.900 pakkinn með poka,
strengjasetti og stilliflautu. 1/2
stærð kr. 7.900. Full stærð kr.
12.900. 3/4 kr. 10.900. 4/4 kr.
12.900. Rafmagnsgítarpakkar frá
kr. 29.900. Hljómborð frá kr.
17.900. Trommusett kr. 49.900
með öllu.
Gítarinn, Stórhöfða 27
sími 552 2125
www.gitarinn.is
Húsnæði í boði
Spánn - Alicante
Meðeigandi óskast að fallegu
raðhúsi í Torrevieja. Upplagt fyrir
starfsmanna- og félagasamtök.
S. 899 2940.
Sumarhús
Sumarhús eða ferðaþjónustuhús
Vandað sænskt bjálkaklæðningarhús
með einangrun og panilklæðningu að
innan. Löng og góð reynsla hér á
landi. Þetta 32 fm hús er á sérlega
góðu verði. Stuttur afgreiðslufrestur
JABO HÚS,
Ármúla 36,
Sími 581 4070,
www.jabohus.is
Falleg og vönduð sumarhús frá
Stoðverk ehf. í Ölfusi.
Gott verð. Teiknum eftir óskum kaup-
enda, sýningarhús á staðnum. Einnig
til sölu lóðir á Flúðum.
Símar: 660 8732, 660 8730,
892 8661, 483 5009.
stodverk@simnet.is
Tölvur
Tölvuskápur
Til sölu ROSENGRENS tölvuskápur
með 1500W viftu og lykillæsingu. Er
eins og nýr. Gott verð. Uppl. í síma
896 5422.
Tómstundir
Til sölu
Til sölu KOMAT'SU jarðýta
Árg. 2007, notkun 1450 vinnustundir.
Upplýsingar í síma 892-0111.
Skattframtöl
Skattframtal 2009
fyrir einstaklinga. Hagstætt verð.
Sjáum um eldri framtöl og kærur.
Einnig bókhald, vsk.-skil, heimasíður,
lén o.fl. Dignus ehf. - dignus.is -
s: 699-5023.
Framtalsþjónusta 2009
Skattaframtöl fyrir einstaklinga,
einstaklinga með rekstur og félög.
Einnig bókhald. Hagstætt verð -
vönduð vinna. Sæki um frest.
Sími 517 3977 - framtal@visir.is
Þjónusta
GULLSKARTGRIPIR - GULL
Kaupum til bræðslu allar tegundir
gullskartgripa, gamla, nýlega, ónýta,
gegn staðgreiðslu. demantar.is
Magnús Steinþórsson,
Pósthússtræti 13, sími: 699-8000.
Byggingavörur
Harðviður til húsabygginga
Sjá nánar á www.vidur.is
Vatnsklæðning, panill, pallaefni,
parket, útihurðir o.fl. Gæði á góðu
verði. Nýkomnar Eurotec A2 harð-
viðarskrúfur. Penofin harðviðarolía.
Indus ehf., Óseyrarbraut 2, Hf.
Upplýsingar hjá Magnúsi í símum
6600230 og 5611122.
Ýmislegt Tískuverslunin Smart,
Grímsbæ/Bústaðavegi
Nýkomið – Skór
Leðurskór, mjög þægilegir.
Litir: silfur, svart. St. 36 – 40.
Verð kr. 8.990,-
Sími 588 8050.
Teg. 6560 mjög flottur BH í DE
skálum á kr. 3.850,- , mjúkar boxer
buxur í stíl á kr. 1.950,-
Misty, Laugavegi 178,
sími 551 3366.
Opið mán.- fös. 10-18, lau. 10 - 14.
Góð þjónusta - fagleg ráðgjöf.
www.misty.is
Arisona inniskór. Stærðir: 36 - 48
litur: svart. Verð: 10.350.-
Profi-Birki vinnuskór
Vatnsheldir klossar úr Alpro-foam
með lausu fótlaga innleggi. Henta
vel í eldhús, matvælaiðnað, þrif og
margt fleira. Stærðir: 39 - 47
litir: svart og hvítt. Verð: 10.790.-
Misty skór, Laugavegi 178,
sími 551 2070,
opið: mán. - fös. 10 - 18.
laugard. 10 - 14.
Góð þjónusta - fagleg ráðgjöf.
www.misty.is
Bátar
Til sölu hraðfiskibátur
Knörr 600. Smíðaður 2004. Báturinn
er 5,75 m. langur og er 2,3 tn. Selst
með eða án kvóta.
Upplýsingar í síma 892 1755.
Bílar
BMW X5 diesel árg. '07
ek. 26 þús. km
Sem nýr BMW X5 (umboðsbíll),
vetrar- og sumardekk, 4x4, leður,
krókur, CD, iPod stýring, vetrarpakki,
fjarlægðarskynjarar, Xenon ljós,
handfrjáls búnaður og fl. Verð:
7800 þús. stgr. Uppl. í s. 844-2110.
BENZ 220 E 1994
Eðalvagninn til sölu. Ekinn 190.000.
Ryð og þarfnast viðgerðar á bremsum
o.fl. fyrir skoðun. Verð 120 þúsund.
Uppl. í 660 7066.
Bílaþjónusta
Ökukennsla
Glæsileg kennslubifreið
Subaru Impreza AERO 2008, FWD.
Öruggur í vetraraksturinn.
Akstursmat og endurtökupróf.
Gylfi Guðjónsson,
sími 6960042,
bilaskoli.is
Húsviðhald
Skipti um rennur og bárujárn
á þökum, einnig smávægilegar
múrviðgerðir og ýmislegt fl.
Þjónum landsbyggðinni einnig.
Upplýsingar í síma 659-3598.
Sisal teppi
Falleg-sterk-náttúruleg. Strönd ehf.
Suðurlandsbraut 10, 108 Reykjavík,
s. 533-5800.
Eruð þið leið á baðherberginu?
Breytum, bætum og flísaleggjum.
Upplýsingar í síma 899 9825.
Þjónustuauglýsingar 5691100
Öflugir fjarstýrðir bensínbílar
í miklu úrvali.
Tómstundahúsið, Nethyl 2,
sími 587-0600.
www.tomstundahusid.is
Raðauglýsingar
sími 569 1100
borðaði ekki nóg. Við áttum auk þess
margar góðar stundir fyrir framan
sjónvarpið á kvöldin. Heimili þitt í
Háagerði var hlýtt og þægilegt og
átti mjög vel við mig. Þar var mikil ró
og þegar ég þarf að hvílast í dag
hugsa ég til baka til Háagerðisins og
þá færist yfir mig ró og friður. Ég
lærði mikið af þér á þessum tíma og
mun alltaf búa að þeim lærdómi.
Eftir þennan tíma vorum við alltaf
í sambandi og var gaman að heyra
frá þér þegar þú hringdir í mig til að
athuga hvernig gengi hjá mér í því
sem ég var að sinna. Þú hafðir alltaf
áhuga á því sem ég var að gera og ég
fann að þú hafðir mikla trú á mér og
hvattir mig áfram. Síðustu ár heim-
sótti ég þig í Efstaleitið og gisti
nokkrum sinnum hjá þér, þá var allt
við það sama; morgunmaturinn klár
þegar ég þurfti að fara og gætt að því
að ég borðaði örugglega vel áður en
ég færi af stað.
Amma, þú mótaðir mig mikið og
hef ég reynt að tileinka mér mörg
gildi sem ég lærði af þér á þeim tíma
sem ég bjó hjá þér. Takk fyrir upp-
eldið og umhyggjuna, ég mun sakna
þín.
Kveðja
Karl Már.
Amma kær, ert horfin okkur hér,
en hlýjar bjartar minningar streyma
um hjörtu þau er heitast unnu þér,
og hafa mest að þakka, muna og
geyma.
Þú varst amma yndisleg og góð,
og allt hið besta gafst þú hverju sinni,
þinn trausti faðmur okkur opinn stóð,
og ungar sálir vafðir elsku þinni.
Þú gættir okkar, glöð við undum hjá,
þær góðu stundir blessun, amma
kæra.
Nú hinstu kveðju hjörtu okkar tjá
í hljóðri sorg og ástarþakkir færa.
(Ingibjörg Sigurðardóttir.)
Kristrún Helga Hafþórsdóttir.
Guðrún amma, eða amma í Háa-
gerði, eins og ég kallaði hana, hefur
verið stór hluti af lífi mínu alveg frá
því ég man eftir mér. Þegar ég flutti
til Reykjavíkur, aðeins tveggja ára
snáði, var ég það heppinn að búa við
hliðina á þeim ömmu og afa og því
var mitt annað heimili lengi vel hjá
þeim í Háagerði. Þótt ég hafi flutt
mig um set nokkrum árum seinna
var samband okkar alltaf mjög náið
og það voru fastir liðir eins og venju-
lega að heimsækja ömmu, þar var
manni alltaf vel tekið. Eftir að ég
flutti til Danmerkur var amma aldrei
langt undan og heyrðum við reglu-
lega hvort í öðru, það gladdi mig allt-
af að heyra í henni. Það sem skipti
mestu máli þegar ég kom til Íslands í
smáheimsókn var að heimsækja
ömmu mína. Amma í Háagerði hafði
alveg einstakan ljóma í kringum sig,
var alltaf í góðu skapi og jákvæð á
allt og alla.
Það er því með miklum söknuði
sem ég kveð þig amma mín, minning
þín mun ávallt fylgja mér.
En meðan árin þreyta hjörtu hinna,
sem horfðu eftir þér í sárum trega,
þá blómgast enn, og blómgast æv-
inlega,
þitt bjarta vor í hugum vina þinna.
(Tómas Guðmundsson)
Jóhann Már W. Einarsson.
Amma mín var frábær, lífsglöð og
falleg kona. Hún vildi ætíð öllum vel
en vildi aldrei að neinn gerði neitt
fyrir sig. Alltaf var hún jákvæð og
reyndi að sjá björtu hliðarnar í lífinu
og kvartaði aldrei undan neinu. Hún
var mjög sjálfstæð og hef ég alltaf
dáðst að því. Amma var alltaf mjög
vel til fara, alveg til fyrirmyndar.
Hún bakaði bestu pönnukökur, boll-
ur og piparkökur sem ég hef smakk-
að. Jólin verða ekki eins án pipar-
kakna frá ömmu. Einnig var hún
frábær í því að gera kjötbollur og
grjónagraut. Mér er minnisstætt
þegar ég og Guðrún Sara vorum
yngri gistum við oft hjá henni í Háa-
gerðinu. Hún söng alltaf fyrir okkur
fyrir svefninn og fór oft með okkur í
sunnudagsmessu.
Ég man eftir því hvað það var
gaman þegar amma flutti í Efstaleit-
ið, í blokkina beint á móti húsinu
okkar. Ég hoppaði alltaf yfir girð-
inguna þegar ég var að koma í heim-
sókn eða fékk að fara í sund hjá
henni. Einnig var amma vön að baka
pönnukökur á miðvikudögum og
annaðhvort rétti hún þær yfir girð-
inguna eða gekk með þær til okkar.
Þakka þér elsku amma mín fyrir
allt það sem þú gafst mér. Ég mun
ætið sakna þín og er þakklát fyrir
þann tíma sem við áttum saman. Þú
verður ávallt geymd í hjarta mínu.
Þitt barnabarn
Sigrún Arna.
Ég man eftir því að amma var allt-
af hlæjandi. Amma kunni að lifa líf-
inu lifandi.
Þegar amma átti heima í Háagerði
20 labbaði hún alltaf út í 11-11 til að
kaupa í matinn og ég fékk oft ís eða
bland í poka.
Amma var skemmtileg kona og ég
fór oft í heimsókn með ömmu til ná-
granna hennar. Ég og amma vorum
oft að föndra á litla eldhúsborðinu
hennar alls konar sniðuga hluti.
Svo flutti hún í Efstaleiti 14 svo við
gætum fylgst með henni betur. Ég
og vinkona mín fórum oft í sund í
Efstaleitið, það var gaman þegar ég
og vinkona mín dingluðum hjá
ömmu, þá var hún með tilbúnar
pönnukökur. Hún var þekkt fyrir
pönnukökurnar sínar; enginn gerði
betri pönnukökur en Guðrún amma.
Amma var frábær manneskja í alla
staði.
Þín ömmustelpa
Guðrún Sara.
Morgunblaðið birtir minningar-
greinar alla útgáfudagana.
Skil | Greinarnar skal senda í
gegnum vefsíðu Morgunblaðsins:
mbl.is – smella á reitinn Senda efni
til Morgunblaðsins – þá birtist val-
kosturinn Minningargreinar ásamt
frekari upplýsingum.
Skilafrestur | Ef birta á minning-
argrein á útfarardegi verður hún að
berast fyrir hádegi tveimur virkum
dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á
mánudegi eða þriðjudegi).
Þar sem pláss er takmarkað getur
birting dregist, enda þótt grein ber-
ist áður en skilafrestur rennur út.
Greinar, sem berast eftir að útför
hefur farið fram, eftir tiltekinn skila-
frests eða ef útförin hefur verið gerð
í kyrrþey, eru birtar á vefnum,
www.mbl.is/minningar. Æviágrip
með þeim greinum verður birt í
blaðinu og vísað í greinar á vefnum.
Lengd | Minningargreinar sem
birtast í Morgunblaðinu séu ekki
lengri en 3.000 slög. Ekki er unnt að
senda lengri grein. Engin lengdar-
mörk eru á greinum sem birtast á
vefnum. Hægt er að senda örstutta
kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5-15
línur. Ekki er unnt að tengja við-
hengi við síðuna.
Undirskrift | Minningargreina-
höfundar eru beðnir að hafa skírn-
arnöfn sín en ekki stuttnefni undir
greinunum.
Minningargreinar